Ólafur telur skýrslu rannsóknarnefndar hafa verið „einhliða árás“ á sig

Ólafur Ólafsson, sem leiddi S-hóp­inn þegar hann keypti Bún­að­ar­bank­ann, telur að vinna Rann­sókn­ar­nefndar Alþingi á kaup­unum hafi vegið að orð­spori hans og æru. Hann telur hana vera mann­rétt­inda­brot og kærði vinn­una til Mann­rétt­inda­dóm­stóls.

Ólafur Ólafsson þegar hann mætti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að ræða niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar.
Ólafur Ólafsson þegar hann mætti fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að ræða nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Mynd: Kjarninn

Ólafur Ólafsson telur að nið­ur­staða Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans 2003, þar sem hann og við­skipta­fé­lagar hans voru sagðir hafa blekkt íslenska ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing, hafi vegið „alvar­lega að orð­spori mínu og æru án þess að ég hefði nokk­urt tæki­færi til að koma við vörnum eða nýta þau rétt­indi sem við teljum sjálf­sagt að fólk, sem borið er þungum sökum af hálfu stjórn­valda, njóti.“ Hann kallar vinnu nefnd­ar­innar einnig „ein­hliða árás“ á sig.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hefur verið send fyrir hönd Ólafs til Kjarnans vegna kæru hans til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu máls­ins. Ólafur sendi þá kæru nokkrum mán­uðum eftir að nið­ur­staðan var birt í skýrslu, eða í júlí 2017. Ólafur vill meina að hann hafi ekki notið rétt­inda sem honum séu tryggð í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu þar sem að „umgjörð og máls­með­ferð RNA hafi í raun falið í sér saka­mál á hendur honum og jafn­gilt refs­ingu án þess að hann hafi notið nokk­urra þeirra rétt­inda sem fólk sem borið er sökum á að njóta og er grund­völlur rétt­ar­rík­is­ins.“

Ríkið, fjölmiðlar og almenningur blekktir

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar, sem skil­aði skýrslu sinni í mars 2017, var að ítar­leg gögn sýndu með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

[adspot]Auk þess sýndi skýrsla að síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga hafi gert það að verk­um, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son.

Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að eig­endur þess félags hafi verið bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, aðal­eig­endur Bakka­varar og stærstu eig­endur Kaup­þings fyrir hrun.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem nefndin sendi frá sér í aðdrag­anda þess að skýrslan var birt sýndu gögn máls­ins „hvernig íslensk stjórn­völd voru blekkt og hvernig rangri mynd af við­skipt­unum var haldið að fjöl­miðlum og almenn­ingi. Á hinn bóg­inn bendir ekk­ert til ann­ars en að öðrum aðilum innan fjár­festa­hóps­ins sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, S-hóps­ins svo­kall­aða, hafi verið ókunn­ugt um leyni­samn­ing­ana og að þeir hafi staðið í þeirri trú að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi þess hlutar sem hann var skráður fyr­ir.“

Öll meint brot fyrnd

RÚV greindi fyrst frá mál­inu í gær, áður en að almanna­tenglar Ólafs sendu til­kynn­ingu um það á aðra miðla. Í frétt rík­is­mið­ils­ins var bent á að ein­ungis 5,4 pró­sent þeirra mála sem voru send eru til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu endi með dómi. Því liggur ekk­ert annað fyrir í mál­inu en að íslenska rík­inu verður gert að svara spurn­ingum um hvort að um ígildi saka­mála­rann­sóknar hafi verið að ræða.

[adspot]Samkvæmt lögum er meg­in­hlut­verk rann­sókn­ar­nefnda að afla upp­lýs­inga og gera grein fyrir máls­at­vikum í máli. Hún má fela það verk­efni að gefa álit sitt á því hvort til staðar kunni að vera lög­fræði­leg atriði sem gætu varpað ljósi á hvort til­efni sé til þess að þar til bær stjórn­völd kanni grund­völl ábyrgðar ein­stak­linga eða lög­að­ila. Í lög­unum segir að ef vakni „grunur við rann­sókn nefnd­ar­innar um að refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað til­kynnir hún rík­is­sak­sókn­ara það sem ákveður hvort rann­saka beri málið í sam­ræmi við lög um með­ferð saka­mála.“

Í umræddri rann­sókn var engu máli vísað áfram til með­ferðar sem saka­mál þar sem máls­at­vik höfðu átt sér stað 11 til 15 árum áður en skýrsla nefnd­ar­innar kom út og mögu­leg brot á saka­mála­lögum, hafi þau átt sér stað, því fyrnd.

Ólafur telur hins vegar að það felist ákveðin við­ur­kenn­ing á hans sjón­ar­miðum í því að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn taki málið upp og krefji ríkið svara um máls­með­ferð­ina. „Í þess­ari ein­hliða árás á mig var ekk­ert til­lit tekið til þess að ríkið tók á sínum tíma hæsta til­boði í opnu sölu­ferli, kaup­verðið var greitt að fullu og engum blekk­ingum var beitt, enda var til­boð S-hóps­ins metið hag­stæð­ast jafn­vel án aðkomu erlends banka líkt og lesa má í fund­ar­gerðum Fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár