Fundu sýklalyf í lífrænt vottuðu kjöti

Fjöl­margar og sífellt fleiri líf­rænar vott­anir á dýra­af­urðum eru til þess fallnar að rugla neyt­endur, segja sam­tök sem fundu leifar af sýkla­lyfjum í kjöti sem fram­leitt er m.a. fyrir Whole Foods í Banda­ríkj­unum.

Sýklalyfjanotkun í bandarískum landbúnaði er mikil.
Sýkla­lyfja­notkun í banda­rískum land­bún­aði er mikil. Mynd: EPA

Við rann­sókn óháðu sam­tak­anna Farm Forward á kjöti sem selt er í versl­unum Whole Foods í Banda­ríkj­unum og fengið hefur líf­ræna vottun fund­ust leifar af sýkla­lyfjum. Sýnin voru tekin í slát­ur­húsi sem vinnur m.a. kjöt sem selt er hjá Whole Foods, kjöti sem fengið hefur sér­staka vottun USDA um dýra­vel­ferð sem og sam­bæri­legan og líf­rænan stimpil úr vott­un­ar­kerfi versl­an­anna sjálfra. Whole Foods full­yrðir að ekk­ert kjöt sem þar sé selt inni­haldi sýkla­lyf – „aldrei nokkurn tím­ann“.

Þetta er þó ekki eina rann­sóknin sem sýnt hefur sömu nið­ur­stöðu. Í byrjun apríl var birt nið­ur­staða rann­sóknar í vís­inda­tíma­rit­inu Science en sam­kvæmt nið­ur­stöðum hennar fund­ust sýkla­lyf í kúm sem not­aðar voru til fram­leiðslu kjöts sem fengið hafði sömu vott­anir.

[adspot]

Höfundar þeirrar rann­sóknar, sem m.a. eru vís­inda­menn við George Washington-háskóla, segja að það sé nær ómögu­legt fyrir neyt­endur að sann­reyna hvort að dýr sem notuð eru til kjöt­fram­leiðslu hafi fengið sýkla­lyf eða ekki. Neyt­endur þurfi því að geta treyst á fram­leið­endur, stjórn­völd eða vott­un­ar­að­ila í þeim efnum. Stjórn­völd beri ábyrgð á því að farið sé eftir vott­unum sem þessum enda gefi þau þeim grænt ljós en yfir­völd geri þó engar sjálf­stæðar rann­sóknir.

Tals­maður Whole Foods segir í sam­tali við Washington Post að fyr­ir­tækið hafi ekki nokkra ástæðu til að trúa því að kjöt af þeim naut­gripum sem sýni voru tekin úr við rann­sókn­irnar rati í þeirra versl­anir. Ekki sé hægt að ganga úr skugga um það þar sem rann­sak­endur hafi ekki gefið upp nafnið á slát­ur­hús­inu þaðan sem sýnin voru tekin. Erfitt sé því að skera úr um hvort að um kerf­is­legt vanda­mál sé að ræða eða að þarna séu aðeins á ferð „nokkur skemmd epli“.

Kerfislægur vandi

Kevin Lo, sem starfar með FoodID sem tók þátt í rann­sókn­inni ásamt vís­inda­mönnum George Washington-háskóla, segir að nið­ur­stöð­urnar sýni að vand­inn sé kerf­is­lægur og snú­ist ekki um ein­staka bændur, ein­stök býli, versl­anir eða veit­inga­staði. Meðal þess sem fannst við rann­sókn sam­tak­anna Farm Forward voru leifar vaxt­ar­hvetj­andi lyfja, lyfja sem bannað er að nota sam­kvæmt líf­rænu vott­un­ar­stof­unum.

Samtökin segja að í banda­rískum kjöt­iðn­aði séu not­aðar margar og rugl­andi vott­anir til að dreifa athygli neyt­enda. Meira að segja stórar keðjur á borð við Whole Foods, sem rekur um 500 versl­anir vítt og breitt um Banda­ríkin, Kanada og Bretland, geti ekki tryggt að kjötið sem þar er selt sé lyfja­laust.

Nýlegar rann­sóknir hafa sýnt að ónæmi fyrir sýkla­lyfjum sé vax­andi vanda­mál hjá fólki víða um heim og er það bein­tengt gríð­ar­legri notkun slíkra lyfja í búfjár­eldi. Lyfin eru notuð til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúk­dóma á hverslags verk­smiðju­búum og til að auka vaxt­ar­hraða dýr­anna sem þar eru haldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár