Íslendingarnir sem vilja helst ekki ganga í ESB

Litlar hreyf­ingar eru á afstöðu Íslend­inga til inn­göngu í ESB á milli ára og tæp 42 pró­sent segj­ast and­víg inn­göngu. Kjarninn skoð­aði hvaða hópar á Íslandi eru mest á móti Evr­ópu­sam­bands­að­ild.

Tæp 42 prósent Íslendinga eru á móti því að Ísland gangi í Evrópusambandið, samkvæmt nýlegri könnun Maskínu.
Tæp 42 pró­sent Íslend­inga eru á móti því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið, sam­kvæmt nýlegri könnun Maskínu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lítil hreyf­ing er á afstöðu Íslend­inga til inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið á milli ára, en 41,8 pró­sent segj­ast and­víg því að ganga í sam­bandið á meðan að 29,6 pró­sent segj­ast hlynnt því. 28,6 pró­sent taka hvorki afstöðu með eða á móti í könnun um málið, sem Maskína fram­kvæmdi að eigin frum­kvæði dag­ana 21. jan­úar til 1. febr­úar 2021.

Maskína hefur mælt afstöðu lands­manna til inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið með sam­bæri­legum hætti þrjú ár í röð og hafa sveifl­urnar verið litlar. Í fyrra voru um 31 pró­sent hlynnt inn­göngu en um 39 pró­sent and­víg og árið 2019 voru 32 pró­sent hlynnt inn­göngu en 43 pró­sent and­víg.[links]

Skarpari skil voru þarna á milli í könnun sem Maskína gerði árið 2013, en þá voru 28 pró­sent hlynnt inn­göngu og rúmur helm­ingur, eða um 51 pró­sent, sögð­ust and­víg því að Ísland gengi í ESB. Þá tóku ein­ungis 21 pró­sent ekki afstöðu með eða á móti, en sá hópur hefur síðan stækkað á kostnað þeirra sem segj­ast and­vígir inn­göngu.

Í frétt Kjarnans á fimmtu­dag var dregið fram innan hvaða hópa í íslensku sam­fé­lagi helst mætti finna stuðn­ing við aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, en hér verður dregið fram hvaða hópar Íslend­inga eru helst and­vígir inn­göngu.

Austfirðingar

Aust­firð­ingar virð­ast and­snún­ari inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið en aðrir íbúar þessa lands. Samkvæmt nið­ur­stöðum Maskínu eru tæp 68 pró­sent Aust­firð­inga and­víg því að Ísland gangi í sam­bandið. Einungis rúm 12 pró­sent þeirra telja, sam­kvæmt könn­un­inni, að ganga ætti í ESB.

[adspot]

Þegar horft er á hina lands­hlut­ana er næst­mest and­staða á Norð­ur­landi, en þar eru 52 pró­sent and­víg inn­göngu í ESB. Á Suð­ur­landi og Reykja­nesi eru rúm 50 pró­sent and­víg, en á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum er hlut­fall and­vígra 44,7 pró­sent.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er mun­ur­inn á milli hlynntra og and­vígra mun minni, en hvergi eru hlynntir þó fleiri en and­vígir. Í Reykja­vík sjálfri eru nær allir hópar jafn stórir - þeirra and­vígu, hlynntu og þeirra sem ekki taka afstöðu. Fast­mót­aðri skoð­anir virð­ast í Kraganum, en þar eru 39,5 pró­sent and­víg og 34,9 pró­sent hlynnt inn­göngu í ESB.

Þau sem ekki eru með háskólapróf

Þegar horft er til mennt­un­ar­stigs eru það háskóla­menntað fólk sem sker sig úr, en 35,2 pró­sent þeirra sem segj­ast með háskóla­gráðu eru hlynnt inn­göngu Íslands í ESB og 34,5 pró­sent and­víg.

Um og yfir helm­ingur ann­arra svar­enda, sem eru þá ýmist með fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun eða grunn­skóla­próf, segj­ast and­vígir inn­göngu.

Þeir tekjulægstu … og þeir tekjuhæstu

Næstum því helm­ingur þeirra (47-48,6 pró­sent) sem eru með sam­an­lagðar heim­il­is­tekjur undir 549 þús­undum á mán­uði leggj­ast gegn inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið. Einungis tæp­lega 15 pró­senta stuðn­ingur er við aðild hjá þeim hópi sem ekki nær heim­il­is­tekjum upp á 400 þús­und krónur mán­að­ar­lega.

Stuðn­ingur við inn­göngu eykst eftir því sem heim­il­is­tekj­urnar fara hækk­andi, án þess þó að fleiri í nokkrum tekju­hópi séu hlynntir en and­vígir aðild. Þegar tekjur ná yfir 1,2 millj­ónum króna eykst þó and­staðan tölu­vert, en 47,2 pró­sent þeirra sem eru í tekju­hæsta flokknum segj­ast á móti aðild.

Kjósendur X-M, X-D, X-B og X-F

Á stjórn­mála­svið­inu eru skörp­ustu skilin. Þau sem sögð­ust ætla að kjósa Mið­flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Flokk fólks­ins og Framsókn er könn­unin var gerð voru einnig lang­flest and­víg því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Mest mæld­ist and­staðan hjá þeim sem hafa í hyggju að kjósa Mið­flokk­inn, eða 75,8 pró­sent. Næst á blaði voru væntir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks, en 72,2 pró­sent þeirra vilja ekki ganga í Evr­ópu­sam­bandið, sam­kvæmt könnun Maskínu.

---

Svar­endur könn­un­ar­innar voru 866 tals­ins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá og eiga því að end­ur­spegla þjóð­ina prýði­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár