Björgólfur Thor segir að því hafi verið hvíslað að sér hverjir eigi Dekhill Advisors

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son segir að ýmsir sem þekki vel til hafi hvíslað því að honum að stærsti hlut­hafi Kauþ­þings og æðstu stjórn­endur bank­ans hafi verið að baki Dekhill Advisors, sem hagn­að­ist um 4,7 millj­arða króna við einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndar sem gat ekki svarað því hver hefði átt Dekhill Advisors. Björgólfur Thor Björgólfsson telur sig nú vera með upplýsingar um það.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari var for­maður rann­sókn­ar­nefndar sem gat ekki svarað því hver hefði átt Dekhill Advisors. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son telur sig nú vera með upp­lýs­ingar um það. Mynd: Samsett

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, athafna­maður og fyrr­ver­andi kjöl­festu­eig­andi í Lands­bank­anum, segir í nýrri stöðu­færslu á vef sínum að þótt því hafi verið vand­lega haldið leyndu fyrir skatt­rann­sókn­ar­stjóra hverjir eigi aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited þá hafi „ýmsir sem þekkja þokka­lega til hafa hvíslað því að mér að þar að baki séu stærsti hlut­hafi og æðstu stjórn­endur Kaup­þings.“

[links]Stæsti ein­staki hlut­hafi Kaup­þings fyrir banka­hrun var Exista, fjár­fest­inga­fé­lag þar sem ráð­andi eig­endur voru bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­anum. Á núvirði er upp­hæðin um 4,7 millj­arðar króna.

[adspot]Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýndu að ítar­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis hafi not­að leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu.

Hafna aðkomu, vilja ekki aðstoða eða muna ekki

Rann­sókn­ar­nefndin komst ekki að því hver væri eig­andi Dekhill Advisors með óyggj­andi hætti né hverjir hafi haft aðgang að þeim fjár­munum sem fóru til félags­ins í gegnum bak­samn­inga. Nefndin ályktaði hins vegar að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Síðan þá hefur verið reynt að sann­reyna hverjir þeir eru, en án árang­urs.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sagði í svar­bréfi sínu við spurn­ingum nefnd­ar­innar að hann teldi „óhætt að full­yrða að ég hafi aldrei heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors Limited fyrr en í bréfi nefnd­ar­innar“. Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagð­ist í sínu bréfi ekki geta „aðstoðað nefnd­ina við að svara þeim spurn­ingum sem að mér er beint“.

[adspot]Bræð­urnir Ágúst og Lýður sögðu í sam­hljóma svar­bréfum að þeim reki ekki minni til þeirra atriða sem nefnd voru í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Skattrannsóknarstjóri fær ekki upplýsingar

Kjarninn greindi frá því fyrir mán­uði síðan að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fái ekki upp­lýs­ingar um hver eig­andi Dekhill Advisors sé frá sviss­neskum yfir­völdum. Ástæðan sé sú að eig­endur félags­ins lögðu fram vott­orð þess efnis að þeir væru ekki skatt­skyldir á Íslandi, og þar af leið­andi töldu yfir­völd í Sviss sig ekki geta veitt emb­ætt­inu upp­lýs­ing­arnar.

Í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði:„Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sig hafa trú­verð­ugar vís­bend­ingar um það hvaða aðili/aðilar þarna er um ræða og hefur upp­lýst skatt­yf­ir­völd við­kom­andi ríkis um málið. Eftir atvikum geta þau þá fylgt mál­inu eftir telja þau ástæðu til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár