Fasteignamarkaður enn í fullu fjöri en toppnum mögulega náð

Enn er mikil virkni á fast­eigna­mark­aðnum. Íbúðir selj­ast hratt og í auknum mæli á yfir­verði, en sölu­verð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað tölu­vert. Aftur á móti hefur útgáfa hús­næð­is­lána minnkað nokkuð milli mán­aða, þótt hún sé enn mikil.

Enn er mikill þrýstingur á húsnæðismarkaði.
Enn er mik­ill þrýst­ingur á hús­næð­is­mark­aði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mikið var um fast­eigna­kaup í nóv­em­ber og hafa íbúðir ekki selst jafn­hratt á síð­ustu árum, sam­kvæmt nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Verð­hækkun fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er einnig tölu­verð. Þó eru vís­bend­ingar um að virknin á fast­eigna­mark­aðnum sé að minnka, þar sem þing­lýstum kaup­samn­ingum hefur fækkað og útlán hafa minnkað milli mán­aða.

Kaupsamningum fækkar og útlán minnka

Samkvæmt skýrsl­unni var þetta umsvifa­mesti nóv­em­ber­mán­uður á fast­eigna­mark­aði frá upp­hafi mæl­inga, en aldrei hafa jafn­margir kaup­samn­ingar verið þing­lýstir á þessum tíma árs. Hins vegar er fjöldi kaup­samn­inga nokkuð minni en í októ­ber, sem gæti bent til þess að hægst hafi á mark­aðnum eftir mikið líf síð­asta sumar. Þó bætir HMS við að það sé ekki alveg ljóst, þar sem fjöldi kaup­samn­inga geti auk­ist eftir því sem ný gögn ber­ast.

Aðra vís­bend­ingu um að toppnum hafi verið náð í virkni á fast­eigna­mark­aðnum má sjá þegar tölur um ný útlán til heim­ila, að frá­dregnum upp­greiðslum, eru skoð­aðar. Sú fjár­hæð náði hámarki í októ­ber þegar hún slag­aði í 30 millj­arða króna, sam­kvæmt skýrsl­unni. Sam­svar­andi fjár­hæð í nóv­em­ber nam aftur á móti 22 millj­örðum króna. Hlut­deild óverð­tryggðra lána hefur vaxið æ meira og fór hún yfir 40 pró­sent í nóv­em­ber, sem er í fyrsta skiptið sem það ger­ist.

Íbúðir dýrari og seljast hraðar

Þrátt fyrir þessa tvo mæli­kvarða benda aðrir þættir til mik­ils þrýst­ings á mark­aðnum, þar sem íbúðir selj­ast mun hraðar og oftar á yfir­verði. Báðir þessir mæli­kvarðar voru hærri á haust­mán­uðum heldur en í fyrra­sumar.

Með­al­sölu­tími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í októ­ber og nóv­em­ber var um 46 dagar og hefur minnkað úr 60 dögum í upp­hafi árs. Á lands­byggð­inni er með­al­sölu­tím­inn komin niður í 66 daga eftir að hafa verið 81 dagur í upp­hafi árs. Aldrei hafa íbúðir verið jafn­stutt á sölu á fast­eigna­síðum lands­ins.

Einnig selj­ast nú um 46 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú annað hvort á eða yfir ásettu verði, sam­an­borið við tæp 25 pró­sent í byrjun árs­ins. Líta þarf aftur til árs­ins 2007 til að að finna hærra hlut­fall þar.

Meiri þrýstingur á höfuðborgarsvæðinu

Mikil ásókn í íbúðir og tak­markað fram­boð virð­ist hafa sett þrýst­ing á íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 12 mán­aða breyt­ing á vísi­tölu sölu­verðs nam um 7,7% í nóv­em­ber sam­an­borið við 6,7% í októ­ber. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur heldur dregið úr hækk­un­inni og mæld­ist 12 mán­aða hækkun vísi­tölu sölu­verðs þar 4,1% í nóv­em­ber og ann­ars staðar á land­inu mæld­ist árs­hækkun íbúða­verðs nei­kvæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár