Er sameiginleg varnarstefna Evrópu án forystu Bandaríkjanna tímabær?

Bjarni Bragi Kjart­ans­son fjallar um evr­ópsk varn­ar­mál og þá val­kosti sem Evr­ópu­ríki hafa aðra en að reiða sig á NATO.

Evrópa hefur engan eiginlegan her en hugmyndir um slíkt hafa lengi verið til. Sameiginlegur Evrópuher gæti þjónað margvíslegum tilgangi þegar kemur að lausn vandamála í alþjóðasamfélaginu.
Evrópa hefur engan eig­in­legan her en hug­myndir um slíkt hafa lengi verið til. Sam­eig­in­legur Evr­ópu­her gæti þjónað marg­vís­legum til­gangi þegar kemur að lausn vanda­mála í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Mynd: Anna Norén/annnor11 / ME03

Nýlega kynnti Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins stefnu um nán­ari sam­vinnu í öryggis- og varn­ar­málum. Þar eru stigin ákveðin skref í átt að auk­inni sam­hæf­ingu á fram­lagi ríkj­anna til her­mála, rann­sókna, her­gagna­fram­leiðslu og þjálf­unar mann­afla. Þetta kann að hljóma ógn­væn­lega í hugum ein­hverra; er nú verið að stofna Evr­ópu­her­inn sem ungt fólk verður skyldað í? Er Evr­ópu­sam­bandið búið að missa sjónar á mark­miðum sínum um frið í Evrópu og að breyt­ast í hern­að­ar­banda­lag?

Stutta svarið við þessum spurn­ingum er nei þótt vissu­lega sé verið að auka það sem mætti kalla hern­að­ar­leg umsvif ESB. Málið snýst ann­ars vegar um hinar svoköll­uðu hraðliðs­sveitir sem komið var á fót fyrir nokkrum árum, en sjaldan eða aldrei hefur verið gripið til m.a. vegna ósættis um fjár­mögnun þeirra. Nú verður breyt­ing á, þar sem sú fjár­mögnun er komin inn á fjár­hags­á­ætlun sam­bands­ins og því ekki lengur háð fram­lagi ríkj­anna í hvert og eitt sinn. Hins vegar snýst þetta um almenna upp­bygg­ingu eigin varn­ar­getu Evr­ópu­ríkja, bæði ríkj­anna sem slíkra sem og sam­eig­in­lega. Þessi aukna sam­vinna mun nýt­ast í þeim öryggis- og varn­ar­tengdu verk­efnum sem unnin eru undir merkjum ESB, en einnig NATO.

[adspot]

Evrópa hefur dregið lappirnar – Bandaríkjamenn við stjórn

Gjarnan er nefnt að Evr­ópu­ríki séu van­máttug þegar kemur að hern­að­ar­að­gerðum, sem endi á því að Banda­ríkja­menn þurfi koma til bjargar. Það má til sanns vegar færa og kom ágæt­lega fram í aðgerð­unum í Líbýu þegar Gaddafi var komið frá völdum. Hvað sem segja má um gildi þeirra aðgerða sýndi það sig að Evr­ópu­ríki voru og eru van­búin til hern­að­ar­að­gerða svo Banda­ríkja­menn, sem höfðu ætlað að fylgj­ast með og styðja við, neydd­ust til að taka yfir stjórn aðgerða. Þó er rétt að hafa í huga að ESB rekur nokkrar frið­ar­gæslu­að­gerðir undir eigin merkjum – fyrst og fremst í Afríku – en einnig á Balkanskaga. Þar eru her­menn oft í hlut­verki eft­ir­lits­manna eða hluti þjálf­un­arteyma.

Á það ber að líta að nokkur Evr­ópu­ríki leggja tals­vert fjár­magn til NATO þar sem Banda­ríkja­menn hafa tögl og hagldir. Þó er óhætt að full­yrða að eftir lok Kalda stríðs­ins og í ljósi breyttar heims­myndar, hefur mik­il­vægi þess auk­ist að Evrópa láti til sín taka á sviði öryggis- og varn­ar­mála á eigin for­sendum.

Sam­eig­in­leg öryggis- og varn­ar­stefna hefur ekki verið í for­grunni Evr­ópu­sam­run­ans lengst af, sem hefur haft ákveðna kosti – en einnig nokkra galla. Sam­starfs í öryggis- og varn­ar­málum hefur þó verið að taka á sig ákveðn­ari mynd með árunum. Það var til­greint í Maastrict- og Amster­dam-sátt­mál­unum 1992 og 1999 en skriður komst fyrst sam­starfið á leið­toga­fundi Breta og Frakka árið 1999, þegar leið­togar ríkj­anna hvöttu ESB til þess að komið yrði á sam­eig­in­legri öryggis- og varn­ar­mála­stefnu.

Ráðamenn í Washington hafa um langt skeið þrýst á Evr­ópu­ríki um varn­ar­fram­lög upp á tvö pró­sent af lands­fram­leiðslu og að taka þannig meiri ábyrgð á eigin vörnum. Var það m.a. sam­þykkt sem almennt mark­mið á leið­toga­fundi NATO í Wales í sept­em­ber 2014. Yfir­lýs­ingar Trumps og félaga um að bein­línis sé verið að féfletta banda­ríska skatt­greið­endur, og að þau ríki sem ekki muni leggja til sinn skerf til varn­ar­mála muni síður njóta verndar Banda­ríkja­manna, eru þó nýjar af nál­inni. Þær hafa aug­sýni­lega valdið ákveðnu upp­námi í sam­starfi innan banda­lags­ins, en hins vegar hefur verið bent á að þetta tveggja pró­senta við­mið sé afvega­leið­andi. Má auð­veld­lega túlka þennan mál­flutn­ing banda­rískra ráða­manna sem dæmi­gerða póli­tíska sýnd­ar­mennsku á heima­velli.

Donald Trump hefur talað niður Evr­ópu­sam­vinnu, fagnað Brexit og tekið undir með fólki eins og Marine Le Pen sem vill sundra Evrópu fremur en sam­eina. En sé ein­hver raun­veru­leg mein­ing að baki orða Trumps, um að Banda­ríkin þurfi að losna undan þeirri ábyrgð sem þau hafa borið á vörnum Evr­ópu­ríkja, þá ætti sam­einuð sterk Evrópa að vera for­gangs­mál fyrir Banda­ríkin.

Áður en hlaupið er til við aukna her­væð­ingu í Evrópu er mik­il­vægt að átta sig á því hvaðan ógn­irnar koma. Helsta sýni­lega hern­að­ar­lega ógn Evrópu kemur úr austri, frá Rússum. Hafa ber í huga að Evr­ópu­búar eru fjórum sinnum fleiri en Rússar og sam­an­lögð lands­fram­leiðsla Evr­ópu­ríkja er tólf­föld sú rúss­neska. Jafn­framt er mik­il­væg sú stað­reynd að fram­lög Evr­ópu­ríkja innan NATO til varn­ar­mála eru fimm sinnum meiri en fram­lög Rússa.

Vanda­málið er því ekki að Evr­ópu­ríki leggi ekki nóg til varn­ar­mála heldur hvernig fjár­mun­unum er varið – og jú, vilj­inn til þess að beita þeirri varnar- og hern­að­ar­getu sem ríkin búa yfir. Þar hefur aug­ljós vilji Rússa til slíks auk þess sem beit­ing þeirra á svoköll­uðum „hybrid“, eða duldum aðgerðum, sín áhrif. Það gefur auga­leið að bætt sam­eig­in­leg og sam­hæfð varn­ar­stefna, með samnýt­ingu fjár­magns, mann­afla og bún­aðar er hag­kvæmur og rök­réttur kostur. Slíkt gæti gert Evrópu kleyft að verða býsna öfl­ugt her­veldi, það annað stærsta í heimi. En er það endi­lega eft­ir­sókn­ar­vert?

Kostir veikrar öryggis- og varnarstefnu

Óhætt er að full­yrða að það fylgi því margir kostir að búa ekki yfir og þurfa að beita öfl­ugum her­afla í lík­ingu við þann sem Banda­ríkja­menn búa yfir. Hlutverk ESB hefur fyrst og fremst varðað hið svo­kall­aða borg­ar­lega öryggi – eða hina mjúku hlið örygg­is­mála – og sam­bandið að mestu látið NATO um hina hefð­bundnu og hern­að­ar­legu – eða hörðu – hlið mála. Þó getur ESB beitt sér á víg­stöðvum þar sem NATO á óhægt um vik af póli­tískum ástæðum. ESB getur til dæmis blandað sér í átök í Líbanon og Palest­ínu eða sýnt gott for­dæmi um hnatt­ræna ábyrgð með íhlutun.

Á sama hátt er ESB ekki eins ógn­andi og NATO og Banda­ríkin gagn­vart Rússum láti sam­bandið til sín taka í fyrrum Sov­étlýð­veldum, þó vissu­lega hafi ESB verið þeim þar þyrnir í augum. Sam­eig­in­leg varn­ar­stefna og auk­inn hern­að­ar­máttur gæti því hugs­an­lega gert sam­bandið meira ógn­andi út á við og erf­ið­ara um vik að beita sér þar sem „mýkri“ aðferðir eru áhrifa­rík­ari. Þannig má rök­styðja að veik sam­eig­in­leg varn­ar­stefna ESB sé um leið ákveð­inn styrkur.

Evr­ópu­ríkin hafa þannig getað ein­beitt sér að því að stuðla að lýð­ræð­isum­bótum, blóm­legum við­skiptum og bættu mann­lífi almennt meðal Evr­ópu­búa. Sam­keppni um jafn við­kvæm mál og víg­búnað og her­varnir innan ESB gæti mögu­leg valdið áður óþekktri inn­byrðis spennu, m.a. vegna misvægis í fram­lagi ríkj­anna, að ógleymdri þeirri stað­reynd að innan ESB eru ríki sem eru stolt af hlut­leys­is­arf­leifð sinni (þó ekk­ert þeirra sé her­laust). Evr­ópu­sam­bandið sem öfl­ugt her­veldi kann jafn­framt að raska ákveðnu valda­jafn­vægi sem byggir á yfir­burðum Banda­ríkja­manna. Í því sam­hengi er var­huga­vert að fara í sam­keppni og þaðan af síður víg­bún­að­ar­kapp­hlaup við Banda­ríkin, enda ekk­ert sem gefur til­efni til slíks.

Ókostir veikrar og ómarkvissrar öryggis- og varnarstefnu

Ókostir ómark­vissrar og ósam­hæfðar öryggis- og varn­ar­stefnu eru þó nokkrir. Þótt vel hafi farið um Evrópu undir hand­leiðslu Banda­ríkj­anna (og NATO) í kjöl­far tveggja blóð­ugra styrj­alda er ýmis­legt sem rennir stoðum undir að það fyr­ir­komu­lag geti ekki gengið til lengdar. Evr­ópu­menn hljóta að ókyrr­ast og hugsa sinn gang þegar leið­togi helsta banda­manns þeirra er alger­lega van­hæfur til að fást við utan­rík­is­mál, auk þess sem hann virð­ist lifa í ein­hverjum hlið­ar­veru­leika sem m.a. virð­ist búinn til af Fox-fréttum og Breit­bart-miðl­inum.

En burt­séð frá því hver gegnir emb­ætti Banda­ríkja­for­seta er það bein­línis óeðli­legt að heil heims­álfa, með fimm hund­ruð milljón íbúa og fimmt­ung allrar fram­leiðslu í heim­inum, skuli stóla á Banda­ríkin þegar kemur að her­vörnum. Geti Evr­ópu­menn byggt á eigin verð­leikum hvað varðar her­varnir, án Banda­ríkja­manna í bíl­stjóra­sæt­inu, má t.d. rök­styðja að auð­veld­ara yrði að þróa heil­brigð­ara sam­band við Rússa.

Öryggis- og varnarmál eru af margvíslegum toga

Ekki má gleyma þeirri stað­reynd að öryggis- og varn­ar­mál snú­ast langt í frá ein­göngu um byssur og skrið­dreka. Sam­eig­in­leg stefna Evr­ópu­sam­bands­ins snýst um örygg­is­mál í stóru sam­hengi, m.a. hryðju­verkaógn og net­ör­ygg­is­mál. Þó skref séu tekin sem varði hin hörðu svið örygg­is­mála, vopn og hern­að­ar­upp­bygg­ingu, þá er einnig nauð­syn­legt að skoða málið í því stóra sam­hengi.

[links]Heild­rænni nálgun á öryggis- og varn­ar­mál í sem víðustum skiln­ingi er kannski það sem Evrópa – með Evr­ópu­sam­bandið í broddi fylk­ingar – hefur fram að færa umfram NATO, og þá afstöðu og aðferða­fræði sem Banda­ríkin standa fyrir, sér­stak­lega undir núver­andi for­seta.

Hér er t.d. vert að hafa í huga að Evrópa – og Evr­ópu­sam­bands­ríkin sér­stak­lega – veitir mun meira fé til þró­un­ar­mála og efna­hags­að­stoðar í þriðja heim­inum en Banda­ríkin. Trump stefnir bein­línis að veru­legum sam­drætti í þeim efnum. Banda­rísk fram­lög til þró­un­ar­mála nema um 0,25% af þjóð­ar­fram­leiðslu á meðan að ESB-ríki leggja til tæp­lega 0,5% af sam­eig­in­legri þjóð­ar­fram­leiðslu. Öll ESB-ríkin eru hins vegar búin að skuld­binda sig til þess að greiða 0,7% þjóð­ar­fram­leiðslu til þró­un­ar­mála, og þriðj­ungur aðild­ar­ríkj­anna hefur þegar náð því mark­miði eða er kom­inn fram úr því.

Lausn þeirra stóru vanda­mála – ann­arra en ógn­andi og óút­reikn­an­legrar hegð­unar Rússa – sem Evrópa stendur frammi fyrir, eins og hryðju­verkaógn, flótta­manna­vandi og félags­legur og efna­hags­legur óstöð­ug­leiki suður og austur af álf­unni, felst ekki í vopna­skaki og fæl­ing­ar­mætti einum saman. Þau vanda­mál kalla á umtals­vert betri sam­þætt­ingu hefð­bund­inna varn­ar­mála, þró­un­ar­að­stoðar og efna­hags­upp­bygg­ingar. Í þeim efnum ætti Evr­ópu­sam­bandið að geta lagt enn frekar til mál­anna með sam­hæfðum hætti. Eflingu varnar- og örygg­is­getu sam­bands­ins ætti því einnig að skoða í því ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár