Herþotur til sölu

Þeir sem láta sig dreyma um að eign­ast orr­ustu­þotu geta kannski látið draum­inn ræt­ast. Danski flug­her­inn ætlar að selja 24 gamlar F-16 þotur. Margir sýna þeim áhuga en ekki fær hver sem er að kaupa vél­arnar.

Danska varnarmálaráðuneytið, herinn og danska þingið, Folketinget, komust að þeirri niðurstöðu að F- 35 vélin væri besti kosturinn fyrir danska herinn.
Danska varn­ar­mála­ráðu­neytið, her­inn og danska þingið, Fol­ket­inget, komust að þeirri nið­ur­stöðu að F- 35 vélin væri besti kost­ur­inn fyrir danska her­inn. Mynd: EPA

Fyrstu F-16 þot­urnar, sem eru banda­rískar, voru smíð­aðar árið 1976 og þóttu á þeim tíma þær full­komn­ustu sem völ var á. Danski her­inn fékk árið 1978 sína fyrstu þotu af þess­ari gerð en á nú sam­tals 43 slíkar. F-16 þotur danska hers­ins, smíð­aðar hjá Boeing, hafa reynst vel, eru í góðu lagi en þurfa mikið við­hald og tækni­bún­aður þeirra ekki lengur í sam­ræmi við ströng­ustu kröfur.

Umræður um endurnýjun

Umræður um end­ur­nýjun flug­flot­ans hófust í danska þing­inu og innan danska hers­ins árið 2011. Þingmenn köll­uðu fyr­ir­hug­aða end­ur­nýjun „við­skipti ald­ar­innar“. Nokkrar nefndir unnu að und­ir­bún­ingi kaupanna en þar var í mörg horn að líta. Vega og meta þurfti kosti og galla ein­stakra flug­véla­gerða, leggja mat á þarfir danska flug­her­ins á kom­andi árum o.s.frv. Fjár­fest­ingin er mikil, vél­arnar þurfa að henta verk­efnum sem flug­her­inn sinni og tryggja þarf að að vara­hlutir verði fáan­legir næstu ára­tugi, svo fátt eitt sé nefnt.

Þrjú meginverkefni

Verkefni danska flug­hers­ins skipt­ast í þrjá meg­in­flokka:

  1. Eftirlit með danskri loft­helgi. Þessu sinna að jafn­aði tvær vélar. Verk­efnið er að fylgj­ast með umferð erlendra flug­véla, ann­arra en far­þega­véla. Umferð erlendra flug­véla um danska loft­helgi, einkum rúss­neskra, hefur auk­ist til muna frá alda­mótum. Danir hafa harð­lega gagn­rýnt Rússa fyrir að virða allar reglur að vettugi og árið 2015 mun­aði minnstu að far­þega­vél frá SAS og rúss­nesk flug­vél (sögð njósn­a­vél) rækjust saman yfir Eyr­ar­sundi.
  2. Loft­rým­is­eft­ir­lit á vegum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO. Gæslan nær til Íslands og Eystra­salts­land­anna þriggja en þessi lönd ráða ekki yfir flug­her. Samn­ing­ur­inn um eft­ir­litið er frá árinu 2004 og síaukið hern­að­ar­brölt Rússa hefur orðið til þess að aukin nauð­syn er talin á slíku eft­ir­liti.
  3. Alþjóð­leg verk­efni. Danmörk hefur skuld­bundið sig til að taka þátt í alþjóð­legum verk­efnum NATO og leggja þar til að minnsta kosti fjórar vélar, með fullri áhöfn og þeirri þjón­ustu, t.d flug­virkjum, sem slíkum verk­efnum til­heyra. Danir hafa sömu­leiðis tekið þátt í verk­efnum ein­stakra NATO landa. Fyrstu verk­efni af þessu tagi voru í Kosovu á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Danskar orr­ustu­vélar tóku einnig þátt í árásum í Afganistan 2002-2003, í Líbíu árið 2011 og Írak á árunum 2014 og 2015.

F-35, F-18, Eurofighter Typhoon

Eftir að hafa kannað val­kost­ina stóð valið milli þriggja véla: Nýju vél­ar­innar F- 35 Joint Strike Fighter frá Lockheed Martin, F 18 Super Hornet frá Boeing og Eurofighter Typhoon frá Airbus. Síð­ast­nefnda vélin er fram­leidd í Evrópu, hinar tvær eru banda­rískar. Danska varn­ar­mála­ráðu­neytið, her­inn og danska þingið, Fol­ket­inget, komust að lokum að þeirri nið­ur­stöðu að F- 35 vélin frá Lockheed Martin væri besti kost­ur­inn. Loka­á­kvörðun um flug­véla­kaupin lá fyrir í árs­lok 2016 og samn­ing­ur­inn við Lockheed Martin hljóð­aði upp á 27 vélar af gerð­inni F- 35. Fyrsta vélin skyldi afhent árið 2023 og allar 27 vél­arnar yrðu komnar í hendur danska flug­hers­ins árið 2025. Þá verða liðin 14 ár frá því að umræður um end­ur­nýjun orr­ustu­þotna danska flug­hers­ins hófust.

Herinn vill selja þær gömlu

Eins og áður sagði á danski her­inn 43 orr­ustu­þotur af gerð­inni F- 16. Ákveðið hefur verið að selja, í áföngum 24 þess­ara þotna og ráð­gert er að á næsta ári verði seldar 8 þotur. Síðan verði 16 þotur til við­bótar seldar fram til árs­ins 2025 en þá eiga allar nýju vél­arnar, 27 tals­ins að vera komnar í hendur danska hers­ins. Þótt gömlu F- 16 vél­arnar hafi brátt runnið, eða flogið, sitt skeið hjá danska hernum eru þær síður en svo á leið­inni í brota­járn. Danski her­inn ætlar að selja þær og sam­kvæmt mati hers­ins má fá fyrir þær umtals­vert fé, hund­ruð millj­óna danskra króna. Casper Børge Nielsen tals­maður flug­hers­ins sagði í við­tali við danska sjón­varpið, DR, að margir vilji kaupa vél­arnar sem séu í topp­lagi, eins og hann komst að orði, og „þær eigi mörg ár eftir“.

Ekki hver sem er fær að kaupa

Dani sem ætlar að selja gamlan bíl, not­aða þvott­vél og 10 ára gamla kaffi­könnu lætur oft duga að smella inn aug­lýs­ingu í Den Blå Avis og áður en dagur er að kveldi kom­inn er hann laus við gamla dótið. Og er út af fyrir sig ekki mikið að velta fyrir sér hver kaup­and­inn sé, pen­ing­arnir eru aðal­at­riði máls­ins. Svona gengur það ekki fyrir sig þegar selja á gamla orr­ustu­þotu. Þar skipta pen­ing­arnir vita­skuld miklu en meiru skiptir þó hver kaup­and­inn er. Og gegnum það nál­ar­auga kemst ekki hver sem er. Þegar Danski flug­her­inn keypti F-16 þot­urnar á sínum tíma fylgdu kaup­unum ýmis skil­yrði. Eitt þess­ara skil­yrða var að banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið og fram­leið­and­inn Lockheed Martin skuli sam­þykkja kaup­and­ann. Þetta er gert til tryggja að þot­urnar lendi ekki í höndum hryðju­verka­sam­taka eða óvin­veittra aðila, eins og það er orðað. Auk þess þurfa flokk­arnir sem standa að danska varn­ar­sam­komu­lag­inu á þingi að leggja blessun sína yfir söl­una.

Casper Børge Nielsen tals­maður flug­hers­ins sagði að sala þotn­anna tæki langan tíma en það skipti engu ,,við höfum nægan tíma“.

Strangar öryggiskröfur og mikill kostnaður

Meg­in­að­setur danska flug­hers­ins er í Skydstrup á Suður-Jótlandi. Þýska her­námsliðið í Danmörku byggði flug­völl­inn sem var tek­inn í notkun árið 1943. Öll við­halds­vinna flug­flota danska hers­ins fer fram í Skydstrup og sam­stals starfa þar um eitt þús­und manns. Strangar örygg­is­kröfur gilda um alla starf­sem­ina og á síð­ustu árum hafa þær kröfur orðið æ strang­ari. Nýtt risa­stórt flug­skýli er í bygg­ingu, kostn­aður við það er fyrir löngu kom­inn langt fram úr áætlun. Því valda fyrst og fremst síauknar kröfur um öryggi.

Hávaði og skaðabætur

Þegar til­kynnt var um kaupin á nýju F- 35 vökn­uðu grun­semdir hjá nágrönnum flug­vall­ar­ins. Þeir töldu sig vita að nýju þot­urnar væru mun hávær­ari en þær gömlu og var hávað­inn þó, að þeirra mati, nægur fyrir. For­svars­menn flug­hers­ins full­yrtu að hávað­inn frá nýju þot­unum yrði að ,,mestu leyti innan marka“ eins og það var orðað, og nán­ast sá sami og frá þeim gömlu. Síðar kom í ljós að þær full­yrð­ingar áttu ekki við rök að styðj­ast. Þetta olli miklum deilum. Danska þingið sam­þykkti fyrir tveimur árum að íbúum í 1600 húsum í nágrenni flug­vall­ar­ins skyldu greiddar bætur vegna ónæðis frá her­þot­unum. „Hávaða­deil­unni“ er þó langt í frá lokið og búast má við að mála­ferli vegna hennar standi í mörg ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár