Afnám leiguþaks gæti orðið Löfven að falli

Svíþjóð hefur, líkt og önnur lönd í Evrópu, reynt að sporna gegn hröðum leigu­verðs­hækk­unum með leigu­þaki. Nú gæti farið svo að sænska rík­is­stjórnin falli vegna áforma um að afnema slíkar tak­mark­anir fyrir nýbygg­ingar.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Hug­myndir sænsku rík­is­stjórn­ar­innar um að afnema leigu­þak á nýbygg­ingum hefur leitt til þess að van­traust­s­til­laga hefur verið lögð fram gegn Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins. Kosið verður um til­lög­una á mánu­dag­inn, en sam­kvæmt frétta­vefnum Politico um málið sýnir hún hversu mikið vægi hús­næð­is­mál hafa á stjórn­mála­um­ræðu í Evr­ópu­löndum.

Tak­mark­anir á leigu­verð eru ekki nýjar af nál­inni í Svíþjóð, en þær hafa verið í gildi í ein­hverri mynd síðan árið 1942. Sams konar tak­mark­anir eru einnig í gildi í öðrum Evr­ópu­löndum, líkt og Frakk­landi, Írlandi og Þýska­landi.

Samið um leiguverð

Samkvæmt skýrslu lög­fræði­stof­unnar Jones Day er samið um hámarks­leigu í Svíþjóð með svip­uðum hætti og lág­marks­laun eru samin hér á landi. Leigj­endur hafi sér­stakt kjara­fé­lag sem semji fyrir hönd þeirra við leigu­sala um upp­hæð leig­unnar. Náist engir samn­ingar sé leigu­verðið úrskurðað af sér­stakri nefnd á vegum hins opin­bera, sem byggi mat sitt á nota­gildi íbúð­anna.[adspot]

Samkvæmt umfjöllun Politico um málið samdi Löfven við sænska Mið­flokk­inn, sem styður minni­hluta­stjórn for­sæt­is­ráð­herr­ans falli, um að leigu­þakið yrði afnumið fyrir nýbygg­ingar eftir síð­ustu þing­kosn­ing­arnar þar í landi árið 2018. Hins vegar seg­ist Vinstri­flokk­ur­inn, sem ver rík­is­stjórn Löfven einnig falli, ein­ungis hafa ætlað að verja minni­hluta­stjórn­ina ef áformin um afnám leigu­þaks yrðu aldrei að veru­leika.

Nooshi Dad­gostar, for­maður Vinstri­flokks­ins, lagði því fram van­traust­til­lögu á hendur Löfven eftir að for­sæt­is­ráð­herran brást ekki við kröfum hennar um að vinna að annarri lausn með kjara­fé­lagi leigj­enda.

Nú þegar hefur öfga­hægri­flokk­ur­inn Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir, auk hægri­flokks­ins Modera­terna og Kristi­legra demókrata, sagst ætla að kjósa með van­traust­s­til­lögu Vinstri­flokks­ins. Geri þeir það yrði van­traust­s­til­lagan sam­þykkt á mánu­dag­inn og rík­is­stjórnin í núver­andi mynd því fallin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár