Ástandsskýrslur fylgi öllum seldum fasteignum

Nýsam­þykkt þings­á­lykt­un­ar­til­laga felur ráð­herra að móta frum­varp um ástands­skýrslur fast­eigna. Slíkum skýrslum er ætlað að auka traust í fast­eigna­við­skiptum en ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástands­skýrslum mun falla á mats­að­ila.

„Þegar mikil eftirspurn er eftir húsnæði getur fyrirvari um ástandsskoðun fasteignar talist kauptilboði til frádráttar,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
„Þegar mikil eft­ir­spurn er eftir hús­næði getur fyr­ir­vari um ástands­skoðun fast­eignar talist kauptil­boði til frá­dráttar,“ segir í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ástands­skýrslur munu fylgja öllum seldum fast­eignum í fram­tíð­inni en Alþingi sam­þykkti þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis. Samkvæmt til­kynn­ingu frá þing­flokki Pírata munu slíkar skýrslur inni­halda grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um ástand fast­eignar og verða unnar af óháðu mats­fólki með víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. „Til þess að stuðla enn frekar að áreið­an­leika, trausti og sátt í fast­eigna­við­skiptum verður fram­kvæmd mats­ins og inni­halds ástands­skýrsln­anna sam­ræmt,“ segir í til­kynn­ingu Pírata en Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins var fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar.

Nú ber ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að und­ir­búa laga­breyt­ingar í sam­ræmi við þings­á­lykt­un­ina sem er í fimm liðum. Liðirnir fimm kveða á um hvað eigi að koma fram í lög­unum. Auk þess sem kveðið verður á um að slíkar skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar og að slíkar skýrslur verði útbúnar af óháðum fag­að­ilum með víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. Þá munu þeir sem útbúa ástands­skýrsl­urnar vera ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu.

Þá á laga­frum­varpið að stuðla að því að eig­endur fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar að halda við­halds­dag­bók, án þess þó að það verði gert að laga­skyldu. Síðasti liður þings­á­lykt­un­ar­innar segir að með nýjum lögum verði hægt að ganga frá ein­földum lög­gern­ingum á borð við umboð vegna sölu fast­eignar, und­ir­ritun leigu­samn­ings og kaup­samn­ings um fast­eign raf­rænt með notkun þjón­ustu á borð við island.is.

Muni auka traust í fasteignaviðskiptum

Í grein­ar­gerð sem fylgdi til­lög­unni er það sagt æski­legt að ástands­skýrsla sé meðal sölu­gagna. Slíkar skýrslur séu oft keyptar af til­boðs­gjöfum og kaup­endum. „Aðgangur þeirra að fast­eign er ekki sá sami og selj­anda sem getur leitt af sér lak­ari skýrslur auk þess sem óskil­virkt er að tveir eða fleiri til­boðs­gjafar láti báðir gera ástands­skýrslu vegna sömu fast­eignar. Þá getur mynd­ast hvati við vissar mark­aðs­að­stæður til að láta kyrrt liggja að gera slíkar skýrslur. Sem dæmi má nefna að þegar mikil eft­ir­spurn er eftir hús­næði getur fyr­ir­vari um ástands­skoðun fast­eignar talist kauptil­boði til frá­dráttar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Lagt er til að slíkar ástands­skýrslur skuli gerðar af óháðum fag­að­ilum, líkt og áður segir, og að fram­kvæmd mats­ins skuli fylgja sam­ræmdum mats­að­ferðum auk þess sem inni­hald ástands­skýrslna sé sam­ræmt. „Slíkar gæða­kröfur þykja til þess fallnar að stuðla enn frekar að áreið­an­leika, trausti og sátt í fast­eigna­við­skiptum.“

Líkt og áður segir er ekki lagt til að skylt verði að halda við­halds­dag­bækur en í grein­ar­gerð­inni eru þær sagðar geta haft sam­bæri­legan til­gang og olíu­dag­bækur fyrir bíla. Það að geta flett upp upp­lýs­ingum um við­hald fast­eignar geti aukið til muna skil­virkni í við­haldi á fast­eignum sem og aukið traust á við­skiptum með fast­eignir þar sem haldin hefur verið slík við­halds­dag­bók.

Þá er ein­földun á sam­skiptum milli selj­anda og kaup­anda hús­næðis sem og leigu­sala og leigj­enda sem hægt er að ná fram með staf­rænum lausnum á borð við island.is sögð vera til þess fallin að minnka kostnað við kaup og sölu, auka skil­virkni í við­skiptum, minnka flækju­stig og auka öryggi neyt­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár