Það segist enginn muna hver eigi Dekhill Advisors

Eftir að rann­sókn­ar­nefnd gat opin­berað „Lunda­flétt­una“ með til­vísun í gögn sendi hún bréf á þá sem hönn­uðu hana og spurði m.a. hver ætti Dekhill Advisors. Enginn sagð­ist vita það hver hefði fengið 2,9 millj­arða króna snemma árs 2006.

Eftir að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hafði kom­ist að nið­ur­stöðu um hvað hefði gerst við kaupin sendi hún bréf á marga þeirra sem tóku þátt í þeirri fléttu og báru nið­ur­stöðu sína undir þá. Nið­ur­staðan var á þann veg að þýski bank­inn hefði verið leppur sem hafði fengið greidda þóknun fyrir að halda á hlut í Bún­að­ar­bank­anum í tvö ár, að kaupin hafi verið fjár­mögnuð af Kaup­þingi sem hafi borið alla áhættu af þeim og að sá hagn­aður sem mynd­að­ist af kaup­unum, sem hljóp á millj­örðum króna, ætti að skipt­ast á milli tveggja aflands­fé­laga.

[links]

Annað aflands­fé­lagið, Marine Choice Limited, fékk 3,8 millj­arða króna króna á þávirði vegna flétt­unnar. Það félag var í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hitt félagið, Dekhill Advisors Limited, fékk 2,9 millj­arða króna. Ekki hefur verið hægt með óyggj­andi hætti að sýna fram á hver sé eig­andi þess.
Rann­sókn­ar­nefndin komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu, út frá gögnum, að telja yrði annað veru­lega ólík­legt en að hagn­að­inum af „Lunda­flétt­unni“ sem ráð­stafað var til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors „hafi end­an­lega runnið til aðila sem tengd­ust Kaup­þingi hf. eða KBL [Kaupþing í Lúx­em­borg] eða að minnsta kosti að starfs­menn Kaup­þings hf. og KBL hafi á ein­hverju stigi haft vit­neskju um hverjir nutu þessa ávinn­ings sem rann til Dekhill Advisors Limited.“ Því taldi nefndin allar líkur standa til þess að „Kaupþing sjálft eða aðilar því tengdir hafi verið raun­veru­legir eig­endur Dekhill Advisors eða notið þeirra fjár­muna sem þangað runnu“.

[adspot]

Rann­sókn­ar­nefndin sendi bréfin til þeirra sem komu að flétt­unni út 13. mars 2017. Í þeim flestum voru við­kom­andi spurðir hvort þeir þekktu til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors, hverjir væru end­an­legir eig­endur þess eða hag­hafar að eignum þess. Flest svör bár­ust 20. og 21. mars. Og voru öll á sömu leið.

Hreiðar Már segist aldrei hafa heyrt um félagið

Ólafur Ólafsson sendi nefnd­inni bréf 20. maí. Þar sagð­ist hann ekki minn­ast þess að hafa heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors. Ég get því engar upp­lýs­ingar veitt um það félag.“ Hann end­ur­tók þetta þegar hann mætti fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í síð­ustu viku. Þar sagð­ist Ólafur ekk­ert vita hver ætti Dekhill Advisors.

Guð­mundur Hjalta­son, starfs­maður Ólafs sem kom að hönnun „Lunda­flétt­unnar“ svoköll­uðu, var spurður sömu spurn­ingar í bréfi nefnd­ar­innar til hans. Í svari hans, sem barst 20. mars, sagði: „Ég minn­ist þess ekki að hafa heyrt um félagið Dekhill Advisors Limited, Ég get því engar upp­lýs­ingar veitt um það félag“.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, var sömu­leiðis spurður um hvort hann þekkti til Dekhill Advisors. Hreiðar Már var mun afdrátt­ar­laus­ari í svari sínu til nefnd­ar­innar en Ólafur og Guð­mundur. Hann sagð­ist telja „óhætt að full­yrða að ég hafi aldrei heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors Limited fyrr en í bréfi nefnd­ar­innar“. Hann sagð­ist enn fremur ekki hafa notið fjár­hags­legs ávinn­ings af við­skipt­unum sem sett voru upp í kriingum aðkomuHauck & Auf­häuser. Hreiðar Már vís­aði í umrætt bréf í svari frá lög­manni hans við fyr­ir­spurn Kjarnans um Dekhill Advisors. „Hann mun ekki tjá sig að öðru leyti,“ sagði enn fremur í svar­inu.

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagði í svar­bréfi sínu að hann reki ekki „minni til þeirra aflands­fé­laga sem nefnd eru í bréfi“ nefnd­ar­innar. Sigurður full­yrti auk þess að hann hafi ekki notið ávinn­ings af „Lunda­flétt­unni“.

Muna ekki, eða svara ekki

Stein­grímur Kárason, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar Kaup­þings, var líka spurður um Dekhill Advisors, og aðra þætti máls­ins. Hann sagð­ist ekki muna nægi­lega vel eftir neinu sem spurt var um og treysti sér því ekki til að svara spurn­ingum nefnd­ar­innar. Und­an­tekn­ingin var spurn­ing um hvort hann hefði hagn­ast á flétt­unni. Stein­grímur sagð­ist geta með fullri vissu sagt að hann hefði ekki gert það.

Lög­mað­ur­inn Bjarki Diego, sem starf­aði hjá Kaup­þingi og kom beint að blekk­ing­unum í kringum meint kaup þýska bank­ans á hlut í Bún­að­ar­bank­anum, sagð­ist ekki þekkja „ aflands­fé­lag með heit­inu Dekhill Advisors Limlted og minn­ist þess ekki að hafa nokkurn tíma heyrt það nefnt“.

Magnús Guð­munds­son, sem stýrði Kaup­þingi í Lúx­em­borg, sagð­ist ekki muna eftir nafn­inu Dekhill Advisors eða aðkomu þess að við­skipt­unum. Kristín Pét­urs­dóttir, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar hjá Kaup­þingi, sagð­ist ekki kanna­str við þá samn­inga og þær ákvarð­anir sem nefndar voru í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Hún úti­lok­aði ekki að „ ein­hver aðkoma hafi verið að ein­stökum samn­ingum og ráð­stöf­unum vegna þeirra á þeim tíma sem und­ir­rituð starf­aði hjá Kaup­þingi en vegna þess langa tíma sem lið­inn er er erfitt að segja til um það með afger­andi hætti, sér­stak­lega þegar umrædd skjöl liggja ekki fyrir. Varðandi spurnlngar sem beint er til mín þá get ég með vísan til ofan­greinds ekki svarað spurn­ing­unum.“

Bakka­var­ar­bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir voru líka spurðir hvort þeir könn­uð­ust við Dekhill Advisors og gætu veitt upp­lýs­ingar um félagið. Hvorugur sagð­ist muna eftir því sem spurt var um í bréfi nefnd­ar­innar.

Virkt félag

Sam­an­dregið þá man eng­inn eftir Dekhill Advisors og hvað þá hver eig­andi eða hag­hafar þess félags sem fékk 2,9 millj­arða króna milli­færða inn á sig snemma árs 2006 séu. Samt komu margir þeirra sem hér að ofan eru nefndir að því að hanna flétt­una sem skil­aði þeirri fjár­hæð til Dekhill Advisors.

En ein­hver veit hver hefur notið þeirra fjár­muna sem runnu inn í Dekhill Advisors. Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að félagið er enn virkt. Í des­em­ber 2009 gerði Dekhill Advisors hand­veðs­samn­ing við sviss­neska bank­ann Julius Bäer vegna fjár­mála­gjörn­ings sem það var að taka þátt í. Kjarninn og RÚV hafa undir höndum gögn sem sýna þetta. Þau gögn inni­halda einnig skjal sem stað­festir að Dekhill Advisors var enn til og í virkni í lok sept­em­ber 2016, fyrir rúmu hálfu ári síðan.

Það er því skýrt að ein­hverjir hafa haft aðgang að og notað fjár­mun­ina sem greiddir voru inn í Dekhill Advisors í jan­úar 2006, á árunum eftir hrun. Og félagið var enn í starf­semi í fyrra­haust. Hverjir það eru sem nota fjár­muni Dekhill Advisors er þó enn sem komið er ráð­gáta. En fyrir liggur að sviss­neski bank­inn Julius Bäer veit að minnsta kosti svarið við henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár