Áformuð reglugerð „grímulaus aðför“ að blóðmerahaldi

Búgreinin blóð­mera­hald varð fyrir „ímynd­ar­á­falli“ í fyrra en ef lyfja­efnið sem fram­leitt er úr blóð­inu myndi hverfa úr heim­inum yrðu áhrifin af stærð­argráðu „sem fæstir Íslend­ingar gera sér grein fyrir“.

Um 5.400 merar hér á landi eru notaðar til blóðtöku til framleiðslu á frjósemislyfi til annarrar ræktunar á búfé til manneldis.
Um 5.400 merar hér á landi eru not­aðar til blóð­töku til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfi til ann­arrar rækt­unar á búfé til mann­eldis. Mynd: Anton Brink

„Ekki má hugsa þá hugsun til enda að eCG hverfi úr notkun,“ segir Arnþór Guð­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri Ísteka, um horm­ónið sem fyr­ir­tækið vinnur úr blóði fyl­fullra mera. „Þá væri skömm okkar Íslend­inga mikil og vand­séð að við eigum kosti hér á landi sem gætu unnið upp hinn gríð­ar­lega umhverf­is­skaða sem það ylli.“

Þessa dökku fram­tíð­ar­sýn dregur Arnþór upp í umsögn við drög mat­væla­ráðu­neyt­is­ins að reglu­gerð um blóð­töku úr fyl­fullum hryssum sem lagt var fram til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Ísteka er eina fyr­ir­tækið sem kaupir íslenska mer­ar­blóðið og vinnur úr því hormón sem notað er til að auka frjó­semi í eldi á dýrum, aðal­lega í svína­rækt, og því eru hags­munir fyr­ir­tæk­is­ins miklir og aug­ljósir þegar kemur að því að setja reglur um blóð­mera­hald.

Ísteka velti 1.733 millj­ónum króna á árinu 2020. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins fyrir skatta, að teknu til­liti til fjár­magnsliða, var 740 millj­ónir króna. Það þýðir að fyrir hverja krónu sem Ísteka þén­aði á árinu 2020 voru 43 aurar hagn­aður.
Hreinn hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins eftir skatta var 592 millj­ónir króna. Bæði velta og hagn­aður jókst frá árinu 2019. Ísteka greiddi hlut­höfum sínum út 300 millj­ónir króna í arð á árinu 2020 vegna frammi­stöðu á árinu á undan. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Hörður Krist­jáns­son með 44,5 pró­sent eign­ar­hlut en sá næst stærsti er félagið Klara ehf., sem er að uppi­stöðu (81,5 pró­sent) í eigu sama Harðar. Hólm­fríður H. Ein­ars­dóttir á 19,2 pró­sent hlut en tveir ein­stak­lingar eiga svo saman þau fjögur pró­sent sem upp á vantar.

[adspot]

Og Ísteka gerir ýmsar athuga­semdir við reglu­gerð­ar­drögin og leggur sér­staka áherslu á tvennt: Að áfram megi taka blóð úr hryssum í átta skipti á ári en ekki sex eins og lagt er til og hins vegar að kaup­anda, þ.e. Ísteka, verði skylt en ekki óheim­ilt, líkt og lagt er til í drög­unum, að flokka greiðslur vegna blóðs eftir því hversu miklar heimtur eru úr hverju hrossi. „Ef þessi tvö ákvæði yrðu að veru­leika munu þau koll­varpa tekju­mögu­leikum allra í grein­inni og stöðva fram­þróun hennar og gæða­stýr­ingu sem mun án efa bitna á dýra­vel­ferð,“ skrifar Arnþór. Reglu­gerðin myndi „þrengja veru­lega að ann­ars lög­mætri starf­semi í land­inu“ jafn­vel þannig að henni yrði „nán­ast sjálf­hætt“.

[links]Ísteka minnir í umsögn sinni á að „óðum stytt­ist í hálfrar aldar afmæli þess­arar búgreinar hér á landi“, greinar sem ætíð hafi verið stunduð á „vís­inda­legum og efna­hags­legum grund­velli með hag og vel­ferð dýra að leið­ar­ljósi“. Því verði þó ekki neitað að greinin, þ.e. blóð­taka úr fyl­fullum hryssum, hafi orðið fyrir „ímynd­ar­á­falli“ í vetur. Vísar fram­kvæmda­stjóri Ísteka þar til upp­ljóstrana erlendra dýra­vernd­un­ar­sam­taka sem sýndu í mynd­bandi dæmi um van­rækslu og gróft ofbeldi gegn hryssum. Ísteka kallar þetta í umsögn sinni „vís­bend­ingar um dýra­vel­ferð­ar­frá­vik“, að um ein­stök frá­vik en ekki kerf­is­lægan vanda sé að ræða.

Vilja áfram taka 40 lítra úr hverri meri

Samkvæmt reglu­gerð­ar­drög­unum mætti ekki taka meira en fimm lítra af blóði viku­lega úr hverri hryssu og að hámarki í sex vikur ár hvert. Sem sagt þrjá­tíu blóð­lítra sam­tals að hámarki í stað fjöru­tíu áður. Engin rök standi til þess­ara breyt­inga og „verði þessi ákvæði inn­leidd mun greinin og þar með starf­semi Ísteka verða í full­komnu upp­námi,“ segir í umsögn Ísteka.

Rúmmál afurða, þ.e. horm­óns­ins sem unnið er úr blóði mer­anna, myndi minnka um 13 pró­sent ef blóð­tökum yrði fækkað úr átta í sex. „Það segir þó ekki allt,“ bendir Ísteka á, þar sem blóð­magnið sé ekki mæli­kvarði á magn hrá­efnis. „Virkni blóð­ein­inga er mjög mis­mun­andi, þar sem 7 og 8 skipta hryssur eru með lang­mestu virkn­ina yrði minnkun á virku hrá­efni um 22% þegar áhrif af 7/8 skipta hryssum hafa fjarað út“.

Þyrftu að fjölga blóðmerum um 1.500

Til að ná sama magni hrá­efnis og árið 2021 þyrfti því að fjölga hryssum í blóð­töku um rúm­lega 1.500, úr tæp­lega 5.400 í um 6.900. „Þegar fjölga þarf hryssum svo mikið til að ná sama magni eykst álag á beit einnig að nauð­synja­lausu og ásókn í áburð, olíu, ræktað land og önnur aðföng.“

Gam­al­grónir bændur, líkt og það er orðað í umsögn Ísteka, hafa í ára- og ára­tugaraðir sett á folöld og valið hryssur til blóð­töku eftir „ein­stak­lings­fram­lagi“. Þetta hafi Ísteka ýtt undir með því að greiða hærra verð fyrir afurðir bænda eftir hækk­andi með­al­skipta­fjölda hryss­anna.

Óskiljanleg, manngerð lína

Rann­sóknir Ísteka á blóð­hag hryss­anna sýni að eng­inn munur er á blóð­mynd hryssa sem gefa oftar eða sjaldnar blóð og því „óskilj­an­legt hví ætti að teikna upp mann­gerða línu“ við sex skipti þegar gögnin sýni fram á að ekk­ert mæli á móti allt að átta. „Það að banna í reglu­gerð eðli­lega gæða­flokkun og -stýr­ingu í búgrein er grímu­laus aðför að búgrein­inni og algjör­lega á skjön við það sem tíðkast í öðrum búgreinum.“

Villandi orðræða og hvítt seyði

Ekkert efni sem þegar er til á mark­aði eða von er á svo vitað sé getur komið í stað „hinnar breiðu og langvar­andi virkni sem nátt­úru­legt eCG hefur,“ skrifar Arnþór. „Allt tal um annað er mjög vill­andi og sam­bæri­legt orð­ræðu þeirra sem vilja banna kúa­mjólk vegna þess að í stað hennar megi sjóða hvítt seyði af möndlum, höfrum, soja og öðrum plöntum.“

Hann skrifar líka að umhverf­is­legan ávinn­ing af notkun eCG-lyfja­efn­is­ins sem fram­leitt er hér á landi, megi heim­færa á yfir milljón tonna minni árlega fóð­ur­þörf í heim­inum. „Minnk­andi fram­leiðsla Ísteka á eCG eða algjör stöðvun hennar hefði umtals­verð nei­kvæð áhrif á vist­spor land­bún­aðar í þeim löndum þar sem lyfið er notað.“ Þá eigi eftir að taka til­lit til langra og dýrra flutn­inga fóð­urs, vinnu­stunda og áburð­ar­þarfar og svo mætti áfram telja. Sam­an­tekið séu „jákvæð áhrif notk­unar eCG á vistsporið í land­bún­aði í öllu til­liti risa­vaxin“.

[adspot]

Ef aðgengi að eCG-sam­eind­inni myndi skerð­ast eða hverfa í heim­inum, skrifar Arnþór, yrði það „umhverf­is­legt stór­slys“ og áhrifin af stærð­argráðu „sem fæstir Íslend­ingar gera sér grein fyrir“. Á hann þar við nýt­ingu efn­is­ins til rækt­unar dýra til matar.

Leggist greinin af hér­lendis myndi það „ekki endi­lega“ tryggja betri vel­ferð hryssa í heim­inum. „Í stað þess að nýta hryssur á Íslandi sem búa við dýra­vel­ferð­ar­lög­gjöf sem flokk­ast með þeim betri í heimunum, eru líkur á að nýttar verði hryssur í öðrum heims­hlutum þar sem dýra­vel­ferð er e.t.v. ekki gert jafn hátt undir höfði.“

Í „orra­hríð sein­ustu mán­aða“ hafi ýmsum „mátt­lausum rök­leysum“ verið haldið á lofti gegn þess­ari fram­leiðslu sem til­tölu­lega fáir bændur á Íslandi stundi og Ísteka sinni. „Margir stórir aðilar hafa risið upp á aft­ur­fæt­urna í gagn­rýni á búgrein­ina og telja til hin ýmsu nei­kvæðu áhrif sem til­vist hennar á að hafa á þá,“ skrifar fram­kvæmda­stjór­inn Arnþór. Það hafi „skilj­an­lega“ áhrif á ráða­menn þegar „atkvæða­miklir aðilar“ fari fram með slíkum hætti. „Í öllum til­fellum hafa rökin fyrir gagn­rýn­inni þó ekki rist dýpra en svo að engin mark­tæk gögn liggja til grund­vallar ávirð­ing­unum.“

Arnþór segir mik­il­vægt að ráða­menn þjóð­ar­innar og stofn­anir sem þeir stýra hafi „burði til þess að hefja sig yfir slíkan mál­flutn­ing og byggja ákvarð­anir sínar á bestu fáan­legum gögnum um við­kom­andi mál og hafi alltaf jafn­ræði, sann­girni og sann­leika að leið­ar­ljósi og beiti valdi sínu því af með­al­hófi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár