Búið að skipa blóðmerahóp

Iðunn Guð­jóns­dóttir frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, Sigrún Björns­dóttir yfir­dýra­læknir hjá Mat­væla­stofnun og Ólafur Páll Jónsson heim­speki­pró­fessor við Háskóla Íslands hafa verið skipuð í starfs­hóp sem á að skoða blóð­töku úr fyl­fullum hryssum hér á landi.

Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur skipað þriggja manna starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að fjalla um blóð­töku úr fyl­fullum hryssum, sem hefur verið til nokk­urrar umræðu í dag eftir að evr­ópsk dýra­vernd­ar­sam­tök birtu mynd­skeið af slæmri með­ferð hrusss á YouTube undir lok síð­asta árs.

Hópnum er ætlað að skoða starf­sem­ina, reglu­verkið og eft­ir­litið í kring um hana, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.[links]

Ráðherra kall­aði eftir til­nefn­ingum í starfs­hóp­inn frá Mat­væla­stofnun og Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Iðunn Guð­jóns­dóttir, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu er for­maður hóps­ins, en hún var skipuð af ráð­herra án til­nefn­ingar.

Einnig sitja í hópnum þau Sigríður Björns­dóttir, yfir­dýra­læknir í hrossa­sjúk­dómum hjá Mat­væla­stofnun, sem MAST til­nefndi til setu í hópnum og Ólafur Páll Jónsson, pró­fessor í heim­speki við Háskóla Íslands, sem til­nefndur er af Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands.

[adspot]

„Ráðherra hefur falið hópnum að funda með hag­að­ilum auk þess sem almenn­ingi mun gef­ast kostur á að tjá sig um störf og til­lögur hóps­ins á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda þegar þær liggja fyrir. Starfs­hóp­ur­inn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráð­herra til­lögum sínum fyrir 1. júní,“ segir í til­kynn­ingu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Þar er jafn­framt tekið fram að verk­efni starfs­hóps­ins séu með öllu aðskilin rann­sókn Mat­væla­stofn­unar, sem rann­sakar um þessar mundir meint alvar­leg brot á vel­ferð blóð­töku­hryssa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár