Tíu staðreyndir um „Lundafléttuna“ og blekkingarnar í kringum hana

Allt sem þú þarft að vita um leyni­makkið og blekk­ing­arnar á bak­við aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum er til umfjöll­unar í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans.

  1. Um mitt ár 2002 ákvað íslenska ríkið að selja 45,8 pró­sent hlut sinn í Bún­að­ar­banka Íslands. Í nóv­em­ber sama ár var ákveðið að ganga til við­ræðna við hóp fjár­festa sem kall­aði sig S-hóp­inn. Í for­svari þess hóps voru Ólafur Ólafsson og Finnur Ing­ólfs­son. Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu um einka­við­ræður við S-hóp­inn kom skýrt fram að lyk­il­for­senda fyrir þeim væri aðkoma erlendrar fjár­mála­stofn­unar. Annars yrðu þær hugs­an­lega ekki fram­lengdrar. Hópurinn hafði lengi vel gefið í skyn við fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu að franski bank­inn Société Générale ætl­aði að vera með í kaup­unum. [links] Tveir starfs­menn þýska­lands­arms bank­ans, sem störf­uðu fyrir Ólaf Ólafsson í mál­inu, höfðu aldrei neina heim­ild til að skuld­binda slíkan stór­banka í kaup á við­skipta­banka á Íslandi. Menn­irnir voru ein­fald­lega að sinna ráð­gjöf og spil­uðu þar með í leik Ólafs. Fyrir ómakið fengu þeir um 300 millj­ónir króna greiddar. Beðið var með að til­kynna hver erlenda fjár­mála­stofn­unin sem myndi taka þátt í kaup­unum væri nán­ast fram að und­ir­skrift, sem átti sér stað 16. jan­úar 2003. Þegar á hólm­inn var komið reynd­ist hún, sam­kvæmt til­kynn­ingum, vera þýski einka­bank­inn Hauck & Auf­häuser. 
  2. Í frétta­til­kynn­ingu sem S-hóp­ur­inn sendi frá sér vegna kaupanna sagði að það væru „mikil tíð­indi að traustur, erlendur banki taki þátt í að fjár­festa í íslenskri fjár­mála­stofnun“. Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá Hauck & Auf­häuser og ráð­gjaf­anum Michael Sautter frá Société Générale sagði að nokkrar ástæður lægju að baki „þeirri ákvörðun eig­enda Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers að fjár­festa í Bún­að­ar­bank­anum. Í fyrsta lagi er Bún­að­ar­bank­inn væn­leg fjár­fest­ing“.
  3. Þremur mán­uðum eftir að gengið var frá kaup­unum sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­inn mun minni fjár­mála­fyr­ir­tæki, Kaup­þingi. Samhliða tóku stjórn­endur Kaup­þings öll völd í hinum sam­ein­aða banka. Sá var með hátt láns­hæf­is­mat, vegna sterkrar skulda­stöðu íslenska rík­is­ins, sem tryggði sam­ein­uðum banka gott aðgengi að alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum. Stjórn­endur nýja bank­ans gátu því náð í gríð­ar­legt magn af pen­ingum með skulda­bréfa­út­gáfu sem þeir lán­uðu svo áfram til helstu við­skipta­vina sinna, sem voru í sumum til­fellum líka stærstu eig­endur bank­ans. Kaupþing varð stærsti banki lands­ins og marg­fald­ist að umfangi á útrás­ar­ár­unum. Afrakst­ur­inn af þessum bræð­ingi öllum saman varð fimmta stærsta gjald­þrot heims­sög­unnar. Kaupþing var tek­inn yfir af íslenska rík­inu í byrjun októ­ber 2008 á grund­velli neyð­ar­laga. [adspot]
  4. Allt frá upp­hafi heyrð­ust efa­semd­araddir um að allt væri eins og af var látið í söl­unni á Bún­að­ar­bank­anum. Margir efuð­ust um að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi sem hefði haft áhuga á að fjár­festa á Íslandi og enn fleiri fannst í meira lagi sér­kenni­legt hvað það tók stuttan tíma fyrir S-hóp­inn að renna Bún­að­ar­bank­anum saman við Kaupþing. Marga grun­aði að það hafi verið ákveðið löngu áður og að Kaupþing hafi haft miklu meiri aðkomu að kaup­unum en gefið var upp opin­ber­lega. Ólafur Ólafsson neit­aði þessu alltaf. Hann sagði til að mynda í yfir­lýs­ingu 4. apríl 2003 að það væri „rangt að samn­ingar hafi legið fyrir um sam­ein­ingu Bún­að­ar­banka og Kaup­þings áður en gengið var frá kaup­unum á kjöl­festu­hlutnum í Bún­að­ar­bank­anum eins og ýjað hafi verið að.“
  5. Málið var rann­sakað að hluta til. Rík­is­end­ur­skoðun vann skýrslu árið 2003 um einka­væð­ingu rík­is­eigna þar sem nið­ur­staðan var sú að „ís­lensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Engar athuga­semdir voru gerðar við það hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins í skýrsl­unni. Í mars 2006 vann Rík­is­end­ur­skoðun síðan átta blað­síðna sam­an­tekt í kjöl­far fundar Vil­hjálms Bjarna­son­ar, núver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann lagði fram nýjar upp­lýs­ingar um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Vil­hjálmur hefur lengi verið þeirrar skoð­un­ar, og taldi sig hafa gögn til að sýna fram á, að aðkoma Hauck & Auf­häuser hafi aldrei verið raun­veru­legur eig­andi að hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var sú að ekk­ert sem lagt hafi verið fram í mál­inu hafi stutt víð­tækar álykt­anir Vil­hjálms. „Þvert á móti þykja liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar og gögn um hið gagn­stæða,“ segir í skýrslu henn­ar. 
  6. Í júní 2016 sendi Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, bréf til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd til að kom­ast til botns í aðkomu þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Þetta ætti að gera vegna þess að Tryggvi hefði nýjar upp­lýs­ingar sem byggðu á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var. Kjartan Bjarni Björg­vins­son var skip­aður í rann­sókn­ar­nefnd­ina og réð til sín einn starfs­mann, Finn Vil­hjálms­son. Þeir rann­sök­uðu málið um nokk­urra mán­aða skeið, köll­uðu aðal­leik­endur þess til skýrslu­töku og fóru yfir gríð­ar­legt magn af frum­gögnum. Þann 29. mars héldu þeir blaða­manna­fund og birtu skýrslu um nið­ur­stöður sínar.
  7. Þær nið­ur­stöður voru afger­andi. Ítar­leg skrif­leg gögn sýndu með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um. Aðkoman var sem­sagt blekk­ing. Kaupþing fjár­magn­aði Welling & Partners sem var raun­veru­legur eig­andi hlut­ar­ins sem þýski bank­inn sagð­ist hafa keypt. Gert var leyni­samn­ingur sem tryggði Hauck & Auf­häuser algjört skað­leysi og sölu­rétt á hlutnum eftir tvö ár. Fyrir þetta ómak þáði þýski bank­inn eina milljón evrur í þókn­ana­tekjur. Sá aðili sem bar alla áhætt­una af við­skipt­unum var Kaupþing. Þegar fléttan – sem kölluð var „Operation Puffin“ eða „Lunda­fléttan“ af þeim sem hönn­uðu hana – var gerð upp hafði Kaupþing sam­ein­ast Bún­að­ar­bank­anum. Þannig lá fyrir að hið keypta bar áhætt­una af fléttu utan um kaup á sér.
  8. En rann­sókn­ar­nefndin komst að fleiru. Í frétta­til­kynn­ingu sem hún sendi út sama dag og skýrslan var birt segir: „Síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verk­um, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dekhill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.“
  9. Ólafur Ólafsson er sá eini af höf­uð­paurum „Lunda­flétt­unnar“ sem hefur ráð­ist í umfangs­mikla málsvörn eftir að skýrslan var birt. Málsvörn hans snýst í grófum dráttum ann­ars vegar um að halda því fram að engu máli hafi skipt að hafa erlenda fjár­mála­stofnun með í S-hópnum. Hann hefur birt eitt nýtt gagn sem á að sýna fram á þetta, tölvu­póst frá fyrr­ver­andi starfs­manni einka­væð­ing­ar­nefndar sem tekur undir sögu­skýr­ingu Ólafs, þrátt fyrir að hún sé þvert á yfir­lýs­ingar ýmissa sem komu að söl­unni og rök­studda nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Sá sem sendi tölvu­póst­inn afplánar nú þriggja ára fang­els­is­dóm fyrir efna­hags­brot. Hins vegar segir Ólafur að það sé eng­inn vafi á því að Hauck & Auf­häuser hafi verið lög­form­legur eig­andi að hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Um það hefur reyndar engin efast. Önnur atriði máls­ins finnst Ólafi engu máli skipta. Hann fékk að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd nýverið þar sem von­ast var til að hann gæti upp­lýst um þær spurn­ingar sem enn er ósvarað í mál­inu og mögu­lega lagt fram ný gögn. Hann gerði hvor­ugt.
  10. Stærsta spurn­ingin sem enn stendur eftir ósvarað er hver er eig­andi félags­ins Dekhill Advisors sem fékk 2,9 millj­arða króna á þávirði lagða inn á reikn­ing sinn árið 2006. Pen­ing­arnir voru hluti af hagn­að­inum af Lunda­flétt­unni sem skipt var á milli aflands­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar ann­ars vegar og Dekhill Advisors hins vegar. Eftir að rann­sókn­ar­nefndin komst að sinni nið­ur­stöðu sendi hún bréf á alla sem komu að „Lunda­flétt­unni“ og spurði þá m.a. hver ætti Dekhill Advisors. Enginn þeirra sagð­ist vita það. Kjarninn greindi frá því 16. maí að gögn sýni að Dekhill Advisors sé enn virkt félag. Ein­hverjir ein­stak­lingar hafa aðgang að því og eignir þess hafa verið hand­veð­settar eftir hrun. Nýjustu gögn sýna að félagið var enn til í sept­em­ber 2016.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár