Metvelta á hergagnamarkaði árið 2015

Banda­ríkin og Rússland deila með sér sölu á meiri­hluta vopna í heim­inum.

Her­gagna­mark­aður heims­ins velti 65 millj­örðum doll­ara árið 2015. Mark­að­ur­inn hefur aldrei velt jafn miklum fjár­munum. Lang stærsti kaup­and­inn var Sádí-Arabía sem stækk­aði vopna­búr sitt gríð­ar­lega, eða um rúm­lega níu millj­arða Banda­ríkja­dala.

Sádí-Arabía leiðir hern­að­ar­banda­lag ríkja sem vilja hafa áhrif á útkomu borg­ara­styrj­ald­ar­innar í Jemen. Til þess þurfti þetta víð­femasta land á Arab­íu­skaga að stækka vopna­búrið sitt. Aukning inn­flutn­ings Sádí-Arabíu á her­gögnum nam um það bil 50 pró­sent milli ára. Annars hafa inn­kaup vopna auk­ist víða í Mið-Aust­ur­löndum og í Suð­austur-Asíu.

Viðbótin í vopna­búr Sáda árið 2015 eru meðal ann­ars orustu­þotur, F-15 her­flug­vélar, þyrlur, nákvæm flug­skeyti, flý­gildi og eft­ir­lits­bún­aður. Ótryggt ástand í Mið-Aust­ur­löndum er einn hvatanna fyrir ríki til að auka við vopna­búr sitt. Írakar hafa eytt miklu í hernað und­an­farin ár og gerðu það einnig í fyrra. Íraksher berst gegn hryðju­verka­mönnum í norð­an­verðu land­inu.

Velta her­gagna­mark­að­ar­ins jókst um 10 pró­sent á milli ár, sam­kvæmt árlegri úttekt. Mark­að­ur­inn hefur ekki vaxið jafn mikið milli ára síð­ast­lið­inn ára­tug. Indland var næst stærsti kaup­andi vopna árið 2015; versl­aði fyrir nærri 4,5 millj­arða doll­ara.

Stærstu útflytj­endur vopna í heim­inum eru Banda­ríkin og Rússland. Samkvæmt árbók Alþjóða­friða­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar í Stokk­hólmi fyrir árið 2015 sem kom út í ár bera Banda­ríkin ábyrgð á 31 pró­sent alls útflutn­ings her­gagna á árunum 2010 til 2014. Rússar bera ábyrgð á 27 pró­sent á sama tíma­bili. Þar á eftir koma Kína, Þýska­land og Frakk­land með fimm pró­sent hlut­deild hvert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár