Leynigögn frá Pentagon varpa nýju ljósi á loftárásir Bandaríkjahers

Dróna­árásir Banda­ríkja­hers þar sem fyllstu nákvæmni átti að vera gætt voru í raun margar byggðar á göll­uðum upp­lýs­ingum, óná­kvæmum ákvörð­unum og mun fleiri dauðs­föllum almennra borg­ara en upp hefur verið gefið. Þetta sýna leyni­leg gögn frá Pentagon.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá banda­rískum her­mála­yf­ir­völdum hafa 1.417 almennir borg­arar látið lífið í loft­árásum gegn íslamska rík­inu (ISIS) í Sýrlandi og Írak frá 2014 og frá 2018 hafa 188 almennir borg­arar látið lífið í árásum í Afganistan. Rannsókn blaða­manna NY Times sýnir hins vegar fram á að dauðs­föllin séu mun fleiri og að stjórn­völd hafi van­metið tölu lát­inna í árásum ítrekað. Leyni­legu gögnin frá Pentagon, varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, sem blaða­menn NY Times fóru yfir skipta þús­undum og við rann­sókn­ar­vinn­una heim­sóttu þeir einnig yfir hund­rað skot­mörk dróna­árása.

Dæmi um árás þar sem fjöldi dauðs­falla var van­met­inn var til að mynda í árás á Tokhar í Sýrlandi. Rétt fyrir klukkan 3, aðfara­nótt 19 júlí 2016, réðst banda­ríski her­inn á þrjár bæki­stöðvar ISIS í útjaðri smá­þorps­ins Tokhar. 85 liðs­menn sam­tak­anna lét­ust, að sögn banda­ríska hers­ins, en 24 almennir borg­arar. Leyniskjölin frá Pentagon sýna hins vegar fram á að yfir 120 almennir borg­arar féllu í árásinni. Í skjöl­unum kemur einnig fram að skot­mörk árás­ar­innar voru hús þar sem fjöl­skyldur höfðu leitað skjóls.

Fjölskylda talin bílsprengja og „óþekktur þungur hlutur“ reyndist vera barn

Dæmin eru fjöl­mörg. Snemma árs 2017 skaut banda­rísk her­flug­vél á dökklit­aðan bíl í Wadi Hajar-hverf­inu í vest­ur­hluta Mósúl í Írak þar sem talið var að um bíl­sprengju var að ræða. Engin sprengja reynd­ist hins vegar í bílnum heldur fjöl­skylda. Majid Mahmoud Ahmed sat við stýrið og með honum í bílnum voru eig­in­kona hans og tvö börn, en þau voru að flýja átök í nágrenn­inu. Þau létu öll lífið í árásinni, auk þriggja ann­arra almennra borg­ara.

Í nóv­em­ber 2015 veitti banda­ríski her­inn manni eft­ir­tekt sem hafði drösl­ast með „óþekktar þungan hlut“ inn á svæði sem ISIS hefur nýtt í hern­að­ar­að­gerðum sínum í Ramadi í Írak. Maðurinn var felldur í árás. Í Pentagon-skjöl­unum kemur fram að hlut­ur­inn var í raun „smá­byggð mann­eskja,“ eða öllu heldur: Barn. Barnið lést í árásinni.

Reglur mögulega brotnar í einni árás af 1.317

Allar árásir eru yfir­farnar af banda­ríska hernum en í dæm­unum sem hér hafa verið nefnd taldi her­inn að ekki hafi verið um mis­gerðir að ræða eða ranga ákvarð­ana­töku. Aðeins í einu dæmi af 1.311 komst her­inn að þeirri nið­ur­stöðu að mögu­lega hefðu reglur verið brotnar. Þá voru bætur aðeins greiddar vegna tíu árása.

Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa heitið gagn­sæi þegar kemur að loft­árásum. Barack Obama hóf loft­árásir í Írak, Sýrlandi og Afganistan í sinni valda­tíð og héldu þær áfram í for­seta­tíð Donalds Trump og voru yfir 50 þús­und tals­ins frá 2014-2020. Rannsókn NY Times bendir til þess að loft­árásir Banda­ríkja­hers hafi verið byggðar á göll­uðum upp­lýs­ingum, óná­kvæmri ákvarð­ana­töku og leitt til dauða þús­unda almennra borg­ara, þar á meðal margra barna.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar stang­ast á við full­yrð­ingar Banda­ríkja­stjórnar þar sem því hefur verið heitið að dróna­árásir tryggi gagn­sæi og að „stór­kost­leg tækni“ Banda­ríkj­anna myndi tryggja að settu mark­miði sé ávallt náð, það er að ná skot­mark­inu en kom­ast hjá því að drepa börn og almenna borg­ara.

Hér má nálg­ast frétta­skýr­ingu New York Times í heild sinni, sem verður í nokkrum hlutum og hér má nálg­ast öll leyniskjölin frá Pentagon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár