Seðlabankinn hækkar vexti

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti um 0,25 pró­sentu­stig, þar sem efna­hags­horfur hafa batnað og verð­bólgan reynst þrá­lát­ari en áður var spáð.

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands munu hækka um 0,25 pró­sentu­stig og verða 1 pró­sent, sam­kvæmt nýrri til­kynn­ingu pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans.

Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2018 sem nefndin hefur ákveðið að hækka vexti. Síðan þá hafa þeir ýmist lækkað eða staðið í stað, úr 4,5 pró­sentum niður í 0,75 pró­sent.

Samkvæmt nefnd­inni hafa efna­hags­horfur batnað frá fyrri spám og vega þar þyngst vís­bend­ingar um meiri bata inn­lendrar eft­ir­spurnar. Atvinnu­leysi hefur hjaðnað þótt það sé enn mikið. Slakinn í þjóð­ar­bú­skapnum virð­ist því vera minni og útlit er fyrir að hann hverfi fyrr en áður var talið.

Hins vegar hefur verð­bólga reynst meiri og þrá­lát­ari en áður var spáð, meðal ann­ars vegna fram­boðs­trufl­ana í heims­hag­kerf­inu í kjö­far far­sótt­ar­innar, en alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð hefur einnig hækkað mikið und­an­farið.

Nefndin nefnir einnig áhrif geng­is­lækk­unar krón­unnar í fyrra á verð­vísi­töl­una, sem og miklar hækk­anir launa og hús­næð­is­verðs. Það sé því nauð­syn­legt að hækka vexti bank­ans til þess að tryggja kjöl­festu verð­bólgu­vænt­inga í verð­bólgu­mark­mið­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár