Síldarvinnslan og félag í meirihlutaeigu Samherja fengu milljónir úr Matvælasjóði

Vel á sjötta hund­rað millj­óna var úthlutað úr Mat­væla­sjóði fyrr í mán­uð­inum. Stór fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi á borð við Síld­ar­vinnsl­una og Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur á meðal styrk­þega.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthlutaði úr Matvælasjóði í liðinni viku.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra úthlut­aði úr Mat­væla­sjóði í lið­inni viku. Mynd: Bára Huld Beck

Síld­ar­vinnslan fékk tæp­lega 19,1 milljón króna styrk úr Mat­væla­sjóði vegna verk­efn­is­ins Rauða Gullið en úthlutað var úr sjóðnum fyrr í þessum mán­uði. Styrkur Síld­ar­vinnsl­unnar kemur úr þeirri deild Mat­væla­sjóðs sem nefn­ist Afurð og er hlut­verk Afurðar að styrkja verk­efni sem komin eru af hug­mynda­stigi en eru þó ekki enni til­búin til mark­aðs­setn­ingar. „Styrk­veit­ingar miða að því að gefa styrk­þegum tæki­færi til að móta og þróa afurðir úr hrá­efnum sem falla til við mat­væla­fram­leiðslu og stuðla þar með að verð­mæta­sköpun,“ segir um Afurð á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Alls hlutu sjö verk­efni styrk úr Afurð og námu styrk­veit­ing­arnar alls tæpum 110 millj­ónum króna. Hámarks­styrkur í þessum flokki Mat­væla­sjóðs nemur 30 millj­ónum króna og getur lengd verk­efna að hámarki orðið 12 mán­uðir. Hæsta styrk­inn úr afurð hlaut Royal Iceland hf., 25,5 millj­ónir króna, fyrir verk­efni sem snýr að full­vinnslu grjót­krabba.

15 milljóna styrkur til Útgerðarfélags Reykjavíkur

Annað félag sem hlaut styrk úr Afurð er Slipp­ur­inn Akureyri sem fékk rúm­lega 10 milljón króna styrk vegna verk­efnis sem ber heitið Sjáv­ar­lón. Slipp­ur­inn er að meiri­hluta í eigu Samherja í gegnum félagið Ice Tech ehf, sem á rúm­lega 71 pró­senta hlut í Slippnum.

Samherji er auk þess stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar, með um 32,6 pró­senta beinan eign­ar­hlut, en Síld­ar­vinnslan var skráð á markað fyrr á þessu ári. Þar að auki á Samherji 15 pró­senta eign­ar­hlut í Eign­ar­halds­fé­lag­inu Snæfugli sem á 4,29 pró­sent af hlutafé Síld­ar­vinnsl­unnar.

Meðal ann­arra styrk­þega í úthlutun Mat­væla­sjóðs var Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur (ÚR) sem fékk rétt tæp­lega 15 milljón króna styrk úr flokknum Keldu vegna verk­efn­is­ins CRISP-FISH. Alls var rúm­lega 261 milljón króna úthlutað úr Keldu til 20 verk­efna.

Tæplega 570 milljónir til 64 verkefna

Mat­væla­sjóður skipt­ist í fjórar deildir en auk Keldu og Afurðar eru flokk­arnir Bára og Fjár­sjóður. Í flokknum Báru eru verk­efni á hug­mynda­stigi styrkt og geta fyr­ir­tæki sem stofnuð voru á síð­ustu fimm árum sótt um styrk, „sem og frum­kvöðlar sem vilja þróa hug­mynd, hrá­efni eða aðferðir sem tengj­ast íslenskri mat­væla­fram­leiðslu.“ Úr Báru var um 81 milljón króna úthlutað til 29 verk­efna.

Styrkir úr Fjár­sjóði eru ætl­aðir verk­efnum sem hafa það að mark­miði að styrkja mark­aðsinn­viði og stuðla að mark­aðs­sókn afurða tengdum íslenskri mat­væla­fram­leiðslu. Tæpum 115 millj­ónum króna var úthlutað til 8 verk­efna úr Fjár­sjóði.

Alls námu úthlut­anir úr Mat­væla­sjóði 566,6 millj­ónum og runnu þær til 64 verk­efna. 273 umsóknir um styrki bár­ust sjóðnum í ár. „Fjögur fagráð voru stjórn sjóðs­ins til ráð­gjafar, eitt í hverjum styrkja­flokki, og skil­uðu þau til stjórnar for­gangs­röðun verk­efna eftir ein­kunnum ásamt umsögnum um hvert verk­efni fyrir sig. Stjórn Mat­væla­sjóðs skil­aði til­lögum til ráð­herra hinn 3. sept­em­ber sl. og hefur ráð­herra fall­ist á þær,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Í stjórn Mat­væla­sjóðs eru Margrét Hólm Vals­dóttir, for­maður, Karl Frí­manns­son, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, sam­kvæmt til­nefn­ingu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, og Gunnar Þor­geirs­son, sam­kvæmt til­nefn­ingu Bænda­sam­taka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár