Matvælastofnun hafi ekki eftirlit með velferð dýra

„Und­an­farið hafa komið upp mörg dæmi sem sýna að ekki er hugað nægi­lega að vel­ferð dýra sem haldin eru eða veidd hér á landi,“ segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata um til­færslu dýra­eft­ir­lits frá stofnun sem kennd er við mat­væli.

Valgerður Árnadóttir, varaþingmaður Pírata.
Val­gerður Árna­dóttir, vara­þing­maður Pírata. Mynd: Aðsend

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að dýra­eft­ir­lit verði fært frá Mat­væla­stofnun til sjálf­stæðs dýra­vel­ferð­ar­sviðs. Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Val­gerður Árna­dóttir, vara­þing­maður Pírata. Samhliða til­færsl­unni verði hugað sér­stak­lega að aðgerðum til að tryggja dýra­vel­ferð. Píratar leggja til að emb­ætti yfir­dýra­læknis verði eflt þannig að það geti unnið sjálf­stætt að eft­ir­liti, fræðslu, gagna­öflun og fag­legri stjórn­sýslu varð­andi dýra­vel­ferð.

Einnig er lagt til að stjórn­sýsla dýra­vel­ferðar verði óháð stjórn­sýslu mat­væla­ör­yggis og að vald­heim­ildir til að sinna vel­ferð dýra og til að grípa inn í þar sem er brýn nauð­syn verði auknar. Að end­ingu er lagt til að úrræði til að bjarga dýrum úr slæmum aðstæðum verði tryggð með fjár­magni til að halda úti dýra­at­hvörfum með aðkomu hlut­að­eig­andi sveit­ar­fé­laga. „Mat­væla­ráð­herra hafi í fram­an­greindu skyni sam­ráð við helstu hags­muna­sam­tök og fag­að­ila í grein­inni og leggi eigi síðar en á 154. lög­gjaf­ar­þingi fyrir Alþingi laga­frum­vörp til að stuðla að nauð­syn­legum breyt­ingum á sviði dýra­vel­ferðar í sam­ræmi við ályktun þessa.“

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er bent á að und­an­farið hafi komið upp mörg dæmi sem sýni að ekki er hugað nægi­lega að vel­ferð dýra sem haldin eru eða veidd hér á landi. Þar megi einna helst nefna erfið mál sem hafa komið upp við blóð­mera­hald og hval­veiðar þar sem gögn sýni að dýrin hafa þjáðst að óþörfu. „Það er ljóst að eft­ir­liti er veru­lega ábóta­vant og vald­heim­ildir til að grípa inn í ekki nægj­an­lega sterkar. Eftirlit og úrskurð­ar­vald eru á sömu hendi í mála­flokknum sem dregur úr nauð­syn­legu aðhaldi.“

Enn­fremur er bent á að hags­munir í mat­væla­málum og dýra­vernd fari ekki alltaf saman og „skap­ast hættu­legt ójafn­vægi þegar annar mála­flokk­ur­inn er lát­inn vega þyngra en hinn. Með til­lögu þess­ari er lagt til að eft­ir­lit með vel­ferð dýra verði fært til sjálf­stæðs dýra­vel­ferð­ar­sviðs sem getur sinnt yfir­um­sjón og sam­ræm­ingu á meðan Mat­væla­stofnun eða annar aðili sér um eft­ir­lit og gagna­söfnun. Nauð­syn­legt er að stór­efla hlut dýra­verndar í stjórn­sýsl­unni. Jafn­framt þarf að auka vald­heim­ildir stjórn­sýslu­að­ila til að taka á erf­iðum dýra­van­rækslu­málum án tafar. Rétt er við und­ir­bún­ing til­færslu dýra­eft­ir­lits að athuga hvort færa þurfi emb­ætti yfir­dýra­læknis að fullu til ann­ars ráðu­neytis í þessu skyni og tryggja að emb­ætt­inu sé skylt og kleift að sinna öllum dýra­vel­ferð­ar­málum jafnt, hvort sem um er að ræða villt dýr, hús­dýr eða gælu­dýr“.

Stofnun sett saman úr ýmsu

Mat­væla­stofnun hóf störf 1. jan­úar 2008 þegar Land­bún­að­ar­stofnun, mat­væla­svið Umhverf­is­stofn­unar og mat­væla­svið Fiski­stofu voru sam­einuð undir einum hatti. Stofn­unin starfar undir yfir­stjórn atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, sem sett hefur reglu­gerð nr. 1/2008 um skipu­lag og starf­semi Mat­væla­stofn­unar. Aðal­skrif­stofa er á Selfossi en mark­aðs­stofa í Hafn­ar­firði. Stofn­unin rekur einnig umdæm­i­s­krif­stofur víðs vegar um landið, auk landamæra­stöðva vegna inn­flutn­ings sjáv­ar­af­urða frá ríkjum utan EES.

Með stöð­ugum flutn­ingi verk­efna til stofn­un­ar­innar hefur umfang starf­sem­innar auk­ist jafnt og þétt.

Tímalína

2006: Land­bún­að­ar­stofnun

Sam­ein­ing Embættis yfir­dýra­læknis, Aðfanga­eft­ir­lits, Veiði­mála­stjóra, Yfir­kjöt­mats og ann­arra verk­efna

2008: Mat­væla­stofnun

Samruni Land­bún­að­ar­stofn­unar og mat­væla­sviða Fiski­stofu og Umhverf­is­stofn­unar

2010: Eftirlit með búfjár­af­urðum

Eftirlit með kjöt­vinnslum og mjólk­ur­búum fært frá sveit­ar­fé­lögum til MAST

2011: Eftirlit með fisk­vinnslum

Mat­væla­stofnun tók yfir verk­efni Skoð­un­ar­stofa í sjáv­ar­út­vegi

2013: Eftirlit með dýra­vel­ferð

Stjórn­sýsla og eft­ir­lit flutt frá Umhverf­is­stofnun til Mat­væla­stofn­unar

2014: Búfjár­eft­ir­lit

Fært frá sveit­ar­fé­lögum til MAST sam­hliða end­ur­skipu­lagi eft­ir­lits með dýra­vel­ferð

2015: Eftirlit með fisk­eldi

Fært frá Fiski­stofu til MAST auk verk­efna sem MAST vinnur fyrir Umhverf­is­stofnun

2016: Bún­að­ar­stofa

Stjórn­sýslu­verk­efni flytj­ast frá BÍ til MAST

2018: Lífræn ræktun

Stjórn­sýsla og eft­ir­lit færð frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu til MAST

2020: Brott­hvarf Bún­að­ar­stofu

Bún­að­ar­stofa flutt frá MAST til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár