Ólafur Ólafsson vildi fá á fjórða tug milljóna vegna lögmannskostnaðar og miska

Ólafur Ólafsson taldi sig hafa orðið fyrir orð­spor­s­missi og til­finn­inga­legu tjóni vegna vinnu rann­sókn­ar­nefndar um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans og vildi bætur fyrir. Hann fór einnig fram á að íslenska ríkið greiddi umtals­verðan lög­manns­kostnað hans.

Ólafur Ólafsson þegar hann kom fyrir stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd vegna málsins.
Ólafur Ólafsson þegar hann kom fyrir stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd vegna máls­ins. Mynd: Kjarninn

Í júní síð­ast­liðnum vís­aði Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu kæru Ólafs Ólafs­sonar gegn íslenska rík­inu frá. Dómurinn hafn­aði með afger­andi hætti að Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um þátt­töku þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans 2003 hefði brotið gegn rétti Ólafs til rétt­látar máls­með­ferðar.

Ólafur sendi kæru til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu nokkrum mán­uðum eftir að nið­ur­staðan var birt í skýrslu, eða í júlí 2017. Ólafur vildi meina að hann hefði ekki notið rétt­inda sem honum væru tryggð í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu þar sem „umgjörð og máls­með­ferð RNA hafi í raun falið í sér saka­mál á hendur honum og jafn­gilt refs­ingu án þess að hann hafi notið nokk­urra þeirra rétt­inda sem fólk sem borið er sökum á að njóta og er grund­völlur rétt­ar­rík­is­ins“.

Í mál­inu fór Ólafur, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða snemma árs 2015, fram á að íslenska ríkið myndi greiða honum bætur vegna miska og greiðslu máls­kostn­aðar sem hann hafði lagt í vegna þess. Kjarninn óskaði eftir því við rík­is­lög­mann að fá sund­ur­liðun á fjár­kröfum Ólafs. Í kjöl­farið sendi lög­maður Ólafs Kjarn­anum gögnin.

Þau sýna að heild­ar­upp­hæðin sem Ólafur fór fram á að íslenska ríkið myndi greiða er um 32 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Að honum með­töldum fer upp­hæðin upp í um 40 millj­ónir króna.

Vildi bætur fyrir mikla neikvæða fjölmiðlaathygli

Í kröfu­gerð sem danskur lög­maður Ólafs, Tyge Trier, sendi inn til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins 12. októ­ber í fyrra kemur fram að skjól­stæð­ingur hans hafi kraf­ist 20 þús­und evra vegna ófjár­hags­legs tjóns. Þar var um að ræða kröfu um miska­bætur vegna álags og gremju sem rann­sókn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar og mikil nei­kvæð fjöl­miðla­at­hygli hefði skapað Ólafi.

[adspot]Í skjal­inu segir að Ólafur hafi verið jað­ar­settur vegna máls­ins og að hann hafi misst alla trú á íslenskt rétt­ar­kerfi. „Birting á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafði mikil áhrif á heiður og orð­spor Hr. Ólafs­sonar og braut með grófum hætti gegn rétti Hr. Ólafs­sonar til einka­lífs.“ Þá er því haldið fram að málið hafi valdið Ólafi og fjöl­skyldu hans til­finn­inga­legum og sál­fræði­legum sárs­auka og þján­ingu. Miðað við gengi evru gagn­vart íslenskri krónu í októ­ber 2020 þá er upp­hæðin sem Ólafur fór fram á rúm­lega 3,2 millj­ónir króna.

Vildi ekki gefa skýrslu

Þá fór Ólafur fram á að ríkið myndi greiða sér 45.460 evrur vegna máls­kostn­aðar sem féll til vegna ýmissa þátta sem snéru að vinnu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Þar er meðal ann­ars til­tal­inn kostn­aður vegna vitn­is­burðar Ólafs í hér­aðs­dómi þegar vinna rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar stóð yfir, áfrýj­un­ar­ferlis fyrir Hæsta­rétti og vegna komu hans fyrir stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefndar. Þessi upp­hæð er án virð­is­auka­skatts, en ofan á lög­manns­þjón­ustu leggst 24 pró­sent virð­is­auka­skattur. Samkvæmt reikn­ingum sem fylgdu með þeim gögnum sem Kjarninn fékk send þá er heild­ar­kostn­aður vegna lög­manns Ólafs í þessum hluta máls­ins um 7,4 millj­ónir króna auk virð­is­auka­skatts, en tíma­kaup lög­manns­ins var 26 til 27 þús­und krónur auk virð­is­auka­skatts á þessum tíma. 

Til að útskýra þennan hluta máls­ins betur þá neit­aði Ólafur, og þrír aðrir lyk­il­menn í kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum, að mæta í boð­aða skýrslu­töku á vegum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Rann­sókn­ar­nefndin krafð­ist þess í kjöl­farið fyrir dóm­stólum að þeim yrði gert skylt að mæta og þá báru Ólafur og einn annar mann­anna brigður á að þeim væri skylt að svara spurn­ingum nefnd­ar­innar. Mála­til­bún­aði þeirra var end­an­lega hafnað í jan­úar 2017 í Hæsta­rétti og skýrslur voru teknar af mönn­unum fjórum í lok jan­úar og byrjun febr­úar það ár.

Dýr rekstur fyrir Mannréttindadómstólnum

Í máli sínu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum fór Ólafur fram á að fá 130.992 evrur vegna kostn­aðar, lög­manns­kostn­aðar og ann­ars sem féll til, vegna máls­ins sem þar var rekið. Þar af vildi hann að íslenska ríkið greiddi 68.267 evrur auk virð­is­auka­skatts vegna íslenska lög­mannateymis hans og 62.725 evrur auk virð­is­auka­skatts vegna erlendra lög­manna, meðal ann­ars Danans Tyge Trier, en hann gerði fjár­kröf­urnar fyrir hönd Ólafs í októ­ber í fyrra sam­kvæmt skjölum sem Kjarninn fékk afhent hjá íslenskum lög­manni Ólafs, Gísla Guðna Hall hjá Mörkinni lög­manns­stofu. Virð­is­auka­skattur í Danmörku er 25 pró­sent.

Lög­manns­stofan Logos vann í mál­inu fyrir Ólaf hér­lendis og sam­kvæmt vinnu­skýrslu sem Kjarninn fékk afhenta kost­aði hver evra 161,72 íslenskar krónur þegar skýrslan var gerð í októ­ber í fyrra. Ólafur gerði kröfu um að íslenska ríkið greiddi um 21,2 millj­ónir króna auk um 5,2 millj­óna króna í virð­is­auka­skatt vegna þessa lög­manns­kostn­aðar.

Samtals gerði Ólafur því kröfu um að íslenska ríkið greiddi sér 31,8 millj­ónir króna í bætur og máls­kostnað fyrir utan virð­is­auka­skatt af vinnu lög­manna hans. Að honum með­töldum fór upp­hæðin í um 40 millj­ónir króna.

Þar sem mál­inu var vísað frá situr Ólafur uppi með lög­manns­kostnað sinn sjálfur og fær engar bætur. Þegar nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins lá fyrir sendi Ólafur frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist meta það hvort hann myndi kjósa að höfða mál á hendur rík­inu fyrir íslenskum dóm­stólum vegna fram­göngu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Salan tortryggð frá byrjun

Málið á rætur sínar að rekja til áranna 2002 og 2003, þegar einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans stóð yfir. Ólafur var á meðal þeirra sem leiddu hinn svo­kall­aða S-hóp sem keypti kjöl­festu­hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum árið 2003. Á meðal ann­arra sem áttu að hafa myndað þann hóp var þýskur banki, Hauck & Auf­häuser, en aðkoma hans gerði það að verkum að mark­miði íslenskra stjórn­valda um að erlend fjár­mála­stofnun kæmi að kaup­unum var opin­ber­lega mætt. Aðkoma þýska bank­ans var alla tíð tor­tryggð víða og talið að hún hefði verið til mála­mynda. Til að slá á þær gagn­rýn­is­raddir var Rík­is­end­ur­skoðun fengin til að vinna tvær skýrslur.

[adspot]Sú fyrri var birt árið 2003 og fjall­aði um einka­væð­ingu rík­is­eigna. Þar komst stofn­unin að þeirri nið­ur­stöðu að „íslensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Engar athuga­semdir voru gerðar við það hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins í skýrsl­unni.

Í mars 2006 vann Rík­is­end­ur­skoðun síðan átta blað­síðna sam­an­tekt í kjöl­far fundar Vil­hjálms Bjarna­sonar, síðar þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann lagði fram nýjar upp­lýs­ingar um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var sú að ekk­ert sem lagt hafi verið fram í mál­inu hafi stutt víð­tækar álykt­anir Vil­hjálms um að þýski bank­inn hefði ekki verið raun­veru­legur eig­andi í Bún­að­ar­bank­anum. „Þvert á móti þykja liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar og gögn um hið gagn­stæða,“ segir í skýrslu hennar.

Rannsóknarnefnd skipuð mörgum árum síðar

Síðan leið og beið og í maí 2016 greindi þáver­andi umboðs­maður Alþingis, Tryggvi Gunn­ars­son, frá þeirri skoðun sinni að Alþingi ætti að skipa rann­sókn­ar­nefnd til að kalla fram nýjar upp­lýs­ingar um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum, ef áhugi væri fyrir því að kom­ast til botns í mál­inu. Hann sagð­ist þá hafa undir höndum nýjar upp­lýs­ingar og ábend­ingar um raun­veru­lega þátt­töku Hauck & Auf­häuser, þýsks einka­banka, í kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum. Tryggvi var einn þeirra þriggja sem mynd­aði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um orsök og afleið­ingar banka­hruns­ins sem skil­aði af sér viða­mik­illi skýrslu í apríl 2010.

Alþingi ákvað að skipa nefnd og í lok mars 2017, rúmum fjórtán árum eftir að hlut­ur­inn í Bún­að­ar­bank­anum var seldur, kynntu þeir Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem sat í nefnd­inni, og Finnur Þór Vil­hjálms­son, starfs­maður hennar, nið­ur­stöður sínar.

Þær voru afdrátt­ar­lausar.

Stjórnvöld, fjölmiðlar og almenningur blekkt

Ítarleg gögn sýndu með óyggj­andi hætti að Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

Auk þess sýndi skýrslan að síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga hefði gert það að verk­um, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son.

[links]Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að eig­endur þess félags hafi verið bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, aðal­eig­endur Bakka­varar og stærstu eig­endur Kaup­þings fyrir hrun.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem nefndin sendi frá sér í aðdrag­anda þess að skýrslan var birt árið 2017 sýndu gögn máls­ins „hvernig íslensk stjórn­völd voru blekkt og hvernig rangri mynd af við­skipt­unum var haldið að fjöl­miðlum og almenn­ingi. Á hinn bóg­inn bendir ekk­ert til ann­ars en að öðrum aðilum innan fjár­festa­hóps­ins sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, S-hóps­ins svo­kall­aða, hafi verið ókunn­ugt um leyni­samn­ing­ana og að þeir hafi staðið í þeirri trú að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi þess hlutar sem hann var skráður fyr­ir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár