Blóðmerahópur lýkur störfum – Svandís setur reglugerð um starfsemina til þriggja ára

Starfs­hópur um blóð­mera­hald hefur lokið störfum og mun Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra setja reglu­gerð sem heim­ilar blóð­mera­hald með auknum skil­yrðum til þriggja ára. Samhliða á að velta upp sið­ferði­legum álita­málum og leggja mat á fram­haldið.

Starfs­hópur sem Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra skip­aði til þess að skoða starf­semi, reglu­verk, eft­ir­lit og lög­gjöf varð­andi blóð­mera­hald á Íslandi komst að þeirri nið­ur­stöðu í skýrslu sinni að lagaum­gjörðin um blóð­töku úr fyl­fullum hryssum væri „afar óljós“ og „ekki við­un­andi“. Hópurinn mælti með því að ráð­herra myndi setja reglu­gerð um starf­sem­ina og það ætlar ráð­herra að gera, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá mat­væla­ráðu­neyt­inu.

Stefnan í þessum málum er nú sú að leyfa starf­sem­ina áfram á breyttum for­sendum, en ekki banna hana. Að minnsta kosti í þrjú ár – en reglu­gerð ráð­herra á að gilda í þrjú ár og mun sá tími verða nýttur til þess að leggja mat á fram­tíð starf­sem­innar. Samkvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins telur ráð­herra rétt að „efna til sér­stakrar umfjöll­unar um sið­ferði­leg álita­mál tengd starf­sem­inni“ sam­hliða þessu.

Ekki hægt að banna blóðmerahald á grundvelli dýravelferðarlaga

Samkvæmt starfs­hópnum er ekki hægt að banna blóð­mera­hald á grund­velli núver­andi laga um vel­ferð dýra – og jafn­framt kemur fram að ef banna ætti starf­sem­ina á grund­velli dýra­vel­ferðar þyrfti að líta til jafn­ræðis á milli mis­mun­andi dýra­halds í atvinnu­skyni, en starfs­hóp­ur­inn fór ekki í slíkan sam­an­burð. Auk þess þyrftu að koma til sterk­ari mál­efna­leg sjón­ar­mið, byggð á mögu­legum breyt­ingum á nið­ur­stöðum eft­ir­lits og rann­sókna.

[adspot]

Í skýrslu hóps­ins segir þó að annar mögu­leiki væri að banna starf­sem­ina á grund­velli óbeinna efna­hags­legra hags­muna, s.s. ímyndar íslenska hests­ins og hugs­an­legra nei­kvæðra áhrifa á hesta­tengda starf­semi í land­inu. Fram kemur að þó væri erfitt að mæla eða sýna fram á slík áhrif, en það væri þó óhjá­kvæmi­legt að gera það áður en ákvörðun yrði tekin um með til­liti til slíkra sjón­ar­miða.

Hert skilyrði og óháð eftirlit með blóðbúskap

Samkvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins á reglu­gerð ráð­herra um blóð­mera­haldið að gilda til þriggja ára. Í henni verður skýrt kveðið á um hvaða skil­yrði starf­semin þurfi að upp­fylla og jafn­framt að starf­semin sé leyf­is­skyld.

„Með setn­ingu slíkrar reglu­gerðar yrði hin óljósa rétt­ar­staða þess­arar starf­semi færð til betri vegar. Gild­is­tími reglu­gerð­ar­innar verður nýttur til að fylgj­ast með fram­kvæmd starf­sem­innar og leggja mat á fram­tíð hennar,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Reglu­gerðin á að byggja á sömu skil­yrðum og Mat­væla­stofnun setur nú um blóð­mera­hald, en starfs­hóp­ur­inn leggur einnig til að þau verði hert og ítar­legri ákvæði sett um aðbúnað og aðstöðu, eft­ir­lit með ástandi hrossa varð­andi heil­brigði, hóf­hirðu og skap­gerð­ar­mat, vinnu­að­ferðir við blóð­tök­una sjálfa og um innra og ytra eft­ir­lit með henni. Einnig taldi starfs­hóp­ur­inn nauð­syn­legt að óháður aðili, eins og til dæmis Til­rauna­stöðin á Keldum, sann­reyndi mæl­ingar á blóð­bú­skap blóð­töku­mera, að minnsta kosti tíma­bundið.[links]

Starfshópur skipaður eftir að myndbönd af illri meðferð dýra birtust

Starfs­hóp­ur­inn sem nú hefur lokið störfum var skip­aður í upp­hafi árs­ins, í kjöl­far þess að evr­ópsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök mynd­skeið af slæmri með­ferð hrossa á YouTube undir lok síð­asta árs. Það mál er til rann­sóknar hjá lög­reglu.

Ráð­herra kall­aði eftir til­nefn­ingum í starfs­hóp­inn frá Mat­væla­stofnun og Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Iðunn Guð­jóns­dótt­ir, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu er for­maður hóps­ins, en hún var skipuð af ráð­herra án til­nefn­ing­ar. Einnig sátu í hópnum þau Sig­ríður Björns­dótt­ir, yfir­dýra­læknir í hrossa­sjúk­dómum hjá Mat­væla­stofn­un og Ólafur Páll Jóns­son, pró­fessor í heim­speki við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár