Segir fasteignakaup með íslenskri krónu hreina áhættufjárfestingu

Þing­maður Við­reisnar bendir á að sjaldan hafi jafn mik­ill fjöldi ungs fólks streymt inn á fast­eigna­mark­að­inn og hefur hann miklar áhyggjur af því að greiðslu­byrðin verði miklu meiri en lán­tak­endur hafi reiknað með.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég leyfi mér að full­yrða að fast­eigna­kaup með íslenskri krónu séu hrein áhættu­fjár­fest­ing.“ Þetta sagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær. Spurði hann Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra meðal ann­ars hvort hún væri sam­mála grein­ingu seðla­banka­stjór­ans á því hvernig hægt væri að vinna gegn verð­bólg­unni.

Hóf hann mál sitt á að segja að hann hefði tals­verðar áhyggjur þessa dag­ana. „Áhyggjur mínar snúa fyrst og fremst að því hvaða þróun er að verða í verð­bólgu hér á landi. Verð­bólga hefur ekki verið hærri í átta ár um þessar mundir og hefur verið langt umfram vænt­ingar spá­að­ila og langt umfram það sem Seðla­bank­inn hefur búist við í sínum spám.“

Benti hann á að seðla­banka­stjóri, Ásgeir Jónsson, hefði sagt í við­tali í síð­asta mán­uði að verð­bólgan staf­aði að miklu leyti af veik­ingu geng­is­ins á síð­asta ári, en nú hækk­aði gengið á ný – og von­að­ist hann til að ná tökum á verð­bólg­unni aftur með lægra verð­lagi í versl­unum. „Það er þó ljóst að inn í smá­sölu­verðið reikn­ast alls konar kostn­aður, til dæmis flutn­ings­kostn­aður, sem hefur hækkað veru­lega, verð á hrá­vöru, og síðan hefur verði samið um marg­vís­legar kjara­bætur. Það er spurn­ing hvort ekki blasi við að það sé ansi þung byrði að leggja það á versl­un­ina í land­inu að bregð­ast við þessum verð­bólgu­þrýst­ingi öllum, eins og Seðla­bank­inn kallar eftir,“ sagði Jón Steindór.

Spurði hann for­sæt­is­ráð­herra hvort hún væri sam­mála þess­ari grein­ingu seðla­banka­stjór­ans á því hvernig Íslend­ingar gætu unnið gegn verð­bólg­unni. Væri for­sæt­is­ráð­herra sam­mála því að verð­lag í versl­unum yrði að lækka, ann­ars þyrfti að grípa til sér­tækra aðgerða. „Liggur ábyrgðin þarna? Blasir ekki við að hinar sér­tæku aðgerðir, sem ella þarf að grípa til, eru hækkun vaxta?“ spurði hann.

Fara þarf yfir stöðu mála á fasteignamarkaðinum

Katrín tók undir með þing­mann­inum um að hækkun verð­bólgu væri áhyggju­efni. „Þegar skoðað er hvað leiðir hækkun verð­lags um þessar mundir er það hús­næði og mat­vara. Hins vegar er rétt að almennt gera spár ráð fyrir því að verð­bólga muni hjaðna þegar líður á árið og auð­vitað ætti styrk­ing krón­unnar að styðja við þá þróun,“ sagði hún.

„Hvað er hægt að gera? Hátt­virtur þing­maður nefnir að mikið sé á versl­un­ina lagt að hækka ekki verð­lag umfram til­efni. Það er vissu­lega einn mjög mik­il­vægur þáttur. Síðan er aug­ljóst að staðan á fast­eigna­mark­aði mun ráða mjög miklu. Þar þurfum við virki­lega að fara yfir stöðu mála. Þetta var eitt af því sem unnið var að.“

Benti Katrín á í því sam­hengi að í aðdrag­anda lífs­kjara­samn­inga hefði verið settur á lagg­irnar sér­stakur átaks­hópur um þróun á hús­næð­is­mark­aði. „Töluvert hefur verið gert í því að bæta þar stefnu­mótun og yfir­lit yfir stöð­una. Það breytir því ekki að staðan á hús­næð­is­mark­aði er mjög þung núna. Við lesum nán­ast dag­legar fréttir um það hvernig íbúðir selj­ast yfir ásettu verði á skömmum tíma og í raun og veru er barist um hverja eign. Ég held að það sé mjög stór þáttur sem við þurfum að horfa til. Hús­næð­is­málin munu verða á dag­skrá næsta fundar í þjóð­hags­ráði þar sem koma saman aðilar vinnu­mark­að­ar­ins og full­trúar stjórn­valda, Seðla­banki og sveit­ar­fé­lög. Það er stór þáttur í því sem við þurfum að horfa til,“ sagði hún.

„Síðan er spurt: Hvað getur Seðla­bank­inn gert annað? Auðvitað eru ýmsir fleiri und­ir­liggj­andi þættir sem þarf að horfa til við ákvörðun stýri­vaxta, en ég held að við séum á þeim stað að full ástæða sé til þess að fylgj­ast mjög grannt með þróun mála af því að þetta er ekki góð þróun.“

Finnst stefna í verulegt óefni

Jón Steindór steig aftur í pontu og full­yrti að fast­eigna­kaup með íslenskri krónu væru hrein áhættu­fjár­fest­ing, eins og áður segir.

Vísaði þing­mað­ur­inn í yfir­lýs­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar frá 14. apríl 2021 þar sem gert var grein fyrir óvissu­á­standi á fast­eigna­mark­aði en þar stendur að í núver­andi vaxtaum­hverfi sé nauð­syn­legt að lán­veit­endur sem og lán­tak­endur séu með­vit­aðir um að tölu­verðar breyt­ingar gætu orðið á greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána.

Benti Jón Steindór á að þetta gilti að sjálf­sögðu jafn­framt um verð­tryggð lán. „Ég verð að segja það, herra for­seti, að mér finnst stefna í veru­legt óefni. Sjaldan hefur jafn mik­ill fjöldi ungs fólks streymt inn á fast­eigna­mark­að­inn og ég hef miklar áhyggjur af því að vaxta­byrðin, greiðslu­byrðin, verði miklu meiri en lán­tak­endur hafa reiknað með. Ég er hræddur um að það komi að litlu gagni að setja þetta mál í ein­hvers konar skoðun og nefnd. Hér hefur ein­fald­lega ekki tek­ist nógu vel til. Hvað hyggst ráð­herra gera í þessum efnum?“ spurði hann.

Þingmaðurinn „helst til dramatískur“

Katrín svar­aði og sagði að sér fynd­ist þing­mað­ur­inn verða helst til dramat­ískur í síð­ari spurn­ingu. „Stað­reyndin er sú að tek­ist hefur gríð­ar­lega vel upp við stjórn efna­hags­mála á þessu kjör­tíma­bili, hvort sem litið er til pen­inga­stefnu, stjórnar rík­is­fjár­mála eða á vinnu­mark­aði. Þar á Seðla­bank­inn mikið hrós skilið fyrir hvernig hann hefur haldið á málum. Það breytir því ekki að þó að heilt yfir hafi gengið vel er full ástæða til að hafa áhyggjur þegar við sjáum verð­bólg­una fara upp.“

Telur ráð­herr­ann mjög mik­il­vægt að skoða sér­stak­lega hús­næð­is­mark­að­inn en hún sagði að þar hefði verið gripið til marg­hátt­aðra aðgerða; hlut­deild­ar­lána til að styðja við kaup­endur fyrstu eigna og auk­ins stuðn­ings við félags­legt hús­næð­is­kerfi.

„Það er eitt af aðal­mál­unum sem við höfum verið að ræða á vett­vangi þjóð­hags­ráðs og ég held að það sé stóri þátt­ur­inn í stefnu­mót­un­inni fram undan í þessum málum. Hins vegar er það ekki svo að ég telji ástæðu til að hafa uppi stór orð um hvert stefni. Ég tel að Seðla­bank­inn hafi hingað til staðið sig vel og muni gera það áfram,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár