Íslendingarnir sem vilja helst ganga í ESB

Lítil hreyf­ing er á afstöðu Íslend­inga til inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið á milli ára og enn eru fleiri and­vígir en hlynntir þeirri veg­ferð, sam­kvæmt nýlegri könnun Maskínu. En hvaða kjós­enda­hópar á Íslandi vilja ganga í ESB? Kjarninn kíkti á það.

Tæplega 30 prósent aðspurðra í nýlegri könnun vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið.
Tæplega 30 pró­sent aðspurðra í nýlegri könnun vilja að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið. Mynd: Anton Brink

Samkvæmt nýlegri könnun frá Maskínu er lítil hreyf­ing á afstöðu Íslend­inga til inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið á milli ára, en 41,8 pró­sent segj­ast and­víg því að ganga í sam­bandið á meðan að 29,6 pró­sent segj­ast hlynnt því. 28,6 pró­sent taka hvorki afstöðu með eða á móti í könn­un­inni, sem Maskína fram­kvæmdi að eigin frum­kvæði dag­ana 21. jan­úar til 1. febr­úar 2021.

Maskína hefur mælt afstöðu lands­manna til inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið með sam­bæri­legum hætti þrjú ár í röð og hafa sveifl­urnar verið litlar. Í fyrra voru um 31 pró­sent hlynnt inn­göngu en um 39 pró­sent and­víg og árið 2019 voru 32 pró­sent hlynnt inn­göngu en 43 pró­sent and­víg.

Skarpari skil voru þarna á milli í könnun sem Maskína gerði árið 2013, en þá voru 28 pró­sent hlynnt inn­göngu og rúmur helm­ingur, eða um 51 pró­sent, sögð­ust and­víg því að Ísland gengi í ESB. Þá tóku ein­ungis 21 pró­sent ekki afstöðu með eða á móti, en sá hópur hefur stækkað á kostnað þeirra sem segj­ast and­vígir inn­göngu.

Kjarninn fékk nýj­ustu nið­ur­stöð­urnar afhentar í heild sinni frá Maskínu á dög­unum. Hér verður dregið fram hvaða hópar Íslend­inga það eru sem eru hlynntir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Kjósendur „frjálslyndu miðjuflokkanna“

Þegar afstaða fólks er brotin niður eftir stjórn­mála­skoð­unum eða kosn­inga­ætlan þarf ekki að koma neinum á óvart að þeir flokkar sem tala fyrir inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið skera sig úr og segj­ast að meiri­hluta hlynntir því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið.

[adspot]

Segja má að kjós­endur Við­reisnar séu þeir evr­ópusinn­uð­ustu á Íslandi, en tæp 77 pró­sent þeirra sem segja að þeir myndu kjósa Viðreisn ef kosið væri í dag eru sömu­leiðis hlynnt því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Hið sama á við um rúm 62 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una og rúm 58 pró­sent þeirra sem ætla að kjósa Pírata, en hjá væntum kjós­endum ann­arra flokka er ekki meiri­hluta­stuðn­ingur við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Íslenskir sósíalistar volgir … eða hvað?

Athygli vekur að á meðal væntra kjós­enda þeirra tveggja flokka sem ætla mætti að teld­ust lengst til vinstri á hinu póli­tíska lit­rófi á Íslandi, Sós­í­alista­flokks­ins og Vinstri grænna, eru fleiri sem segj­ast hlynnt inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið en and­víg.

Þó skal tekið fram að tæpt 41 pró­sent væntra kjós­enda Vinstri grænna tekur ekki afstöðu í aðra hvora átt­ina, en tæp 34 pró­sent segj­ast hlynnt inn­göngu og rúm 25 pró­sent and­víg. Á meðal væntra kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins eru slétt 41 pró­sent sem segj­ast hlynnt inn­göngu en 26,3 pró­sent and­víg. Tæpur þriðj­ungur er hvorki með né á móti.

Áhuga­verðar umræður um þessar nið­ur­stöður Maskínu spunn­ust fram á dög­unum á spjall­síðu Sós­í­alista­flokks­ins á Facebook.

Upp­hafs­maður umræð­unnar var Klemens Ó. Þrast­ar­son, sem er fjöl­miðla­full­trúi sendi­skrif­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi. Spurði hann ein­fald­lega hvort þessar nið­ur­stöður, sem birt­ust á vef Maskínu fyrr í mán­uð­inum, hefðu verið ræddar á vett­vangi flokks­ins.

Und­ir­tekt­irnar voru æði mis­jafnar. „Hvað er upp­lýs­inga­full­trúi sendi­nefndar ESB á Íslandi að boða hér? Að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé að svíkja kjós­endur sína með því að boða ekki inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið? Hvað er hann að leggja til? Að fólk skuli frekar kjósa Viðreisn?“ skrif­aði Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi og helsti tals­maður Sós­í­alista­flokks­ins út á við, í athuga­semd við færsl­una.

„Þegar meira að segja Sam­fylk­ingin gerir sér grein fyrir að ESB aðild Íslands er dauða­dæmdur mál­staður þá væri nú und­ar­legt að Sósi­alista­flokk­ur­inn tæki þann mál­stað upp. Enn í grunn­inn er ESB banda­lag um hags­muni auð­valds og ber að draga helstu álykt­anir af því meg­in­at­riði máls­ins,“ skrif­aði Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóri Eflingar á þræð­inum, þar sem margir aðrir lýstu því yfir að önnur mál en Evr­ópu­sam­bands­að­ild væru mun mik­il­væg­ari í umræð­unni, þessi miss­erin.

Þau sem telja að Ísland gæti „náð hagstæðum samningi við ESB“

Maskína spurði einnig að því í könn­un­inni hvort fólk teldi að Ísland gæti náð hag­stæðum samn­ingi um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið eða ekki. Í ljós kom að meiri­hluti, eða 56,7 pró­sent aðspurðra, telja að Íslend­ingar gætu náð hag­stæðum samn­ingi um inn­göngu.

Þessi meiri­hluti sam­anstendur að lang­mestu leyti mestu af þeim sem eru hlynnt inn­göngu eða taka hvorki afstöðu með eða á móti.

Rúm 99 pró­sent þeirra sem eru hlynnt inn­göngu í ESB telja að Ísland gæti náð hag­stæðum samn­ingi á meðan að rök 72 pró­sent þeirra sem taka hvorki afstöðu með eða á móti aðild eru á þeirri trú. Á móti kemur að ein­ungis 15,6 pró­sent þeirra sem eru and­víg aðild trúa því að Ísland gæti fengið góðan samn­ing.

Svo er það spurn­ingin hvort kemur á undan, afstaðan til Evr­ópu­sam­bands­að­ildar eða trúin á að Ísland gæti náð góðum samn­ingi um inn­göng­una.

---

Svar­endur könn­un­ar­innar voru 866 tals­ins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár