Engin gæludýr á flótta enn komið til landsins

Mat­væla­ráðu­neytið og MAST vinna enn að útfærslu á því hvernig taka megi á móti gælu­dýrum frá Úkraínu hér á landi. Engin gælu­dýr eru því enn komin. Fólkið sem hingað hefur flúið nálg­ast 900.

Köttur á flótta ásamt eiganda sínum. Þeir félagar flúðu frá Úkraínu til Berlínar.
Köttur á flótta ásamt eig­anda sínum. Þeir félagar flúðu frá Úkraínu til Berlínar. Mynd: EPA

„Enn er verið að vinna í útfærsl­unni en ráðu­neytið og MAST hafa sett sig í sam­band við mögu­lega aðila til þess að taka á móti dýr­unum og sinna ein­angrun,“ segir Dúi Jóhanns­son Landmark, upp­lýs­inga­full­trúi mat­væla­ráðu­neyt­is­ins í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu á fram­kvæmd þeirrar ákvörð­unar stjórn­valda að heim­ila flótta­fólki frá Úkraínu að flytja með sér gælu­dýrin sín til Íslands.

[adspot]

Að flytja inn gælu­dýr er alla jafna flókið ferli og óger­legt frá ákveðnum svæðum, m.a. vegna þess að hér á landi fyr­ir­finnst hunda­æði ekki. Um und­an­þágu er því að ræða frá skil­yrðum um inn­flutn­ing sem mun m.a. fela í sér að sá und­ir­bún­ingur sem jafnan fer fram eftir inn­flutn­ing, þ.e. bólu­setn­ingar, sýna­tökur, með­höndlun og fleira, mun fara fram eftir kom­una til lands­ins. Þetta fyr­ir­komu­lag krefst allt að fjög­urra mán­aða ein­angr­unar en tekið er mið af því hve langt dýrið er komið í und­ir­bún­ings­ferl­inu við kom­una til lands­ins.

Mat­væla­ráðu­neytið tók ákvörðun um und­an­þág­una um miðjan mars. Nú er maí geng­inn í garð og ekk­ert gælu­dýr þeirra tæp­lega 900 Úkra­ínu­manna sem hingað hafa flúið enn komið. Hins vegar hafa að sögn Dúa hafa margar fyr­ir­spurnir borist og lúta þær allar að inn­flutn­ingi hunda og katta.

Gert er ráð fyrir að um 1 pró­sent fólks sem flýr stríðið í Úkraínu hafi með sér gælu­dýr sín á flótt­anum. Á fundi yfir­dýra­lækna á Norð­ur­löndum sem hald­inn var fyrir nokkrum vikum var mælst til að aðild­ar­ríki ESB væru sveigj­an­leg við mót­töku gælu­dýra flótta­fólks frá Úkraínu. Í fram­hald­inu hafa mörg Norð­ur­land­anna veitt und­an­þágur.

Í lok apríl höfðu 588 gælu­dýr flúið frá Úkraínu til Noregs ásamt eig­endum sínum. Norska Mat­væla­stofn­unin hefur komið upp 51 ein­angr­un­ar­stöð vegna þessa með plássi fyrir sam­tals 1.100 dýr. Öll með­ferð dýr­anna í Noregi, þar með taldar bólu­setn­ingar og ein­angr­un­ar­vistin, er greidd af rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár