Mun fleiri hlynntir ESB-aðild heldur en mótfallnir

Tæpur helm­ingur lands­manna er nú hlynntur aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup. Stuðn­ing­ur­inn við aðild hefur auk­ist um rúman helm­ing á síð­ustu mán­uðum, ef miðað er við nýlega könnun MMR.

Stuðningurinn við aðild að Evrópusambandinu hefur stóraukist á síðustu mánuðum.
Stuðn­ing­ur­inn við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur stór­auk­ist á síð­ustu mán­uðum. Mynd: Flickr

Alls styðja 47 pró­sent lands­manna aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, en 33 pró­sent þeirra eru mót­fallnir henni. Þetta kemur fram í nýbirtum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Þetta er við­snún­ingur frá fyrri mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins á stuðn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið árin 2010 og 2014, en þá var um þriðj­ungur þjóð­ar­innar með aðild á meðan helm­ingur hennar var á móti henni.

Stuðn­ing­ur­inn er líka mun meiri en mæld­ist í reglu­legum mæl­ingum MMR á Evr­ópu­sam­bands­að­ild í des­em­ber í fyrra, en þar voru 31 pró­sent svar­enda hlynnt aðild á meðan 44 pró­sent þeirra voru and­vígir aðild Íslands að ESB. MMR gerði mán­að­ar­legar skoð­ana­kann­anir á við­horfum til Evr­ópu­sam­bands­ins frá 2011 til 2021, en sam­kvæmt þeim hafa aldrei meira en 40 pró­sent við­mæl­enda verið hlynnt aðild.

[adspot]

Gallup kann­aði einnig við­horf til aðildar Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), en sam­kvæmt þjóð­ar­púls­inum eru 75 pró­sent lands­manna hlynnt henni, á meðan níu pró­sent þeirra eru and­víg. Fjöldi þeirra sem er and­vígur NATO-aðild er nú tölu­vert minni en árin 2003 og 2001, en þá vildu 13-14 pró­sent við­mæl­enda Gallup ekki að Ísland væri í NATO-sam­starf­inu.

Alls tóku 908 manns þátt í könnun Gallup af 1.780 manna úrtaki. Við­mæl­endur voru allir valdir af handa­hófi úr við­horfa­hópi fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár