Óskandi að Costco finni áfram grundvöll til rekstrar hér á landi

Fyrrum for­stöðu­maður Rann­sókna­set­urs versl­un­ar­innar fjallar um svokölluð Costco-áhrif á inn­lendan dag­vöru­markað í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Emil B. Karlsson
Emil B. Karlsson Mynd: Aðsend mynd

Emil B. Karlsson, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Rann­sókna­set­urs versl­un­ar­innar, segir að þó hann sé að sönnu eng­inn tals­maður erlendra risa-versl­un­ar­keðja eins og Costco og telji nauð­syn­legt að veita versl­un­inni fullt aðhald í verð­lagi og rekstri, þá sé ósk­andi að versl­un­ar­keðjan finni áfram grund­völl til rekstrar hér á landi. Það sé bæði til hags­bóta fyrir neyt­endur, veiti inn­lendum sam­keppn­is­að­ilum aðhald og sýni von­andi öðrum erlendum lág­vöru­verð­skeðjum að það gangi að reka verslun á Íslandi þó mark­að­ur­inn sé lít­ill.

Þetta kemur fram í grein sem Emil skrifar í nýj­ustu Vís­bend­ingu.

Hann segir að það hafi verið algengt að talað væri um Costco-áhrifin hér fyrir fimm árum þegar erlendi versl­un­ar­ris­inn kom til lands­ins með storm­sveipi og breytti öllu lands­lagi á inn­lendum dag­vöru­mark­aði. Hann skoðar í grein­inni hver þessi áhrif voru og hvort þau vari enn.

„Vegna smæðar íslenska mark­að­ar­ins er inn­lend verslun mjög við­kvæm fyrir erlendri sam­keppni. Þannig hafði inn­koma Costco á íslenskan dag­vöru­markað í maí 2017 þær afleið­ingar að vöru­verð lækk­aði og riðl­að­ist mark­aðs­hlut­deild inn­lendra smá­sala og heild­sala, en það hafði verið stöðugt síð­ustu ára­tug­ina þar á undan. Gripið var til hag­ræð­ingar meðal stærstu inn­lendu versl­an­anna og leitað var leiða til auk­innar útvíkk­unar hjá stærstu dag­vöru­versl­ana­keðj­unum.

Verð hluta­bréfa í Högum, stærstu versl­un­ar­keðj­unni, lækk­aði og tveimur versl­un­ar­fyr­ir­tækjum var lokað, Kosti og versl­unum Víðis. Áhrif Costco náðu ekki síður til heild­sölu­mark­að­ar­ins og jafn­vel til inn­lends iðn­aðar eins og drykkj­ar­vöru­fram­leið­enda og fram­leið­enda heim­il­is­papp­írs. Á meðan nutu neyt­endur góðs af lægra vöru­verði og nýjum vöru­merkjum. Enda sýndi könnun stuttu eftir opnun versl­un­ar­innar að um 40 pró­sent lands­manna hefðu komið og keypt sér aðild­ar­kort og önnur 40 pró­sent hugs­uðu sér að gera hið sama,“ skrifar hann.

Neikvæð umræða og viðhorf til verslana breyttust

Emil segir að reynslan af inn­komu Costco sýnir að sam­keppni á versl­un­ar­mark­aði geti haft veru­leg áhrif á versl­un­ar­mynstrið á Íslandi. Þegar ein erlend verslun sem opnuð er í Garðabæ hafi við­líka umrót í för með sér megi draga álykt­anir af áhrifum þess að frek­ari alþjóð­leg sam­keppni verði á kom­andi tímum.

Auk þeirra breyt­inga sem urðu á verð­lagi, vöru­fram­boði og sam­setn­inga þeirra versl­ana sem fyrir voru á mark­aði varð önnur og ekki síðri breyt­ing, skrifar Emil. Sú nei­kvæða umræða og við­horf til versl­ana breytt­ust að hans mati. „Um langt ára­bil var umræða um verslun mest á frekar nei­kvæðum nótum. Algengt stef var að versl­anir okr­uðu á neyt­endum í skjóli fákeppni og sam­þjöpp­unar. Að ein­hverju leyti virð­ist þetta hafa verið á rökum reist. Allavega var borð fyrir báru til verð­lækk­ana með inn­komu Costco.“

Hann bendir á að að minnsta kosti þrjár skýrslur höfðu verið samdar fyrir stjórn­völd vegna hinnar háværu umræðu um þessi mál. Öllum hafi verið ætlað að greina orsakir hærra verð­lags á mat­vælum hér á landi en í nágranna­lönd­unum. Ein skýrslan var samin af Hag­fræði­stofnun HÍ, önnur af Sam­keppn­is­stofnun og sú þriðja af sér­skip­aðri nefnd undir for­ystu hag­stofu­stjóra. Nið­ur­stöður voru í öllum til­vikum sam­hljóma, sam­kvæmt Emil. „Helstu ástæður hærra vöru­verðs hér en í nágranna­lönd­unum voru inn­lend vöru­gjöld, vernd­ar­tollar, geng­is­sveiflur, flutn­ings­kostn­aður, að ekki var hægt að nýta sömu stærð­ar­hag­kvæmni í inn­kaupum og nágranna­þjóð­irnar vegna smæðar íslenska mark­að­ar­ins og að ein­hverju leyti vegna fákeppni á inn­lendum dag­vöru­mark­aði.

Nú hafa vöru­gjöld verið aflögð á mat­væli, raf­tæki og fleiri vörur og vernd­ar­tollar á land­bún­að­ar­vöru að ein­hverju marki verið rýmkaðir. En ofur­tollar á inn­fluttar land­bún­að­ar­vörur hafa að sögn verið hindrun í vegi þess að erlendar lág­vöru­verðs­versl­anir hafa viljað opna hér versl­anir auk smæðar íslenska mark­að­ar­ins,“

Emil bendir jafn­framt á að nú hafi heyrst raddir þess efnis að velta og vin­sældir Costco fari minnk­andi og gagn­rýnt hafi verið að verð á inn­lendum dag­vörum séu í ein­hverjum til­vikum ekki ódýr­ari þar en í hinum lág­vöru­verðs­versl­un­unum, sem geti hugs­an­lega skýrst af því að inn­lendir heildsalar og fram­leið­endur bjóði Bónus og Krónunni lægra verð en Costco.

Hægt er að lesa grein Emils í heild sinni með því að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár