Gefa út starfsleyfi fyrir Ísteka að Eirhöfða

Engar athuga­semdir bár­ust við aug­lýs­ingu á starfs­leyfis­til­lögu Ísteka, fyr­ir­tækis sem fram­leiðir horm­óna­lyf fyrir búfénað úr mer­ar­blóði. Fyr­ir­tæk­inu er heim­ilt að vinna lyf úr allt að 600 tonnum af blóði á ári.

Blóð sem tekið er úr hundruðum hryssa hér á landi er notað til framleiðslu á frjósemislyfi fyrir húsdýr.
Blóð sem tekið er úr hund­ruðum hryssa hér á landi er notað til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfi fyrir hús­dýr. Mynd: Pexels

Umhverf­is­stofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfs­leyfi Ísteka ehf. fyrir starfs­stöð á Eirhöfða 13 og 15 í Reykja­vík. Ísteka fram­leiðir horm­óna­lyf sem notuð eru í búfjár­rækt úr blóði sem tekið er úr fyl­fullum hryssum.

Starfs­leyfis­til­lagan var aug­lýst á vef­síðu Umhverf­is­stofn­unar 28. febr­úar til 28. mars síð­ast­lið­inn. Starf­semin sem um ræðir er nátengd starf­semi Ísteka að Grens­ás­vegi 8, segir í frétt á vef stofn­un­ar­innar, og felur hið nýja leyfi ekki í sér útvíkkun á þeirri starf­semi. Tekið er sér­stak­lega fram í leyf­inu að starf­semin að Eirhöfða skuli rúm­ast innan þeirra heim­ilda er koma fram í nýlega útgefnu starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins að Grens­ás­vegi. Samkvæmt því er Ísteka heim­ilt að fram­leiða lyf úr allt að 600 tonnum af blóði hryssa á hverju ári. Úr þessu blóð­magni eru fram­leidd 20 kíló af lyfja­efni.

[adspot]

Í fyrra var fyr­ir­tæk­inu heim­ilt að fram­leiða helm­ingi minna magn, eða tíu kíló á lyfja­efni á ári, lyfi sem er fyrst og fremst notað að auka frjó­semi svína og fleiri hús­dýra í land­bún­aði, líkt og Kjarninn fjall­aði ítar­lega um er Ísteka gerði grein fyrir fyr­ir­hug­aðri fram­leiðslu­aukn­ingu í til­kynn­ingu til Skipu­lags­stofn­unar.

Starfs­leyfið nær ekki til öfl­unar blóðs, segir í frétt Umhverf­is­stofn­unar, heldur felur það í sér skil­yrði um stjórnun á losun meng­un­ar­efna og vöktun. Mat­væla­stofnun er með eft­ir­lit með lögum um dýra­vel­ferð.

[links]„Talið var nauð­syn­legt að aðgreina starf­sem­ina og gefa út tvö starfs­leyfi í stað eins vegna ákvæða aðal­skipu­lags Reykja­vík­ur­borgar,“ segir í frétt Umhverf­is­stofn­unar um ástæður þess að tvö starfs­leyfi hafa nú verið gefin út á starf­semi Ísteka.

Leyf­is­skyld starf­semi er að því er fram kemur í frétt­inni „víkj­andi“ á Eirhöfða þegar litið er til lengri tíma og er ekki hægt að veita leyfi þar nema að hámarki til sex ára sam­kvæmt áliti borg­ar­innar eða til árs­ins 2028. Engar umsagnir bár­ust á aug­lýs­inga­tíma.

Starfs­leyfi Ísteka ehf. á Grens­ás­vegi gildir hins vegar til árs­ins 2038. Þegar það var aug­lýst í lok síð­asta árs bár­ust umsagnir og athuga­semdir frá 237 aðilum. End­ur­nýjað starfs­leyfi fyrir Grens­ás­veg var gefið út í jan­úar.

[adspot]

Fyr­ir­tækið Ísteka hefur sætt harðri gagn­rýni síð­ustu mán­uði eftir að upp­ljóstrað var um skelfi­lega með­ferð á hryssum sem not­aðar eru til blóð­tök­unnar í þætti sem þýsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök birtu í nóv­em­ber. Mat­væla­stofnun gerði eigin rann­sókn á mál­inu, sem snerti fleiri en einn bæ, og var því að henni lok­inni vísað til lög­reglu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem blóð­mera­hald hér á landi er gagn­rýnt. Kjarninn greindi frá því í febr­úar að á fimm ára tíma­bili hafi blóð­töku fyl­fullra hryssa verið hætt á átta bæjum vegna van­fóðr­unar og slæms aðbún­aðar dýr­anna. Að auki hafa þrír blóð­mera­bændur á sama tíma­bili ákveðið að hætta blóð­töku vegna væg­ari athuga­semda Mat­væla­stofn­unar.

Ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar um útgáfu starfs­leyfis er kær­an­leg til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála innan eins mán­aðar frá birt­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár