Hlutfall fyrstu kaupenda með hæsta móti síðastliðið ár

Hlutfall fyrstu kaup­enda hefur aldrei verið jafn hátt á eins árs tíma­bili eins og síð­ast­liðið ár. Hlut­fallið er nú um þriðj­ungur og hefur farið hækk­andi frá því að Þjóðskrá hóf að safna upp­lýs­ingum um fyrstu kaup­endur.

Hlutfall fyrstu kaupenda hefur aldrei verið jafn hátt á höfuðborgarsvæðinu og nú.
Hlutfall fyrstu kaup­enda hefur aldrei verið jafn hátt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nú. Mynd: Bára Huld Beck

Á öðrum árs­fjórð­ungi var hlut­fall fyrstu kaup­enda af þeim sem eiga við­skipti með íbúð­ar­hús­næði 31,4 pró­sent. Síð­ast­liðið ár hefur þetta hlut­fall verið hærra heldur en frá því að Þjóðskrá hóf að taka saman og birta upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Hæst fór þetta hlut­fall á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar það stóð í tæpum 32 pró­sentum en sé litið til síð­ast­lið­ins árs er hlut­fallið 31,5 pró­sent. Þetta kemur fram í tölum Þjóð­skrár.

Hæst var hlut­fallið á Norð­ur­landi vestra á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs. Af við­skiptum með íbúð­ar­hús­næði var 36,4 pró­sent vegna fyrstu kaupa á svæð­inu. Alls voru eign­ar­heim­ildir á svæð­inu 44 tals­ins á árs­fjórð­ungnum og af þeim voru 16 fyrstu kaup. Hlut­fallið hefur aðeins einu sinni verið hærra á svæð­inu, á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra var hlut­fallið 37,9 pró­sent.

Flest við­skipti áttu sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur hlut­fall fyrstu kaup­enda aldrei verið jafn hátt þar, 34,2 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var fjöldi fyrstu kaupa var 717. Sú tala hefur vissu­lega verið hærri, var 795 á þriðja og fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs. Þá var heild­ar­fjöldi við­skipta mun meiri og hlut­fallið því ekki jafn hátt.

Hlut­fallið hefur farið hækk­andi frá því að Þjóðskrá hóf að halda utan um þessar tölur. Lægst var það á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2009, innan við 7 pró­sent. Undir lok árs 2010 var það komið yfir 10 pró­sent og á fyrsta árs­fjórð­ungi árið 2017 fór það fyrst yfir 25 pró­sent.

Hærri veðsetning í boði fyrir fyrstu kaupendur

Ýmis úrræði eru í boði fyrir fyrstu kaup­endur. Til að mynda þurfa fyrstu kaup­endur ekki að greiða lán­töku­gjald hjá stóru við­skipta­bönk­unum þremur, Arion Banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum. Þá þurfa fyrstu kaup­endur að greiða helm­ingi lægra stimp­il­gjald heldur en gengur og ger­ist, 0,4 pró­sent í stað 0,8 pró­sent.

Fyrstu kaup­endur geta einnig nýtt sér sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst upp í útborgun og svo er hámarks veð­setn­ing­ar­hlut­fall fyrstu kaup­enda hærra heldur en ann­arra, 90 pró­sent í stað 80 pró­senta. Mögu­leikar fyrstu kaup­enda til þess að taka með svo háu veð­setn­ing­ar­hlut­falli virð­ast þó vera tak­mark­aði hjá stóru bönk­unum þremur.

Á heima­síðum Arion Banka og Lands­bank­ans segir að fyrstu kaup­endur geti fengið lánað fyrir 85 pró­sent af mark­aðsvirði fyrstu eignar en hjá Íslands­banka geta fyrstu kaup­endur fengið lánað fyrir 80 pró­sentum af mark­aðsvirði auk þess sem þeim stendur til boða við­bót­ar­lán sem getur fleytt þeim alla leið upp í 90 pró­sent af kaup­verði en lánið getur að hámarki orðið þrjár millj­ónir króna.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár