Umfjöllun um blóðmerahald í útlöndum valdi íslenskri ferðaþjónustu skaða

Formaður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar segir að ein­ungis 7.700 ferða­menn þurfi að ákveða að koma ekki til Íslands til þess að efna­hags­legur skaði af því fyrir þjóð­ar­búið verði meiri en ávinn­ing­ur­inn af blóð­töku úr fyl­fullum merum.

Bjarn­heiður Halls­dóttir, for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir að nýleg umfjöllun um blóð­mera­hald á Íslandi á mörgum helstu mark­aðs­svæðum íslenskrar ferða­þjón­ustu hafi leitt til þess að sím­tölum og fyr­ir­spurnum hafi „rignt yfir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki bæði hér heima og erlendis“ og valdið „trufl­unum í eft­ir­spurn“ eftir íslenskri ferða­þjón­ustu.

Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Bjarn­heiður birtir á Vísi í dag, en þar veltir hún því upp hvort verið sé að fórna meiri hags­munum fyrir minni með því að leyfa blóð­töku úr fyl­fullum merum á Íslandi með til­heyr­andi hættu á skað­legri umfjöllun erlendis.

„Útflutn­ings­verð­mæti á blóði úr fyl­fullum hryssum eru áætluð um tveir millj­arðar króna á ári. Til sam­an­burðar eru útflutn­ings­tekjur af 7700 ferða­mönnum sem sækja Ísland heim um tveir millj­arðar króna. Þó að umfjöllun um blóð­mera­hald fæli aðeins um 7700 ferða­menn frá því að koma til lands­ins þá eru þessir tveir millj­arðar úflutn­ings­tekna tap­aðir,“ segir í grein Bjarn­heiðar.

Hún bætir því við að reynslan af áhrifum hval­veiða á ímynd Íslands og ferða­þjón­ustu sýni að það sé „fylli­lega raun­hæfur fjöldi“ og ef áhrifin verði enn meiri en það, sem sé „mjög lík­legt“, verði blóð­mera­hald „farið að valda beinum efna­hags­legum skaða“.

Bjarn­heiður spyr hvort blóð­mera­hald og útflutn­ingur á blóði úr fyl­fullum merum, sem að end­ingu nýt­ist við fram­leiðslu horm­óna til svína­eldis, sé „góður „bis­ness“ fyrir Ísland í heild­ar­sam­heng­inu“.

Megi reikna með neikvæðum áhrifum á hestahagkerfið

Í grein sinni nefnir hún einnig að reikna megi með því að umfjöllun um blóð­mera­hald á Íslandi í erlendum fjöl­miðlum í kjöl­far þess að evr­ópsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök komu til lands­ins og tóku í laumi upp mynd­skeið af blóð­töku fyl­fullra mera hafi skað­leg áhrif á „hesta­hag­kerfið“ á Íslandi.

[adspot]

Bjarn­heiður bendir á að á síð­asta ári hafi um 3.300 íslensk hross verið seld úr landi fyrir and­virði um 2,2 millj­arða króna og að í því sam­hengi skipti ímynd íslenska hests­ins miklu.

Umdeilt mál

Blóð­mera­hald sem búgrein hefur verið tölu­vert í umræð­unni á und­an­förnum mán­uðum, en í nóv­em­ber birtu dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Animal Welfare Founda­tion í Þýska­landi og Tierschutz­bund Zürich í Sviss tutt­ugu mín­útna mynd á YouTube sem sýnir slá­andi með­ferð íslenskra hryssa við blóð­töku.[links]

Þetta hefur vakið upp miklar umræður og kalla sumir eftir því að búgreinin verði alfarið bönnuð hið snarasta og frum­varp þess efnis er til með­ferðar á þingi. Aðrir segja hins vegar að mynd­skeiðið frá evr­ópsku dýra­vernd­ar­sam­tök­unum hafi verið áróð­urs­mynd­band sett fram af öfga­hópum og myndefnið end­ur­spegli alls ekki hvernig er almennt staðið að blóð­töku úr merum hér­lendis.

Mat­væla­stofnun rann­sak­aði meint alvar­leg brot og vís­aði þeim svo áfram til lög­reglu, sem fer nú með málin. Í upp­hafi árs skip­aði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra svo þriggja manna hóp sem á að skoða starf­sem­ina og reglu­verk og eft­ir­lit í kringum búgrein­ina.

„Ráð­herra hefur falið hópnum að funda með hag­að­ilum auk þess sem almenn­ingi mun gef­ast kostur á að tjá sig um störf og til­lögur hóps­ins á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda þegar þær liggja fyr­ir. Starfs­hóp­ur­inn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráð­herra til­lögum sínum fyrir 1. jún­í,“ ­sagði í til­kynn­ingu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins frá 3. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár