Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB fyrir lok árs

Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Píratar hafa sam­ein­ast um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu fari fram fyrir árs­lok 2022.

Þingsályktunartillaga af sama meiði var lögð fram fyrir sjö árum síðan af Samfylkingu, Vinstri grænum, Bjartri framtíð og Pírötum.
Þings­á­lykt­un­ar­til­laga af sama meiði var lögð fram fyrir sjö árum síðan af Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Bjartri fram­tíð og Pírötum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata munu í dag leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að á þessu ári fari fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort halda skuli áfram aðild­ar­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­bandið.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er lagt til að spurn­ingin sem lögð verði fyrir þjóð­ina verði eft­ir­far­andi, með svar­mögu­leik­unum já eða nei: „Vilt þú að Ísland taki upp þráð­inn í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið með það að mark­miði að gera aðild­ar­samn­ing sem bor­inn yrði undir þjóð­ina til sam­þykktar eða synj­unar?“

Fram kemur í grein­ar­gerð til­lög­unnar að þings­á­lykt­un­ar­til­laga af nákvæm­lega sama meiði hafi verið lögð fram á 144. lög­gjaf­ar­þingi af þeim Árna Páli Árnasyni, Katrínu Jak­obs­dóttur, Guðmundi Stein­gríms­syni og Birgittu Jóns­dóttur.

Katrín Jak­obs­dóttir, þá leið­togi Vinstri grænna í stjórn­ar­and­stöðu en nú for­sæt­is­ráð­herra, mælti fyrir til­lög­unni er hún var borin fram í mars árið 2015.

Ályktun Alþingis frá 2009 sé enn í fullu gildi

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni, sem dreift er á Alþingi í dag, er vísað til þess að í júlí árið 2009 hafi Alþingi ályktað að fela rík­is­stjórn­inni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og að loknum við­ræðum við sam­bandið yrði haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um vænt­an­legan aðild­ar­samn­ing.

„Sú þings­á­lyktun er enn í fullu gildi enda hefur hún ekki verið felld úr gildi með annarri ályktun Alþingis,“ segir í grein­ar­gerð­inni og því er bætt við að til­gangur til­lög­unnar sé að fylgja eftir þeim vilja Alþingi sem end­ur­speglist í þings­á­lykt­un­inni frá árinu 2009.

[adspot]

„Þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um að draga aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka í febr­úar 2014 vakti það hörð við­brögð almenn­ings. Alls skrif­uðu 53.555 undir áskorun um að efnt yrði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræð­urnar. Þáver­andi rík­is­stjórn brást ekki við kröfu meira en fimmt­ungs kosn­ing­ar­bærra manna,“ segir einnig í grein­ar­gerð­inni.

Fram kemur að það sé „sam­eig­in­leg nið­ur­staða flutn­ings­manna að þetta mál sé af slíkri stærð­argráðu að eðli­legt sé að leita leið­sagnar þjóð­ar­innar um fram­hald þess“ og að auk þeirra „mik­il­vægu rök­semda er lúta að efna­hags­legum stöð­ug­leika og fjöl­mörgu öðru, hníga einnig sterk rök að því að Ísland taki afstöðu til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu vegna nýs veru­leika í varnar- og örygg­is­málum og hlut­verks Evr­ópu­sam­bands­ins í þeim efnum.“

Þau Logi Ein­ars­son, Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir, Halldóra Mogensen, Helga Vala Helga­dóttir, Dag­bjartur Gunnar Lúð­víks­son, Andrés Ingi Jónsson, Jóhann Páll Jóhanns­son, Guð­brandur Ein­ars­son, Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, Kristrún Frosta­dóttir, Sigmar Guð­munds­son, Björn Leví Gunn­ars­son, Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, Eva Sjöfn Helga­dóttir, Viktor Stefán Pálsson og Gísli Rafn Ólafsson eru flutn­ings­menn til­lög­unnar í þing­inu nú, sam­kvæmt drögum að til­lög­unni sem Kjarninn hefur undir höndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár