Trump segist nú samþykkur 5. grein NATO-sáttmálans

Kemur Trump til varnar eftir allt saman?

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagð­ist á blaða­manna­fundi í garði Hvíta húss­ins í dag styðja 5. grein sátt­mál­ans um Atl­ants­hafs­banda­lagið, NATO.

Frá þessu er greint á vef frétta­stof­unnar Reuters.

Trump hefur allt frá því að hann var val­inn for­seta­efni repúblik­ana fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í fyrra kastað rýrð á gildi sátt­mál­ans og sagt önnur aðild­ar­ríki verða að fara að greiða meira til varn­ar­mála en þau gera nú þegar.

Samkvæmt þess­ari fimmtu grein NATO-sátt­mál­ans þá jafn­gildir árás á eitt aðild­ar­ríki NATO árás á þau öll. Varnir Íslands eru til dæmis tryggðar í þessum sátt­mála, enda reiða Íslend­ingar sig ein­göngu á heri ann­ara landa ef óvina­her ræðst hér á land.

NATO-aðild hefur hins vegar mun skýr­ari þýð­ingu fyrir löndin aust­ast í Evrópu, og landamæra­ríkin við Rússland. Eistra­salts­ríkin þrjú hafa und­an­farin ár ótt­ast inn­rás Rússa í síauknum mæli. Orð Donalds Trump um NATO hafa ekki sefað þann ótta.

Trump lýsti því síð­ast á fundi þjóð­ar­leið­toga NATO-ríkja í Brussel að önnur NATO-ríki yrðu að borga sinn skerf til varn­ar­mála ef að Banda­ríkin ættu að koma þeim til varnar ef eitt­hvað bját­aði á.

„Ég er að skuld­binda Banda­ríkin við 5. grein­ina og að sjálf­sögðu erum við hér til þess að vernda,“ sagði Trump og hélt áfram: „og það er ein ástæða þess að ég vil láta fólk vita að við eigum mjög, mjög sterkan her með því að borga eins mikið og við gerum til varn­ar­mála.“

„En já, algjör­lega þá mundi ég virkja 5. grein­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár