Ætla má að innanlandsflug hafi hækkað um 10 prósent á milli ára

Flug­far­gjöld sem keypt voru með Loftbrú voru um það bil 10 pró­sentum dýr­ari í febr­úar á þessu ári en í febr­úar í fyrra, sam­kvæmt því sem fram kemur í svari inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn á þingi.

Frá Reykjavíkurflugvelli.
Frá Reykja­vík­ur­flug­velli. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fargjöld í inn­an­lands­flugi hafa hækkað um u.þ.b. tíu pró­sent frá febr­úar 2021 og þar til í febr­úar á þessu ári, sam­kvæmt því sem fram kemur í skrif­legu svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Jódísi Skúla­dóttur þing­manni Vinstri grænna.

Þing­mað­ur­inn spurði ráð­herr­ann um ýmsa hluti sem varða Loftbrú, hið nýlega úrræði sem veitir íbúum með lög­heim­ili fjarri höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í Vest­manna­eyjum 40 pró­sent afslátt af flug­far­gjöldum fyrir allt að sex flug­leggi á ári. Meðal ann­ars spurði Jódís, sem er þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis, hvort merkja mætti breyt­ingar á flug­far­gjöldum frá því að Loft­brúin kom til sög­unnar árið 2020.

Fyrr­greint mat á verð­breyt­ingum flug­far­gjalda inn­an­lands byggir á tölum frá Vega­gerð­inni um greiðslu­þátt­töku vegna Loft­brúar. Í svari ráð­herra segir að vert sé að hafa í huga að elds­neyt­is­verð hafi hækkað mikið frá því að Loft­brúin kom til sög­unnar, auk þess sem hafa ætti í huga að verð­sam­an­burð­ur­inn nái ein­ungis til þeirra far­miða sem ríkið tekur þátt í að greiða fyrir í gegnum Loft­brúna.

[adspot]

Hið síð­ar­nefnda ætti þó ekki að bjaga mynd­ina að ráði, þar sem hægt er að kaupa hvaða flug­miða sem er í gegnum Loft­brúnna – það eina sem breyt­ist er það að ríkið nið­ur­greiðir 40 pró­sent af far­gjald­inu.

Rúmlega einn flugleggur á mann á fyrstu 18 mánuðunum

Um 60 þús­und manns eiga rétt á því að nýta sér afslátt­ar­far­gjöldin sem hægt er að fá með Loft­brúnni og á hver og einn ein­stak­lingur rétt á því að fá afslátt af sex flug­leggjum á ári.

Í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Jódísar segir að notkun Loft­brú­ar­innar sé „stöðugt að aukast“ og að í mars hafi tæp­lega 70 þús­und flug­leggir verið bók­aðir á þeim 18 mán­uðum sem liðnir voru frá því að Loft­brúin fór í loftið, eða rúm­lega einn flug­leggur á hvern not­anda.

Í skrif­legu svari ráð­herr­ans segir einnig að ef notk­unin haldi áfram að aukast komi „vel til greina“ að end­ur­skoða þann fjölda flug­leggja sem hver ein­stak­lingur geti fengið nið­ur­greidda, en sá fjöldi verði þó ávallt háður fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins, en áætl­aður árlegur kostn­aður við Loft­brúna voru 600 millj­ónir, þegar verk­efnið var kynnt í sum­ar­lok 2020. Í fyrra nam kostn­að­ur­inn við Loft­brúna þó ein­ungis 367 millj­ónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár