Þið verðið bara að venjast þessu, segja Kínverjar

Kín­verjar hnykla enn vöðvana undan ströndum nágranna sinna.

Þetta er það sem koma skal, segir Kína sem flaug her­flug­vélum nærri loft­helgi Japans við her­æf­ingar í gær.

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Japans lýsti því í gær hvernig það leit á flug kín­verska hers­ins sem „óeðli­legt“. Þar er einnig und­ir­strikað að her­flug­vél­arnar, allar af gerð Xian H-6, hafi ekki brotið loft­helgi Japana.

Kín­verski sjó- og flug­her­inn hefur verið við stífar æfingar á vest­an­verðu Kyrra­hafi und­an­farna mán­uði. Herinn skerpir nú á getu sinni til þess að standa í stór­ræðum langt frá ströndum Kína.

Frá þessu er greint á vef frétta­stofu Reuters.

„Það land sem er hér til umræðu ætti ekki að gera of mikið úr neinu eða oftúlka, þetta verður allt í lagi um leið og þau verða orðin vön þessu,“ sagði í yfir­lýs­ingu kín­verska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kín­verjar segja til­burði hers­ins lög­lega og til siðs. Þeir muni halda áfram að skipu­leggja æfingar sínar eftir því sem kraf­ist er hverju sinni.

Æfing­arnar nærri loft­helgi Japans fóru fram á Miyako-sundi milli japönsku eyj­anna Miyako og Okinawa, norð­austan af Taívan. Þjóð­ar­varn­ar­ráðu­neyti Taívan seg­ist hafa fylgst náið með æfing­unum, sem komu einnig nærri loft­varn­ar­svæðis eyj­ar­innar.

Kín­verjar hafa staðið í hern­að­ar­legum stór­ræðum undan ströndum Kína á und­an­förnum miss­erum. Í Suður-Kínahafi hefur Kína til dæmis byggt eyjar á skerjum í þeim til­gangi að tryggja sér yfir­ráð yfir þessu umdeilda haf­svæði.

Þá hafa Kín­verjar lengi staðið með Norður-Kóreu í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Gífurleg ógn stafar nú af Norður-Kóreu vegna kjarn­orku­afls þeirra. Japan er eitt þeirra ríkja sem hefur lengi verið innan seil­ingar Kim-fjöl­skyld­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár