Sex flokka kosningabandalag til höfuðs Orbán

Sex stærstu flokk­arnir í ung­versku stjórn­ar­and­stöð­unni ætla sér að bjóða sam­ein­aðir fram krafta sína gegn Fidesz-flokki Viktors Orbán í kom­andi þing­kosn­ingum. Skoð­ana­kann­anir gefa til kynna að engu muni á kosn­inga­banda­lagi and­stöð­unnar og flokki Orbáns.

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands.
Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands. Mynd: EPA

Útlit er fyrir að Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands og leið­togi Fidesz-flokks­ins, fái snar­aukna sam­keppni í þing­kosn­ing­unum sem fram fara í land­inu á næsta ári.

Stjórn­ar­and­staðan hefur tekið sig saman og myndað sex flokka kosn­inga­banda­lag, sem mun bjóða fram gegn Orbán og flokki hans í öllum kjör­dæmum lands­ins. Vonir stjórn­ar­and­stöð­unnar standa til þess að sam­einuð nái hún nægum slag­krafti til þess að velta Fidesz-flokknum og leið­toga hans úr sessi, í fyrsta sinn síðan 2010.

Jafnvel þrátt fyrir að það myndi ekki takast standa vonir stjórn­ar­and­stöð­unnar til þess að sam­einað fram­boð myndi minnka ægi­vald Fidesz-flokks­ins á þing­inu. Þrátt fyrir að flokkur Orbáns hafi „ein­ungis“ fengið rúm 49 pró­sent atkvæða á lands­vísu fékk hann 133 þing­sæti af þeim 199 sem eru í boði á þjóð­þing­inu í Búdapest og þar með auk­inn meiri­hluta.

Flokk­arnir sex sem bjóða fram gegn stjórn­ar­flokknum fengu um 46 pró­sent atkvæða, en það skil­aði þeim litlu. Skoð­ana­kann­anir sýna að nær eng­inn munur er á fylgi kosn­inga­banda­lags­ins og Fidesz-flokks­ins um þessar mundir.

Sveigja kosningakerfið sér í vil

Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa und­an­farin ár gagn­rýnt þær breyt­ingar sem stjórn Orbáns hefur gert á kosn­inga­kerf­inu í land­inu á umliðnum ára­tug og sagt þær veita hlut­falls­lega of mörg þing­sæti til ráð­andi afla.

Sam­ein­uðu fram­boði stjórn­ar­and­stæð­inga er ætlað að reyna að jafna leik­inn, en ein­ungis einn fram­bjóð­andi verður val­inn fyrir hönd stjórn­ar­and­stöð­unnar í öllum 106 ein­menn­ings­kjör­dæmum lands­ins til þess að bjóða fram gegn fram­bjóð­endum stjórn­ar­flokks­ins.

[adspot]

Fyrir kosn­ing­arnar árið 2018 kom upp umræða í Ung­verja­landi um hvort mögu­legt væri að ná auknum árangri á lands­vísu með sam­einaðri stjórn­ar­and­stöðu, en for­dæmi eru fyrir því að stjórn­ar­and­staðan hafi sam­ein­ast í borg­ar­stjóra­kosn­ingum og haft betur, jafn­vel í borgum þar sem Fidesz er alla jafna langstærsti flokk­ur­inn, rétt eins og á lands­vísu.

Á síð­asta ári ræddu flokk­arnir sex mán­uðum saman um sam­starf í kosn­ingum næsta árs og lögðu þeir síðan í upp­hafi þessa árs fram grunn að kosn­inga­stefnu sinni.

Núna er ferli farið af stað til að velja for­sæt­is­ráð­herra­efni sam­einaðrar stjórn­ar­and­stöðu.

Fyrri umferðin fór fram dag­ana 18.-28. sept­em­ber og þar hlaut Klára Dobrev, vara­for­seti Evr­ópu­þings­ins og full­trúi tveggja frjáls­lyndra flokka í stjórn­ar­and­stöð­unni, flest atkvæði eða tæp 35 pró­sent.

Til stóð að hún myndi etja kappi við þá Gergely Karácsony, sem er full­trúi þriggja flokka sós­í­alde­mókrata og græn­ingja og Péter Márki-Zay, sem býður sig óháður fram, í síð­ari umferð for­vals stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem fram fer dag­ana 10.-16. októ­ber.

Að morgni dags þann 8. októ­ber bár­ust þó fréttir um að Karácsony, sem er borg­ar­stjóri í Búdapest, væri hættur við að fara fram og hefði lýst yfir stuðn­ingi við Márki-Zay, sem verður því einn í fram­boði gegn Dobrev.

Karácsony og Márki-Zay fengu 27 og 20 pró­sent atkvæða í fyrri umferð for­vals­ins, þar sem alls fimm val­kostir voru í boði.

Val um meira af Orbán eða góð tengsl við Evrópu

Dobrev ræddi við frétta­menn um hið sam­ein­aða fram­boð stjórn­ar­and­stöð­unnar á dög­unum og í frétt Reuters er haft eftir henni að kosn­ing­arnar í apríl á næsta ári muni snú­ast um val á milli „Orbán eða Evrópu“ – ef kjós­endur vilji að Ung­verja­land haldi góðum tengslum við Evr­ópu­sam­bandið þurfi þeir að greiða sam­einaðri stjórn­ar­and­stöð­unni atkvæði sitt.

Dobrev sagði enn­fremur að ef Orbán héldi áfram deilum sínum við Evr­ópu­sam­bandið, sem meðal ann­ars snúa að frelsi fjöl­miðla og mál­efnum fólks að flótta, myndi einn dag­inn koma að því að Ung­verjar yrðu sviptir styrk­veit­ingum úr sam­eig­in­legum sjóðum sam­bands­ins.

Fréttin var upp­færð með nýjum upp­lýs­ingum um brott­hvarf Karácsony úr for­vals­bar­átt­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár