Öfugt við Íslendinga mælist lítill ESB-hugur í Norðmönnum

Í fyrsta sinn síðan árið 2009 mælist nú meiri stuðn­ingur við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en and­staða, sam­kvæmt nýlegri könnun. Í Noregi er hið sama alls ekki uppi á ten­ingnum.

Margir virðast á því máli á að mældar sviptingar í afstöðu Íslendinga til ESB-aðildar megi rekja til hernaðarbrölts Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta í Úkraínu.
Margir virð­ast á því máli á að mældar svipt­ingar í afstöðu Íslend­inga til ESB-aðildar megi rekja til hern­að­ar­brölts Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta í Úkraínu. Mynd: Anton Brink

Í síð­ustu viku kom fram í nið­ur­stöðum könn­unar frá Gallup að fleiri en færri Íslend­ingar væru nú hlynntir aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta var í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem fleiri mæl­ast hlynntir aðild að ESB en and­vígir í skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd er á meðal íslensks almenn­ings.

Þetta hefur vakið nokkra athygli, sem eðli­legt er, enda mik­ill við­snún­ingur frá fyrri könn­unum Gallup sem og nýlegum við­horfskönn­unum MMR sem birst hafa reglu­lega um hug Íslend­inga til Evr­ópu­sam­bands­ins.

Síðasta mæl­ing MMR, frá því í des­em­ber, sýndi 30,7 pró­sent stuðn­ing við inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið og 44,1 pró­sents and­stöðu. Hin nýja könnun Gallup, fram­kvæmd dag­ana 3.-7. mars, sýndi um 47 pró­sent stuðn­ing við aðild en um 33 pró­sent and­stöðu.

Kenn­ingar hafa verið settar fram um hvernig á þessum við­snún­ingi í við­horfum lands­manna til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu geti staðið og virð­ast margir á því að þessar svipt­ingar megi rekja til hern­að­ar­brölts Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta í Úkraínu og sam­evr­ópskrar sam­stöðu með Úkraínu, sem hefur sótt um aðild að ESB frá því að Rússar réð­ust inn.

Hvað sem slíkum kenn­ingum líður um stöðu mála hér á landi virð­ist þó ljóst að þær eiga ekki við um frændur okkar Norðmenn, sem hafa rétt eins og Íslend­ingar að meiri­hluta verið gegn inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið um lengri tíma.[links]

Samkvæmt skoð­ana­könnun sem rann­sókna­fyr­ir­tækið Kantar fram­kvæmdi fyrir norsku sjón­varps­stöð­ina TV2 á síð­asta degi fyrsta degi febr­ú­ar­mán­aðar hefur inn­rás Rússa í Úkraínu ekki leitt til auk­ins stuðn­ings við aðild Noregs að ESB.

Samkvæmt könn­un­inni, sem sagt var frá í frétt TV2 1. mars voru 73,9 pró­sent Norð­manna, sem á annað borð tóku afstöðu, á því að Noregur ætti ekki að sækja um aðild að ESB. Á móti sögðu 26,1 pró­sent þeirra sem afstöðu tóku að Noregur ætti að sækja um aðild. Könnun TV2 náði til 527 ein­stak­linga og voru svör þeirra sem tóku ekki afstöðu í aðra hvora átt­ina ekki tekin inn í útreikn­ing­ana, en ekki er tekið fram í frétt mið­ils­ins hve mörg þau voru.

Meiri andstaða við NATO-aðild hérlendis en í Noregi (en samt lítil)

Í könnun Kantar fyrir TV2 var einnig spurt út í aðild Norð­manna að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum mælist hann nú í hæstu hæðum, en af þeim sem tóku afstöðu í aðra hvora átt­ina vilja tæp 96 pró­sent vera áfram í NATÓ en rúm 4 pró­sent Norð­manna segja sig úr banda­lag­inu.

[adspot]

Samkvæmt áður­nefndum Þjóð­ar­púlsi Gallup eru 75 pró­sent Íslend­inga hlynnt aðild að NATO, en and­staðan við veru Íslands í banda­lag­inu mælist um 9 pró­sent. Færri eru and­vígir veru Íslands í NATO sam­kvæmt þessum þjóð­ar­púlsi Gallup en sam­bæri­legum könn­unum sem fyr­ir­tæki gerði árin 2001 og 2003, en þá voru um 13-14 pró­sent gegn veru Íslands í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Meirihluti væntra kjósenda Vinstri grænna hlynntur NATO-aðild

Þetta er þó ekki eina könn­unin sem hefur birst á afstöð­unni til Atl­ants­hafs­banda­lags­ins hér­lendis. Ný könnun Prósents, sem fjallað var um í Frétta­blað­inu á föstu­dag, sýndi sam­kvæmt frétt blaðs­ins að um helm­ingur Íslend­inga væru hlynnt aðild að NATO.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins var sér­stak­lega dregið fram að afstaða þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Vinstri græn – þann flokk í íslenskum stjórn­málum sem sögu­lega hefur kennt sig við NATÓ-and­stöðu – í garð NATO-aðildar Íslands væri nú fremur jákvæð. Samkvæmt þeim tölum sem blaðið birti voru 49 pró­sent væntra kjós­enda VG hlynnt veru Íslands í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Hvort það hafi eitt­hvað með atburði und­an­far­inna vikna að gera er alls óvíst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár