Samkeppni ekki á radarnum hjá ríkisstjórninni – og fyrir vikið ráði sérhagsmunir

Formaður Við­reisnar gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina og segir að hún kjósi að stinga höfð­inu í sand­inn frekar en að ræða af ein­hverri alvöru hvernig tryggja megi eðli­lega sam­keppni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að íslenskur almenn­ingur sé reglu­lega minntur á mik­il­vægi virkrar sam­keppni og kostn­að­inn sem fylgir sam­keppn­is­skorti, hvort sem um sé að ræða fákeppni í banka­þjón­ustu, á trygg­inga­mark­aði, elds­neyt­is­mark­aði, í land­bún­aði eða sjáv­ar­út­vegi. Áhrifin séu alltaf þau sömu, neyt­endum í óhag.

Þetta kom fram í máli for­manns­ins á Alþingi í vik­unni en síð­asti þing­fund­ur­inn fyrir sum­ar­frí var aðfara­nótt fimmtu­dags.

Hún telur jafn­framt að fákeppn­is­hagn­aður í fjár­mála­kerf­inu sé ástæða þess að hér sé dýrasta banka­þjón­usta í Evrópu. Þennan kostnað þurfi fyr­ir­tæki og almenn­ingur að sitja uppi með. Sömu sögu sé að segja með trygg­inga­þjón­ustu. Hátt mat­vöru­verð og elds­neyt­is­verð hafi einnig leikið Íslend­inga grátt.

Segir ríkisstjórnina ekki vilja ræða málin

Þor­gerður Katrín sagði að þessi vanda­mál væru að mestu afleið­ing sam­keppn­is­leysis og póli­tískra ákvarð­ana. Virkari sam­keppni á mark­aði væri brýn nauð­syn fyrir neyt­endur, ekki síst með verð­bólg­una grass­er­andi eins og nú væri. Meðan þetta væri hins vegar eitt af for­boðnum umræðu­efnum stjórn­valda þá breytt­ist lítið.

Hún sagði enn fremur að rík­is­stjórnin kysi að stinga höfð­inu í sand­inn frekar en að ræða af ein­hverri alvöru hvernig tryggja mætti eðli­lega sam­keppni, til að mynda á vöru- og þjón­ustu­mark­aði.

„Þess vegna var til­laga okkar, um heild­stæða úttekt á áhrifum virkrar sam­keppni, ekki afgreidd úr nefnd á sínum tíma, ekki heldur á þing­inu sem nú er að líða, ekki frekar en til­laga okkar um mat á sam­keppn­is­rekstri rík­is­ins. Þess vegna er eng­inn áhugi á til­lögum okkar um að almennar sam­keppn­is­reglur ríki í land­bún­aði og eng­inn áhugi er á að mark­aðslög­mál gildi í sjáv­ar­út­vegi. Og svo er auð­vitað eng­inn, ekki nokkur, áhugi á að ræða vaxta­mun­inn í fjár­mála­þjón­ustu og áhrif sífelldra geng­is­breyt­inga á íslenskt atvinnu- og heim­il­is­líf.

Þetta eru risa­þættir í sam­keppni, hvernig við getum aukið lífs­gæði fólks, og rík­is­stjórnin vill ekki ræða þessi mál. Sam­keppni er ekki inn á rad­arnum hjá rík­is­stjórn­inni, svo ein­falt er það, og fyrir vikið ráða sér­hags­munir,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár