20 prósent allrar losunar frá matvælaiðnaði er vegna flutninga

Matvæli eru flutt heims­horna á milli með skipum, flug­vélum og með flutn­inga­bílum. Þetta losar sam­an­lagt mikil ósköp af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. Losunin er lang­mest meðal efna­meiri ríkja.

Gámastæður á hafnarbakka í Þýskalandi.
Gáma­stæður á hafn­ar­bakka í Þýska­landi. Mynd: EPA

Kolefn­is­spor mat­væla­fram­leiðslu er sífellt að verða greini­legra með nýjum rann­sóknum. Og það er dýpra en áður var talið. Marg­vís­leg losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður við fram­leiðslu á mat­vælum hvers konar, s.s. vegna þess að til fram­leiðsl­unnar er brotið land og búfén­aður losar sitt. Talið er að um þriðj­ungur los­un­ar­innar komi frá ræktun, vinnslu og pökkun mat­væla en flutn­ingur þeirra innan landa og á milli hefur hingað til verið van­met­inn, segja vís­inda­menn sem birt hafa nýja rann­sókn um málið í Nature Food, riti sem heyrir undir sam­steypuna sem gefur út vís­inda­tíma­ritið Nature. Samkvæmt rann­sókn­inni er um 20 pró­sent allrar los­unar í mat­væla­iðn­aði vegna flutn­inga – mun hærra hlut­fall en áður var talið.

[adspot]

Mat­væla­iðn­að­ur­inn er flókið fyr­ir­bæri og það hefur reynst þrautin þyngri að mæla beina losun frá honum, ekki síst þá sem rekja má til flutn­inga mat­vara. Hingað til hafa flestar rann­sóknir mælt losun vegna flutn­ings ákveð­innar vöru, s.s. súkkulaði­stykkis, allt frá verk­smiðj­unni og í búð­ina eða heim til neyt­and­ans. En þá hefur verið horft fram hjá losun sem til­komin er vegna flutn­inga á hrá­efnum jafn­vel þvert yfir hnött­inn.

Mengyu Li við Háskól­ann í Sydney og sam­starfs­menn hennar vildu ná utan um flutn­ing­ana í heild. Þau söfn­uðu gögnum frá 74 löndum og svæðum, könn­uðu upp­runa hrá­efna mat­væla og kort­lögðu flutn­inga á þeim frá einum stað til ann­ars. Nið­ur­staðan: Flutn­ingur á mat sam­svar­aði losun þriggja gígatonna kolefnis (eitt gígatonn er millj­arður tonna) út í and­rúms­loftið árið 2017. Það er um 7,5 sinnum meira en áður var talið.

Efnaðri þjóðir heims bera ábyrgð á um helm­ingi allrar þess­arar los­unar þrátt fyrir að þar búi aðeins um 12 pró­sent mann­kyns. Efna­minni lönd bera ábyrgð á um 20 pró­sent af losun frá flutn­ingi mat­væla en í þessum löndum býr um helm­ingur mann­kyns.

Munurinn skýrist m.a. af því að efna­meiri ríki eru lík­legri en þau efna­minni til að flytja inn mat­væli frá öðrum löndum. Grænmeti, ávextir og fleiri mat­væli er svo oft haldið köldum eða frosnum á ferða­lag­inu sem eykur losun mikið. Flutn­ingur ávaxta og græn­metis er t.d. tal­inn losa tvö­falt meira en ræktun þess­ara sömu mat­væla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár