Yfir fimm þúsund hryssur notaðar í blóðmerahald á síðasta ári

Hægt er að vinna hormón úr blóði hryssa á ákveðnu tíma­bili með­göngu og vinna úr því frjó­sem­is­lyf. Hesta­hald þar sem fram­kvæmd er blóð­taka úr hrossum til fram­leiðslu afurða var stundað á vegum 95 aðila árið 2019.

Alls voru 5.036 hryssur not­aðar í blóð­mera­hald árið 2019. Folöldum hryss­anna er alla jafna slátrað til kjöt­fram­leiðslu eða þau sett á til end­ur­nýj­unar. Sum þeirra eru nýtt til reið­hesta­rækt­unar.

Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Ágústi Ólafi Ágústs­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, um blóð­mera­hald.

Hormón í blóði notað í frjósemislyf

[links]Blóð­bera­hald kall­ast það þegar fyl­fullar hryssur fram­leiða sér­stakt hormón í fylgj­unni á fyrri hluta með­göngu, eða á 40. til 120. degi. Hormónið hefur það hlut­verk að við­halda með­göngu með því að örva starf­semi eggja­stokka og fjölga gul­búum.

Hægt er að vinna horm­ónið úr blóði hryssa á þessu til­tekna tíma­bili með­göng­unnar og vinna úr því frjó­sem­is­lyf. Það er einna helst notað til að sam­stilla gang­mál dýra, mest í svína­rækt. Frjó­sem­is­lyfið er notað út um allan heim, en í hverf­andi magni á Íslandi. Hryssu­blóði hefur verið safnað úr fyl­fullum hryssum í kjöt­fram­leiðslu hér á landi í um 40 ár, segir í svari Krist­jáns Þórs.

[adspot]

Samkvæmt svari ráð­herra og upp­lýs­ingum frá Mat­væla­stofnun var hesta­hald, þar sem fram­kvæmd er blóð­taka úr hrossum til fram­leiðslu afurða, stundað á vegum 95 aðila árið 2019. Ráðu­neytið hafi aftur á móti ekki upp­lýs­ingar um veltu ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem stunda blóð­mera­hald.

Alvarlegar athugasemdir gerðar á 3 bæjum

Ágúst Ólafur spurði jafn­framt hvernig blóð­mera­hald upp­fylli laga­á­kvæði um dýra­vernd og við hvaða rétt­ar­heim­ild sé stuðst. Í svari ráð­herra kemur fram að um blóð­mera­hald gildi lög um vel­ferð dýra og reglu­gerð um vel­ferð hrossa.

„Mat­væla­stofnun ann­ast eft­ir­lit með fram­kvæmd lag­anna og reglu­gerð­ar­innar og hefur eft­ir­lit með því að ákvæðum þeirra sé fylgt. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Mat­væla­stofnun hafa síð­ustu þrjú ár verið gerðar alvar­legar athuga­semdir á þremur bæjum sem tengj­ast blóð­mera­haldi og var blóð­mera­haldi þá hætt á við­kom­andi bæjum.“

Þing­mað­ur­inn spurði í síð­asta lagi í hvaða Evr­ópu­ríkjum blóð­mera­hald hafi verið aflagt en sam­kvæmt svar­inu hefur ráðu­neytið ekki upp­lýs­ingar um blóð­mera­hald í öðrum ríkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár