N1 reiknar með því að útskýra rafmagnsendurgreiðslur betur eftir helgi

N1 Rafmagn, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, hefur verið orku­sali til þrauta­vara frá 1. júní 2020. Fyr­ir­tækið hefur ekki útskýrt hvers vegna það hyggst ein­ungis end­ur­greiða neyt­endum mis­mun tveggja taxta frá 1. nóv­em­ber 2021.

N1 Rafmagn er dótturfélag N1, sem er eitt dótturfélaga Festi hf., sem er að uppistöðu í eigu íslenskra lífeyrissjóða.
N1 Rafmagn er dótt­ur­fé­lag N1, sem er eitt dótt­ur­fé­laga Festi hf., sem er að uppi­stöðu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

N1 Rafmagn, sem í gær sendi frá sér yfir­lýs­ingu eftir að hafa sætt gagn­rýni bæði sam­keppn­is­að­ila og neyt­enda fyrir að vera með tvö­falda og ógagn­sæa verð­lagn­ingu á raf­magni, hefur ekki útskýrt hvers vegna fyr­ir­tækið ætlar ein­ungis að end­ur­greiða neyt­endum mis­mun­inn á raf­magn­s­töxt­unum tveimur frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Í svari til Kjarnans kemur fram að fyr­ir­tækið sé að fara betur yfir málið og svara um þetta atriði megi vænta í næstu viku.

Fyr­ir­tækið, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, hefur verið útnefnt af Orku­stofnun sem sölu­að­ili á raf­magni til þrauta­vara allt frá 1. júní árið 2020, eins og Hinrik Örn Bjarna­son fram­kvæmda­stjóri hjá N1 nefndi í grein sem birt­ist á Vísi þann 19. jan­úar.

[adspot]

Í sömu grein sagði Hinrik að skömmu síðar hefði komið í ljós að erfitt væri að gera ráð fyrir þrauta­vara­við­skipt­unum við inn­kaup á raf­orku, þar sem fjöldi við­skipta­vina væri óþekkt stærð á hverjum tíma fyrir sig.

[box]

„Leiddi það til þess að N1 Rafmagn þurfti að jafn­aði að kaupa raf­orku fyrir þessa ein­stak­linga á skamm­tíma­mark­aði og jafn­vel jöfn­un­ar­mark­aði. Á þeim mörk­uðum eru verð hærri og hefur fyr­ir­tækið því neyðst til að rukka þrauta­vara­við­skipta­vini í sam­ræmi við það, því ann­ars væri tap á við­skipt­unum,“ skrif­aði Hinrik Örn og því má álykta að Íslensk orku­miðlun/N1 Rafmagn hafi verið með tvö­faldan taxta á raf­orku til neyt­enda allt frá sumr­inu 2020.

Kjarninn beindi spurn­ingum til fyr­ir­tæk­is­ins í morgun og óskaði eftir útskýr­ingum á því af hverju fyr­ir­tækið hefði í yfir­lýs­ingu sinni ákveðið að binda sig við að end­ur­greiða ein­ungis frá 1. nóv­em­ber.

Í svari sem barst frá Þyrí Dröfn Kon­ráðs­dóttur, for­stöðu­manni mark­aðs­sviðs N1, segir að fyr­ir­tækið sé að „fara betur yfir málið“ og að ein­hver svör ættu að ber­ast til blaða­manns hvað þetta varða „fljót­lega eftir helgi.“

Í yfir­lýs­ing­unni frá N1 Rafmagni síðan í gær­kvöldi sagði meðal ann­ars frá því að ákveðið hefði verið að selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta frá 1. jan­úar 2022, hvort sem við­skipta­vinir hefðu skráð sig í við­skipti hjá félag­inu eða kæmu óaf­vit­andi í við­skipti í gegnum þrauta­vara­leið stjórn­valda.

„Jafn­framt hefur verið ákveðið að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum þegar félagið var valið af Orku­stofnun til að sinna þessu hlut­verki. Við störfum á neyt­enda­mark­aði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur ber­ast og biðj­umst vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr. Aldrei var ætl­unin að blekkja neyt­endur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neyt­endur túlka það svo,“ en yfir­lýs­ingin var und­ir­rituð af Hinriki Erni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár