Tvöfaldur í roðinu

Hugo Plaun hefur lengi verið ein helsta stríðs­hetja Dana, og var vel skreyttur her­maður sem hitti fyr­ir­menni og sagði ótrú­legar sögur sínar víða. Nú er komið í ljós að Plaun laug öllu saman.

Ein orðan sem Plaun skartaði, en hún reyndist eftirlíking.
Ein orðan sem Plaun skart­aði, en hún reynd­ist eft­ir­lík­ing.

Í Charlottenlund við Kaup­manna­höfn býr 96 ára gam­all danskur maður, marg­heiðruð stríðs­hetja vegna ótrú­legra afreka. Þar er þó einn hængur á: afreks­sögur hans í þágu föð­ur­lands og banda­manna í heims­styrj­öld­inni síð­ari eru hreinn upp­spuni og minna helst á frá­sagnir Munchausens bar­óns. Eins og blaða­menn Weekendavisen danska komust að, í sam­vinnu við danskan lög­reglu­mann og grúskara.

25. mars árið 2012 var Karl Breta­prins í opin­berri heim­sókn í Kaup­manna­höfn ásamt eig­in­konu sinni, Camillu her­toga­ynju. Mikið var um dýrðir og breski rík­is­arf­inn heim­sótti meðal ann­ars Frels­issafnið, skammt frá Löngu­línu. Safn þetta (sem skemmd­ist mikið í eldi árið 2013) er til­einkað sögu her­náms­ins og and­spyrnu­hreyf­ingar Dana á árunum 1940 – 1945. Her­mönnum sem tekið höfðu þátt í stríð­inu var sér­stak­lega boðið í safnið í til­efni heim­sókn­ar­innar. Þeir sem mættu voru í sínu fín­asta pússi og með gljá­fægð heið­urs­merki í barm­inum, flestir mörg. Meðal þeirra sem Karl og Camilla heilsuðu uppá, og spjöll­uðu við drjúga stund, var maður að nafni Hugo Plaun.

Breski rík­is­arf­inn veitti sér­staka athygli tveimur heið­urs­merkjum sem hin aldna stríð­skempa bar í barm­inum. Annað þeirra var heið­urs­pen­ingur bresku sér­sveit­anna (SAS) og hinn pen­ing­ur­inn hin svo­nefnda DSO orða, sem er næst æðsta við­ur­kenn­ing bresku her­þjón­ust­unnar. Það sem rík­is­arf­inn vissi ekki var að á bak­hlið DSO orð­unnar stóð með upp­hleyptum stöfum orðið Kopi – eft­ir­lík­ing. Hugo Plaun hafði keypt orð­una hjá skran­sala í London. SAS heið­urs­merkið hafði Hugo Plaun ein­hvern­veg­inn kom­ist yfir fyrir ára­tugum og sömu­leiðis banda­ríska Purp­ura­hjartað, Purple heart, sem hann bar einnig. „Þú hefur sann­ar­lega upp­lifað sitt af hverju,“ sagði rík­is­arf­inn og tók þétt í hönd hins aldna her­manns. „Ójá“ svar­aði Hugo Plaun.

Hermennskan

11. nóv­em­ber árið 2010 flutti Hugo Plaun fyr­ir­lestur á vegum sam­taka fyrr­ver­andi her­manna. Hér verður stiklað á stóru í þeirri frá­sögn.

Hugo Plaun fædd­ist í Banda­ríkj­unum árið 1920, faðir hans var þá starfs­maður dönsku utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Árið 1935 flutti fjöl­skyldan til Dan­merkur. Skömmu eftir her­nám Þjóð­verja 1940 flutti Hugo Plaun, sem hafði banda­rískt vega­béf, til Sví­þjóðar þar sem hann stopp­aði stutt við en hélt vestur um haf og skráði sig í kanadíska her­inn. Hersveit hans fór til Englands og þaðan til Egypta­lands. Hann sótti því næst um að kom­ast í litla sér­sveit, sem síðar fékk heitið Special Air Service, SAS. Nú hófst mikil þjálfun, sem meðal ann­ars fólst í því að ganga 40 kíló­metra dag­lega, í brenn­andi eyði­merk­ur­hit­anum, æfa fall­hlíf­ar­stökk og fleira. Í fyrsta leið­angri sér­sveit­ar­innar, sem taldi 60 menn, skall á ofs­arok, þriðj­ungur sveit­ar­innar fórst þegar fall­hlíf­arnar opn­uð­ust ekki og margir særð­ust. Þar á meðal Hugo Plaun, sem var í mánuð á spít­ala. Þegar hann kom til baka var sveitin ein­ungis skipuð 30 mönnum.

Besta stríðstólið var Willys

Árið 1942 fékk sér­sveitin það sem Hugo Plaun kall­aði í fyr­ir­lestri sínum „besta vopnið“. Þetta var Willys jepp­inn, sem þá var fyrir skömmu farið að fram­leiða. Þetta ger­breytti mögu­leikum sér­veit­ar­innar sem varð, að sögn Hugo Plaun, vel ágengt í bar­átt­unni við óvin­inn, eyði­lagði meðal ann­ars 435 þýskar flug­vélar. Sér­sveitin hélt síðan til Sikil­eyjar, þar sem félagar úr mafí­unni aðstoð­uðu við að herja á Þjóð­verja. „Primitivo vínið þeirra ítölsku er frá­bært,“ sagði Hugo Plaun og upp­skar hlátur við­staddra.

Sveit Hugo Plaun var meðal þeirra fyrstu sem komu til Berlínar undir lok stríðs­ins og ástandið þar var ólýs­an­legt að sögn. Hið við­burða­ríka líf Hugo Plaun end­aði þó ekki þar því hann dvald­ist síðar á Spáni og enn­fremur lá leið hans til Kóreu þar sem hann þjálf­aði og stjórn­aði banda­rískum her­mönnum. Í Kóreu særð­ist hann alvar­lega, lá tvö ár á sjúkra­húsi og árið 1956 sneri hann heim til Dan­merkur. Þarna lauk frá­sögn Hugo Plaun.

Aldrei heyrt annað eins

Þeir sem hlust­uðu á fyr­ir­lestur Hugo Plaun 11. nóv­em­ber sátu agn­dofa undir æsi­legri og ótrú­legri frá­sögn stríð­skemp­unnar og sumir höfðu á orði eft­irá að þessi maður hefði ekki níu líf, einsog sagt er um ketti, heldur 29 líf og kannski fleiri. Lýsingar hans voru ótrú­legar og þegar fyr­ir­lestr­inum lauk ætl­aði lófatak­inu aldrei að linna. Hugo Plaun fékk í kjöl­farið fjöl­margar beiðnir um fyr­ir­lestra og hann var einnig far­ar­stjóri í ferða­lagi fyrr­ver­andi her­manna um Holland, Belgíu og fleiri lönd. Hópurinn heim­sótti meðal ann­ars höf­uð­stöðvar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins þar sem fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins, Anders Fogh Rasmus­sen, sagði frá starf­semi banda­lags­ins. „Einkar ánægju­leg heim­sókn“ sagði Anders Fogh Rasmus­sen síðar.

Pappírarnir á Ríkisskjalasafninu

Eins og nefnt var í upp­hafi pistils­ins komust blaða­menn Weekendavisen á snoðir um að danskur lög­reglu­maður hefði rann­sakað sögu Hugo Plaun og að þátt­taka hans í síð­ari heims­styrj­öld hefði verið með nokkuð öðrum hætti en frá­sögnin sem fyrr­ver­andi her­menn hlýddu andaktugir á 11. nóv­em­ber 2010. Lög­reglu­mað­ur­inn, sem er frí­stunda­grúsk­ari, hafði fundið í danska Rík­is­skjala­safn­inu möppu með nafni Hugo Plaun. Forvitni lög­reglu­manns­ins, sem hafði heyrt frá­sagnir af stríðsa­frekum Hugo Plaun, var vakin. Í möpp­unni voru skjöl varð­andi rétt­ar­höld sem fram fóru snemma árs 1946. Lög­reglu­mað­ur­inn hélt að kannski væri þetta umferð­ar­laga­brot eða eitt­hvað af því tagi en ákvað að kíkja á papp­írana. Mikil var undrun hans þegar hann fór að fletta skjöl­unum: Hugo Plaun hafði verið dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir sam­vinnu við Þjóð­verja. Stríðs­hetjan sjálf. Lög­reglu­mað­ur­inn velti fyrir sér hvort stríðs­hetjan Hugo Plaun og sá dæmdi væru einn og sami mað­ur­inn. Svo reynd­ist vera.

Játaði fyrir Svíum

Á papp­ír­unum á Rík­is­skjala­safn­inu kom fram að Hugo Plaun hefði komið til Falsterbo í Svíþjóð 29. nóv­em­ber 1944. Þar gaf hann sig fram við yfir­völd, gaf upp falskt nafn og fæð­ing­ar­dag og sagð­ist hafa flúið frá Danmörku til Sví­þjóðar því hann hefði unnið gegn þýska her­námslið­inu í Danmörku og ótt­að­ist um líf sitt. Hann hefði fyrr þetta ár særst á fæti og hefði fyrst nú treyst sér í ferð­ina yfir sundið. Enginn gerði í upp­hafi athuga­semdir við frá­sögn hans og honum var útvegað hús­næði í Stokk­hólmi.

Fljót­lega vökn­uðu þó grun­semdir um að saga Hugo Plaun væri ekki alls­kostar sann­leik­anum sam­kvæm. Hann var þá hand­tek­inn og ját­aði strax að hann hefði gefið upp falskt nafn við kom­una til Sví­þjóðar. Útskýrði jafn­framt í löngu máli að hann hefði njósnað fyrir dönsku and­spyrnu­hreyf­ing­una, þótt hann hefði unnið hjá þýskum fyr­ir­tækjum. Sænska lög­reglan hafði hins­vegar upp­lýs­ingar um að Hugo Plaun hefði unnið fyrir Þjóð­verja og þá ját­aði hann að frá­sögn sín væri hreinn upp­spuni. Hann var þá fang­els­aður og sat í sænsku fang­elsi til stríðsloka.

Réttarhöldin í Danmörku

Eftir að styrj­öld­inni lauk var Hugo Plaun sendur til Dan­merkur og þar hófust rétt­ar­höld í máli hans 9. febr­úar 1946. Samkvæmt frá­sögn Hugo Plaun hafði hann vorið 1942 skráð sig í finnska her­inn en ári síðar gengið til liðs við Þjóð­verja „til að berj­ast gegn bol­sé­vikum.“

Hann sótti um starf sem stríðs­frétta­rit­ari og eftir stutt blaða­manna­nám­skeið í Berlín var hann sendur til Úkraínu og sendi þaðan fréttir af gangi mála. Í júní­mán­uði 1944 var Hugo Plaun svo kom­inn til Galisíu, á landa­mærum Póllands og Úkraínu, til að senda fréttir. Þar hleypti hann, að eigin sögn, af eina skot­inu á ævinni: skaut sig í fót­inn til að kom­ast burt frá víg­lín­unni. Þegar hann var í Danmörku, í fríi eftir að skotsárið var gróið, komst hann yfir til Sví­þjóðar, í nóv­em­ber 1944 eins og áður sagði. Eftir rétt­ar­höldin í Kaup­manna­höfn dæmdi Bæj­ar­réttur Kaup­manna­hafnar Hugo Plaun í 18 mán­aða fang­elsi fyrir að hafa unnið með Þjóð­verjum og 13. nóv­em­ber 1946 var hann lát­inn laus.

Hélt fortíðinni leyndri

Blaða­menn Weekendavisen heim­sóttu Hugo Plaun fyrir skömmu síðan. Hann hefur búið einn síðan eig­in­kona hans lést fyrir nokkrum árum. Hann var lengi bíla­sali en starf­aði einnig sem sjúkra­þjálf­ari, í Danmörku og Englandi. Þegar blað­menn­irnir hringdu dyra­bjöll­unni vissi Hugo Plaun ekk­ert um erindið og vildi fátt segja. Hann hafði hins­vegar sjálfur sam­band nokkrum dögum síðar og var þá til­bú­inn að ræða um for­tíð­ina. Hann sagði að hvorki eig­in­kon­urnar fimm né börnin fjögur, sem hann eign­að­ist, hafi vitað nokkuð um for­tíð hans.

Þegar blaða­menn spurðu Hugo Plaun um ástæður þess að hann gekk til liðs við Þjóð­verja sagð­ist hann hafa séð þar mögu­leika á að sleppa við her­þjón­ustu, hann hefði alltaf verið góður penni og Þjóð­verja hefði sár­lega skort stríðs­frétta­rit­ara.

„En hvaðan kom hug­myndin um stríðsa­frekin“ spurðu blaða­menn­irnir. Hugo Plaun svar­aði því til að þegar hann bjó í Worchester í Englandi á níunda ára­tug síð­ustu aldar hefði hann kynnst nokkrum körlum sem á sínum tíma voru í SAS sér­sveit­inni. „Þeir höfðu frá mörgu að segja og þegar ég kom svo til Dan­merkur og gekk í Heima­varn­ar­liðið fór ég að segja þessar sömu sögur en gerði mig að aðal­per­són­unni. Þeir göptu yfir þessum mergj­uðu frá­sögnum og smám saman bætti ég svo í,“ sagði Hugo Plaun. „Eitt skil ég ekki, hvernig í ósköp­unum stendur á því að eng­inn skuli hafa upp­götvað þetta fyrr en nú.“ Blaða­menn­irnir tóku undir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár