Geyma pólitískt þrætuepli í eyðimörk í Kaliforníu

Offram­leiðsla her­gagna í Banda­ríkj­unum er geymd í eyði­mörk í Kali­forníu.

Þegar þysjað er inn í eyðimörkina nyrst í Kaliforníu á vef Google Maps sjást Abrams-skriðdrekarnir í röðum.
Þegar þysjað er inn í eyði­mörk­ina nyrst í Kali­forníu á vef Google Maps sjást Abrams-skrið­drek­arnir í röðum. Mynd: Skjáskot af Google Maps

Hátt í Sierra-fjall­garð­inum nyrst í Kali­forn­íu­ríki í Banda­ríkj­unum er stór sand­s­létta. Úr fjarska er ekk­ert athuga­vert við þetta þurr­lendi, bara sand­breiða og órækt.

Þegar nánar er að gáð koma heilu rað­irnar af yfir­gefnum skrið­drekum. Hver bryn­varði drek­inn á fætur öðrum hefur verið skil­inn eftir til þess að hverfa sand­inn, öllum lagt í beinar raðir eins og þeim hafi verið stillt upp í her­sýn­ingu í alræð­is­ríki.

Sierra Army Depot er ein stærsta her­gagna­geymsla í heimi. Þar eru ekki aðeins skrið­drekar heldur má þar finna fjöld­ann allan af bryn­vörðum trukkum sem ein­hvern tíma hafa verið not­aðir til flutn­inga í hern­aði Banda­ríkja­hers erlendis.

Geymsla síðan í seinni heimsstyrjöld

Banda­ríski her­inn hóf að nota slétt­una fremst í Nevada-eyði­mörk­inni til her­gagna­geymslu í seinni heims­styrj­öld­inni. Stað­setn­ingin þótti hentug því hún var nógu langt inni í landi (og hátt yfir sjáv­ar­máli) til þess að Japanir kæmust ekki nálægt með flug­skeyti eða kamakaze-flug­vélar.

Þrátt fyrir að vera langt inn í landi eru sam­göngur þaðan nokkuð greiðar og hægt að flytja skrið­dreka eða sprengju­trukka eftir lestar­teinum til hafnar í San Francisco-flóa. Þarna er úrkoma einnig eins lítil og hugs­ast getur í Banda­ríkj­unum sem lág­markar ryð og veð­ur­skemmdir á tækj­unum.

Herinn geymdi gríð­ar­legt magn af sprengjum og skot­vopnum í eins konar sand­húsum – ekki ósvip­uðum snjó­húsum eski­móa heldur úr sandi.

Eftir seinni heims­styrj­öld­ina hefur Sierra-her­gagna­geymslan orðið að geymslu fyrir tæki og tól þessa stærsta hers í heimi sem ekki er þörf á í bar­daga. Þarna er til dæmis að finna meira en 2.000 M1 Abrams-skrið­dreka sem annað hvort hafa þjónað sínum til­gangi í stríðum Banda­ríkj­anna eða hafa aldrei verið sendir í vopn­aða bar­áttu.

[adspot]

Innbyggð og óviðráðanleg offramleiðsla

Her­gagna­geymslan er ekki aðeins til­komu­mikið sjón­ar­spil og ágætis áminn­ing um hern­að­ar­mátt Banda­ríkj­anna heldur þykir Sierra Army Depot vera ágætis dæmi um offram­leiðslu Banda­ríkj­anna á her­gögnum.

Banda­ríski her­inn óskar reglu­lega eftir því við banda­ríska þingið að fram­leiðslu úreltrar hern­að­ar­tækni verði hætt eða hún minnkuð. Hernaður 21. ald­ar­innar byggir í sí auknum mæli á ómönn­uðum her­gögnum og árásum úr lofti, svo ekki sé minnst á nethernað. Herinn hefur þess vegna æ minna gagn af nærri því 40 ára gam­alli skrið­dreka­hönnun.

Svo dæmi sé tekið af Abrams-skrið­drek­anum sem fer nán­ast beint af færi­band­inu í eyði­mörk­ina handan Sierra-fjall­garðs­ins. Skrið­drek­inn hefur verið fram­leiddur síðan árið 1980 og hefur hlotið margs­konar upp­færslur og end­ur­bætur síðan. Hvert tæki vegur rúm­lega 60 tonn og er tal­inn vera ágætur til síns brúks. En hann hentar ekki í nútíma­hern­aði.

Yfir­stjórn hers­ins hefur þess vegna marg­sinnis óskað eftir því að fram­leiðslu hans verði hætt. Þingið á hins vegar mjög erfitt með að stöðva fram­leiðsl­una enda er her­gagna­fram­leiðsla veiga­mik­ill þáttur í hag­kerfi ein­stakra ríkja og kjör­dæma í Banda­ríkj­unum. Þingmenn sem greiða atkvæði með því að sér­hæft vinnu­afl missir vinn­una geta, með öðrum orðum, átt hættu á að ná ekki end­ur­kjöri.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, náði að gera allt vit­laust í des­em­ber síð­ast­liðnum með einu tvíti þar sem hann gagn­rýndi kaup Obama-stjórn­ar­innar á nýjum Lockheed Martin-orystuflug­vélum og ákvað að biðja Boeing um gagntil­boð.

Afrakstur þessa tvíts var að mark­aðsvirði Lockheed Martin (sem Banda­ríkin hafa reglu­lega keypt her­gögn af) hrundi.

Í ljósi þessa þá er kannski ekk­ert skrítið að Banda­ríkin hafa yfir stærsta her heims að ráða. Það er ein­fald­lega inn­byggt í efna­hags­lega afkomu ein­stakra ríkja innan Banda­ríkj­anna að fram­leiða her­gögn.

Þar til Banda­ríkin há stríð á evr­ópskum sléttum á ný eins og þau gerðu í seinni heims­styrj­öld­inni þá er útlit fyrir að sand­ur­inn fái að gleypa Abrams-skrið­drek­ana og öll hin tækin með tíð og tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár