Hefur áhyggjur af því að greiðslubyrði lána verði meiri en fólk hafði gert ráð fyrir

Í nýlegri hag­spá Lands­bank­ans er gert ráð fyrir því að stýri­vextir verði komnir í 2,75 pró­sent við lok árs 2023. Gangi spáin eftir mun vaxta­byrði hús­næð­is­lána aukast mikið líkt og þing­maður Við­reisnar vakti athygli á á Alþingi í dag.

Rétt er að hafa áhyggjur af skuld­settum heim­ilum og ekki síst hjá ungu fólki „sem hefur spennt bog­ann til hins ýtrasta til að eign­ast eigið hús­næði,“ að mati Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar þing­manns Við­reisnar. Ástæðan fyrir því eru vaxta­horfur en eins og Jón Steindór benti á í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag er gert ráð fyrir því í nýlegri hag­spá Lands­bank­ans að stýri­vextir verði orðnir 2,75 pró­sent í lok árs 2023.

Jón vís­aði í nýlega ræðu sína á þingi þar sem hann benti á að fast­eigna­kaup á Íslandi í íslenska krónu­hag­kerf­inu væru „hrein og klár áhættu­fjár­fest­ing.“ Fast­eigna­verð hefði hækkað mikið á síð­ustu miss­erum á sama tíma og ungt fólk hefði streymt inn á fast­eigna­mark­að­inn. Jón sagð­ist hafa áhyggjur af því að vaxta­byrðin yrði meiri en lán­tak­endur hefðu reiknað með. [links]

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hækk­uðu um 0,25 pró­sentu­stig í morgun, fóru úr 0,75 pró­sentum í eitt pró­sent. „Ein­hverjum kann að þykja að vaxta­hækk­unin nú, um 0,25 pró­sentu­stig, sé létt­væg. Svo er alls ekki. Sá sem skuldar t.d. 30 millj­ónir þarf að greiða 75.000 kr. meira í vexti á hverju ári og því miður er lík­legt að frek­ari vaxta­hækk­anir fylgi í kjöl­farið,“ sagði Jón Steindór um stýri­vaxta­hækk­un­ina og áhrif hennar á greiðslu­byrði lán­tak­enda.

Greiðslubyrði geti hækkað um 50 þúsund á mánuði

Hann benti í kjöl­farið á að ef að spá Lands­bank­ans gengi eftir ætti greiðslu­byrði eðli máls­ins sam­kvæmt eftir að hækka meira. „Í nýlegri hag­spá Lands­bank­ans er gert ráð fyrir því að stýri­vextir Seðla­bank­ans verði orðnir 2,75% í lok árs­ins 2023. Þá verður vaxta­kostn­aður af 30 millj. kr. láni orð­inn 600.000 kr. hærri á hverju ári, eða um 50.000 kr. í hverjum ein­asta mán­uði.“

Í hag­spá Lands­bank­ans sem Jón vís­aði í segir að verð­bólga hafi verið fyrir ofan efri vik­mörk verð­bólgu­mark­miðs í fjóra mán­uði og þrýst­ingur á pen­inga­stefnu­nefnd því farið vax­andi. Þess má geta að spáin var birt áður en stýri­vextir voru hækk­aðir í morgun. Grein­ing­ar­deild Lands­bank­ans gerði engu að síður ráð fyrir að stýri­vextir yrðu komnir í 1,5 pró­sent í árs­lok og að þeir myndu hækka í 2,5 pró­sent árið 2022 og í lok árs 2023 yrðu komnir í 2,75 pró­sent í loks árs 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár