Skipar starfshóp sem á að binda í lög að ástandsskýrslur fylgi söluyfirlitum íbúða

Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra ætlar að skipa starfs­hóp sem á að móta frum­varp um ástands­skýrslur fast­eigna. Hann á að hafa hlið­sjón af þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem stjórn­ar­and­stöðu­flokkar lögðu fram á síð­asta kjör­tíma­bili, og var sam­þykkt þvert á flokka.

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir, hefur ákveðið að skipa starfs­hóp sem er ætlað að að útfæra laga­breyt­ingar sem tryggi að ástands­skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum allra fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar. Hópurinn á að hafa þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem átta stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn – sjö frá Pírötum og einn úr Flokki fólks­ins – lögðu fram á síð­asta kjör­tíma­bili og fengu sam­þykkta með atkvæðum þing­manna úr öllum stjórn­mála­flokkum sem áttu full­trúa á Alþingi utan Mið­flokks­ins, sem sat hjá við atkvæða­greiðsl­una.

Samkvæmt til­lög­unni eiga ástands­skýrslur að inni­halda grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um ástand fast­eignar og vera unnar af óháðu mats­fólki með víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. „Til þess að stuðla enn frekar að áreið­an­leika, trausti og sátt í fast­eigna­við­skiptum verður fram­kvæmd mats­ins og inni­halds ástands­skýrsln­anna sam­ræmt,“ sagði í til­kynn­ingu sem Píratar sendu frá sér þegar hún var sam­þykkt en Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins var fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unn­ar. Slíkum skýrslum er ætlað að auka traust í fast­eigna­við­skiptum en ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástands­skýrslum mun falla á mats­að­ila.

[adspot]Í til­lög­unni fólst að fela ráð­herra mála­flokks­ins að und­ir­búa laga­breyt­ingar í sam­ræmi við hana. Við því er Lilja að bregð­ast nú. Hún kynnti áform sín um skipun starfs­hóps­ins á rík­is­stjórn­ar­fundi sem fram fór í gær, þriðju­dag.

Gæti hægt á markaðnum

Verði það bundið í lög að selj­endur íbúð­ar­hús­næðis þurfi að láta fram­kvæma ástands­skýrslu áður en íbúð er seld mun það fela í sér mikla breyt­ingu á íslenskum fast­eigna­mark­aði. Í dag er val­kvætt að kaupa slíka ástands­skoðun af einka­að­ilum en það er ekki algengt að það sé gert og þá nær alltaf á kostnað vænt­an­legra kaup­enda. Til­gang­ur­inn er að aukna rétt­ar­vernd íbúð­ar­kaup­enda en laga­breyt­ingin mun einnig óhjá­kvæmi­lega hafa áhrif á stöðu, ábyrgð og verk­efni fast­eigna­sala við kynn­ingu og sölu fast­eigna.

[links]Auk fram­an­greindra atriða mun starfs­hópnum verða falið að taka til skoð­unar aðrar til­lögur á sviði fast­eigna­kaupa sem varða hlut­verk fast­eigna­sala og fyr­ir­komu­lag til­boðs­gerðar og sam­þykktar, auk mögu­leika á fyr­ir­komu­lagi um úrlausn ágrein­ings kaup­enda og selj­enda utan dóm­stóla.

Hlið­ar­á­hrif af þess­ari laga­breyt­ingu, verði hún að veru­leika, gætu líka verið þau að hægja myndi á fast­eigna­við­skiptum, en gríð­ar­leg hækkun á íbúða­verði hefur verið meg­in­drif­kraftur þess að verð­bólga hefur hækkað skarpt hér­lendis und­an­farna mán­uði og mælist nú 8,8 pró­sent. Helstu grein­ing­ar­að­ilar búast við að verð­bólgan fari í tveggja stafa tölu í lok sum­ars.

Starfs­hóp­ur­inn verður skip­aður full­trúum helstu hag­hafa, þ.e. Félagi fast­eigna­sala, Neyt­enda­sam­tök­unum, Samtökum iðn­að­ar­ins og Hús­eig­enda­fé­lag­inu. Búið er að óska eftir til­nefn­ingum í starfs­hóp­inn og verður hann í fram­haldi af því skip­aður og tekur til starfa.

Miðað er við að starfs­hóp­ur­inn skili ráð­herra skýrslu á fyrri hluta árs 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár