Áfram má taka 40 lítra af blóði úr hverri hryssu

Hver dýra­læknir má nú ekki taka blóð úr fleiri en þremur hryssum sam­tímis sam­kvæmt end­ur­skoð­uðum skil­yrðum MAST vegna blóð­töku úr fyl­fullum hryssum. Blóð­mera­hald stang­ast ekki á við lög um dýra­vel­ferð, segir stofn­unin.

Yfir 5.000 merar voru notaðar til blóðtöku hér á landi í fyrra.
Yfir 5.000 merar voru not­aðar til blóð­töku hér á landi í fyrra. Mynd: Pexels

Í end­ur­skoð­uðum starfs­skil­yrðum Mat­væla­stofn­unar vegna blóð­töku úr fyl­fullum hryssum eru m.a. þær breyt­ingar að hver dýra­læknir má nú ekki hafa fleiri en þrjár hryssur í blóð­töku sam­tímis í stað fjög­urra áður og að ekki skulu vera fleiri en 70 hryssur með folöldum, en ekki 100, í hverjum blóð­töku­hópi. Áfram er heim­ilt að taka allt að 5 lítra af blóði viku­lega úr hverri hryssu á átta vikna tíma­bili, sam­tals fjöru­tíu lítra.

Blóð­mera­hald, eins og sú starf­semi er kölluð þar sem hross eru haldin sér­stak­lega til blóð­töku til frjó­sem­is­lyfja­fram­leiðslu fyrir búfénað, hefur sætt harðri gagn­rýni frá því í vetur er þýsk dýra­vel­ferð­ar­sam­tök birtu mynd­band sem sýndi hrotta­lega með­ferð á hryssum sem not­aðar voru í iðn­að­inum hér á landi. Þær voru barðar, fjötraðar og þjáðar því þeim var ekki veitt aðstoð vegna alvar­legra áverka. Mat­væla­stofnun, sem hefur eft­ir­lit með þess­ari leyf­is­skyldu starf­semi, fór ekki var­hluta af gagn­rýn­inni.

[links]

Í nýrri skýrslu MAST er þess­ari gagn­rýni svarað og nið­ur­staðan sú að þrátt fyrir að „alvar­leg frá­vik við með­ferð hryssna“ sem sáust á mynd­bandi dýra­vel­ferð­ar­sam­tak­anna kalli á við­brögð og við­bætur við skil­yrði sem sett eru blóð­mera­haldi hafi eft­ir­lit með starf­sem­inni verið gott og ítar­legt. „Frávik“ þau sem sáust í mynd­band­inu hafi ekki sést við eft­ir­lit stofn­un­ar­innar sem bendi til þess að þau séu „fremur fátíð“ og ætla megi að eft­ir­litið sem slíkt hafi „fæl­ing­ar­mátt gagn­vart illri með­ferð“.

Engu að síður telur stofn­unin til­efni til að auka eft­ir­lit með blóð­tök­unni. Engar vís­bend­ingar séu hins vegar um að blóð­magnið sem tekið er úr hinum fyl­fullu merum sé of mikið líkt og tveir sviss­neskir dýra­læknir héldu fram í aðsendri grein sem birt­ist í Kjarn­anum.

Heild­ar­nið­ur­staða Mat­væla­stofn­unar er:

„Það er mat Mat­væla­stofn­unar að blóð­taka úr fyl­fullum hryssum, eins og hún á að vera fram­kvæmd hér á landi skv. lögum, reglu­gerðum og skil­yrðum Mat­væla­stofn­unar, stang­ist ekki á við lög nr. 55/2013 um vel­ferð dýra.“

[adspot]

Eins og hún „á að vera“. Ekki er hægt að hafa fullt og stöðugt eft­ir­lit með öllum þeim 119 hrossa­búum þar sem blóð­merar eru haldnar og mikið traust því lagt á það fólk sem iðn­að­inn stundar. Tíðni eft­ir­lits með blóð­töku­bæjum er þó mun hærra en í öðru hrossa­haldi, segir MAST, og að minna sé þar um „alvar­leg frá­vik“ en á öðrum hrossa­búum.

Vanhöld á 13 prósent bæja

Reyndar fara dýra­læknar oft í eft­ir­lits­ferðir í kjöl­far ábend­inga sem gæti skýrt af hverju „alvar­leg frá­vik“ voru greind á yfir þrettán pró­sent staða þar sem hross eru haldin á tíma­bil­inu 2017-2020. Þau eru því tíð almennt en sjald­gæfari á blóð­töku­bæjum.

„Alvarleg frá­vik“ eiga oft­ast við um van­fóðrun ein­stakra hrossa eða hrossa­hópa, sjúk hross eða van­hirt. Offita og efna­skipt­arask­anir eru vax­andi vanda­mál og þar af leið­andi krónísk hóf­sperra sem er eitt helsta dýra­vel­ferð­ar­mál sam­tím­ans. Þá er sífellt meira um að gömul hross séu ekki felld í tíma. „Aðbún­aður hrossa hefur almennt farið batn­andi en langvar­andi inni­staða er þó vel­ferð­ar­þáttur sem sífellt meira reynir á,“ stendur í skýrslu MAST.

Í nokkur skipti hafa komið fram í dags­ljósið „alvar­leg frá­vik“ vegna illar með­ferðar við tamn­ingu eða þjálfun hrossa og sömu­leiðis vegna álagsein­kenna og/eða ófull­nægj­andi aðbún­aðar hrossa í hesta­leigum og reið­skólum.

Refsingum sjaldan beitt

Fremur sjald­gæft er að stofn­unin grípi til þving­un­ar­að­gerða svo sem dag­sekta eða vörslu­svipt­ingar „þar sem alla jafna tekst að leysa úr málum með öðrum hætti,“ segir í skýrsl­unni. Þá eru stjórn­sýslu­sektir og kærur til lög­reglu einnig fremur fátíðar. „Alvarleg frá­vik sem koma fram á blóð­töku­bæjum hafa hins vegar meiri afleið­ingar þar sem þau leiða sjálf­krafa til stöðv­unar á þeirri starf­semi.“

Líkt og Kjarninn greindi frá í upp­hafi árs og farið er yfir í skýrsl­unni hefur starf­semi tvisvar sinnum verið stöðvuð á blóð­töku­bæjum í kjöl­far ábend­inga. Annars vegar var um að ræða ábend­ingu frá nágranna sem leiddi í ljós „alvar­legt frá­vik“ við fóðrun og aðbúnað blóð­töku­hryssa að vetri og hins vegar var blóð­taka stöðvuð á blóð­töku­stað eftir ábend­ingu frá dýra­lækni um að í við­kom­andi hjörð væri tölu­vert um of grannar hryssur sem ekki upp­fylltu skil­yrði fyrir blóð­töku. Bæði þessi mál komu upp árið 2018.

Önnur alvar­leg frá­vik hafa upp­götvast við reglu­bundið, áhættu­miðað eft­ir­lit Mat­væla­stofn­unar með fóðrun og aðbún­aði blóð­töku­stóða að vetr­ar­lagi og/eða vori. Um var að ræða tvo bæi árið 2017, þrjá bæi árið 2019 og einn árið 2020. Samtals hefur blóð­töku verið hætt á átta bæjum síð­ast­liðin 5 ár vegna „alvar­legra frá­vika“ við fóðrun og aðbúnað blóð­töku­hryssna.

[adspot]

Þeirri gagn­rýni um að of mikið blóð sé tekið úr hryss­unum, svarar Mat­væla­stofnun m.a. með því að vísa í gögn frá Ísteka, fyr­ir­tæk­inu sem kaupir blóðið og fram­leiðir frjó­sem­is­lyfin úr því, sem og í rann­sóknir, bæði inn­lendar og erlendar. Þessar rann­sóknir eru flestar gamlar, sú elsta frá árinu 1984 og við­ur­kennir MAST að engin við­mið­un­ar­gildi um styrk próteins­ins blóð­rauða, sem not­aður er til að mæla blóð­heilsu hesta, séu til fyrir fyl­fullar íslenskar hryssur. Þetta á að mati stofn­un­ar­innar ekki að koma að sök enda nokkrar rann­sóknir verið gerðar á styrk blóð­rauða í íslenskum hrossum og hrossum almennt.

Samkvæmt mæl­ingum Ísteka eru hryss­urnar til­tölu­lega háar í blóð­rauða við upp­haf blóð­töku­tíma­bils. Með­al­styrkur þess lækkar svo við fyrstu 2-3 blóð­tök­urnar en helst „nokkuð stöð­ugur“ eftir það. „Þetta bendir til þess að það taki hryss­urnar um tvær vikur að bregð­ast við blóð­tap­inu með auk­inni blóð­myndun enda er bæði vatn og gras mjög járn­ríkt hér á landi,“ stendur í skýrslu MAST. „Ekkert bendir til þess að þessi lækkun á blóð­rauða komi niður á líðan hryssnanna eða heil­brigði.“

Mat­væla­stofnun reiðir sig einnig á gögn frá Ísteka þegar kemur að því meta dauða - „afföll“ eins og það er orðað í skýrsl­unni – blóð­mera. Samkvæmt Ísteka hafa „afföllin“ verið um eða innan við 0,1 pró­sent ár hvert. „Flest afföllin eru rakin til slysa en af þeim sökum hefur þurft að aflífa 1-2 hryssur árlega á blóð­töku­tíma­bil­inu.“

Árið 2019 voru 5.036 merar not­aðar til blóð­töku hér á landi. Folöldum þeirra er alla jafna slátrað til kjöt­fram­leiðslu þótt sum séu notuð til undan­eldis til end­ur­nýj­unar í blóð­mera­haldi eða reið­hesta­rækt­unar.

Sjö slát­ur­hús á land­inu taka við folöldum til slátr­unar. Ekki er sér­stak­lega skráð hvort folöldin sem þangað eru flutt koma úr blóð­töku­stóðum en með aukn­ingu þeirrar starf­semi á síð­ustu árum má ætla að sífellt stærra hlut­fall þeirra sé undan hryssum sem not­aðar hafa verið til blóð­töku.

Á síð­asta ári var 5.402 folöldum slátrað í slát­ur­hús­unum sjö.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár