Ólafur telur skýrsluna ekki sanngjarna gagnvart þjóðinni né sér persónulega

Í ávarpi Ólafs Ólafs­sonar segir hann bak­samn­inga sem tryggðu honum millj­arða, og skað­leys­is­yf­ir­lýs­ing til Hauck & Auf­häuser, vera auka­at­riði. Ólafur vísar í póst frá Guðmundi Ólasyni því til stuðn­ings að erlend aðkoma að kaup­unum hafi ekki skipt máli.

Ólafur Ólafsson segir að aðkoma erlends fjár­mála­fyr­ir­tækis hafi ekki verið grund­vall­ar­for­senda fyrir sölu rík­is­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Þá liggi það fyrir að Hauck & Auf­häuser hafi verið raun­veru­legur hlut­hafi í félag­inu Eglu, sem var hluti S-hóps­ins sem keypti ráð­andi hlut í bank­anum. Þetta er megin nið­ur­staðan í ávarpi sem Ólafur hefur birt á heima­síð­unni Sölu­ferli.is sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM heldur úti fyrir hann. Ólafur telur því að ályktun nefnd­ar­innar um hið gagn­stæða vera ranga og segir hana ekki stand­ast skoðun.

[links]

Ávarpið var sett á netið í dag í ljósi þess að Ólafur fékk ekki að flytja það í heild sinni fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, en hann kemur fyrir hana í dag klukkan 15:15.

Í ávarp­inu ræðir Ólafur ekki bak­samn­inga sem tryggðu honum per­sónu­lega og óþekktum eig­endum aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors millj­arða króna né skað­leys­is­yf­ir­lýs­ingu sem Hauck & Auf­häuser fékk efn­is­lega. Ólafur segir að þetta séu ekki aðal­at­riði máls­ins.

Rann­sókn­ar­nefnd sem rann­sak­aði aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003 skil­aði af sér skýrslu 29. mars síð­ast­lið­inn.

Helstu nið­ur­stöður nefnd­ar­innar voru þær að stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu verið blekktir við söl­una. Ítar­leg gögn sýni með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­sonar not­uðu leyn­i­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­legt eign­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­­ar­ins aflands­­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frú­a­eyj­­um. Með fjölda leyn­i­­legra samn­inga og milli­­­færslum á fjár­­mun­um, m.a. frá Kaup­­þingi hf. inn á banka­­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­­anum tryggt skað­­leysi af við­­skipt­unum með hluti í Bún­­að­­ar­­bank­an­­um.“

Finnst skýrslan ekki sanngjörn gagnvart sér

Í nið­ur­lagi ávarps Ólafs segir hann: „Það er sjálf­sagt hægt að afgreiða þessa rann­sókn­ar­skýrslu þannig að sökin sé alfarið mín; ég hafi einn og óstuddur stjórnað öllu ferl­inu frá upp­hafi til enda og haldið um penna þeirra er skrif­uðu. En þá eru menn að loka aug­unum fyrir fyr­ir­liggj­andi stað­reyndum og halda áfram á óbreyttri braut. Ég tel að það væri hvorki rétt né sann­gjarnt gagn­vart þjóð­inni og alls ekki gagn­vart mér per­sónu­lega. Það væri heldur ekki í sam­ræmi við yfir­lýstan til­gang skýrsl­unnar sem hér er til umfjöll­unar.“

[adspot]

Líkt og áður sagði segir Ólafur að hann hafi sýnt fram á, með vísun í gögn, í ávarpi sínu að aðkoma erlends fjár­mála­fyr­ir­tækis hafi ekki grund­vall­ar­for­senda fyrir sölu rík­is­ins á hluta­bréfum í Bún­að­ar­bank­anum. Þar af leið­andi skipti aðkoma Hauck & Auf­häuser engu máli. S-hóp­ur­inn, sem Ólafur leiddi, hefði samt sem áður fengið að kaupa, hann hefði staðið við alla samn­inga sína við ríkið og þar af leið­andi hafi ríkið hvorki verið blekkt né verr sett með aðkomu þýska bank­ans.

Ólafur birti eitt nýtt gagn sem hann segir að styðji þessa ályktun sína. Um er að ræða tölvu­póst frá starfs­manni einka­væð­ing­ar­nefndar þegar salan á Bún­að­ar­bank­anum fór fram. Í tölvu­póst­inum segir umræddur starfs­maður – en hann er ekki nafn­greindur í ávarpi Ólafs – að hann geti stað­fest þennan skiln­ing.

Tölvu­póst­ur­inn sem um ræðir var sendur í síð­ust vikuog er birtur sem fylgi­skjal með ávarpi Ólafs. Þar er nafn send­anda hulið en með því að afrita text­ann og líma hann í nýtt skjal er hægt að sjá að þar er um Guðmund Ólason að ræða. Guð­mundur var fyrir ári síðan dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir sinn hlut í greiðslum á 4,8 millj­örðum króna sem runnu út úr félag­inu Milestone – En Guð­mundur var for­stjóri þess – og til Ingunnar Wernersdóttur.

Guð­mundur gaf skýrslu fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni. Í skýrslu nefnd­ar­innar segir að hvorki hann, né aðrir starfs­menn eða nefnd­ar­menn einka­væð­ing­ar­nefndar, hefðu „orðið var við neitt annað en að aðkoma Hauck & Auf­häuser hefði verið með þeim hætti sem upp­lýst var um opin­ber­lega á sínum tíma.“

Ólafur segir einnig að grund­vall­ar­at­riði hvað þetta varði sé fundur S-hóps­ins með einka­væð­ing­ar­nefnd sem átt hafi sér stað 28. ágúst 2002. Ólafur segir að bókun þess fundar sýni fram á að það hafi ekki verið nein for­senda þess að S-hóp­ur­inn fengi að kaupa ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­anum að erlendur banki væri hluti af hópnum.

Í fund­ar­gerð einka­væð­ing­ar­nefndar frá 28. ágúst 2002 segir: „Upplýst um að tveir erlendir bankar hefðu sýnt áhuga á að koma að mál­inu sem ráð­gjafar eða fjár­festar. Spurt hvort það breyti stöðu hóps­ins ef breyt­ingar verða á skipan hóps­ins með þeim hætti. ÓD [Ólafur Dav­íðs­son] sagði svo ekki vera. Frekar væri gef­inn plús fyrir erlenda pen­inga.“

Rann­sókn­ar­nefndin túlkar þessa bókun á þver­öfugan hátt við Ólaf. Samkvæmt skýrslu hennar er svar for­manns nefnd­ar­innar um að frekar væri „gef­inn plús fyrir erlenda pen­inga“ túlkað með þeim hætti að aðkoma erlends banka myndi styrkja til­boð S-hóps­ins. Ólafur Dav­íðs­son hefur ekki skýrt hvor túlk­unin er rétt.

Ákveðið var 4. nóv­em­ber 2002 að mæla með því að ganga til samn­inga við S-hóp­inn um kaup á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu um einka­við­ræður við S-hóp­inn kom hins vegar skýrt fram að lyk­il­for­senda fyrir þeim væri aðkoma erlendrar fjár­mála­stofn­unar. Annars yrðu þær hugs­an­lega ekki fram­lengdrar.

Þegar hinn hóp­ur­inn sem val­inn hafði verið til við­ræðna um kaup á hlutnum, Kald­bakur, óskaði eftir skýr­ingum á þessu svar­aði for­maður fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu því til að sér­stak­lega hefðu þrjú atriði „skilið á milli við val á við­semj­anda“. Meðal þeirra atriða sem nefnd voru í þessu sam­bandi var að S-hóp­ur­inn hefði haft í sínum hópi „virt erlent fjár­mála­fyr­ir­tæki sem fjár­festi“.

Á þessum tíma lá ekk­ert fast fyrir um neina erlenda aðkomu að kaupum S-hóps­ins. Í bréf­inu sagði nefndin að „S-hóp­ur­inn hefði gefið til kynna að 25-30% hlutur í eign­ar­halds­fé­lagi um eign í Bún­að­ar­bank­anum yrði í eigu Société Générale eða ann­ars alþjóð­legs fjár­festis.“ Fram­kvæmda­nefndin lagði áherslu á að „þátt­taka Société Générale eða ann­arrar hátt virtrar alþjóð­legrar fjár­mála­stofn­unar, sem umtals­verðs hlut­hafa í eign­ar­halds­fé­lagi um til­boðið [hefði] verið veiga­mik­ill þáttur á bak við ákvörðun nefnd­ar­innar að efna til einka­við­ræðna við [S-hóp­inn]“. Lögð var áhersla á að einka­við­ræður yrðu ákveðnar til til­tek­ins tak­mark­aðs tíma og að fram­kvæmda­nefndin yrði treg til að fram­lengja einka­við­ræður ef hún teldi þá „Société Générale eða annan alþjóð­legan fjár­festi ólík­legan til að eiga umtals­verðan hlut í eign­ar­halds­fé­lagi um til­boðið“.

Telur baksamninga, skaðleysi og þóknanir aukaatriði

Hin meg­in­nið­ur­staða Ólafs er sú að Hauck & Auf­häuser hafi verið raun­veru­legur eig­andi Eglu. Um það er í raun ekki deilt. Bankinn hélt á hlutum í því félagi og keypti auk ann­arra hluta­bréf í Bún­að­ar­bank­anum. Þegar það var gert voru stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur ekki upp­lýst um að kaupin voru fjár­mögnuð af íslenska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Kaup­þingi, að gerðir höfðu verið samn­ingar sem tryggðu skað­leysi Hauck & Auf­häuser af við­skipt­unum og sölu­rétt eftir tæp tvö ár.

Það var heldur ekk­ert upp­lýst um að Hauck & Auf­häuser hafi fengið þóknun upp á eina milljón evra fyrir við­vikið né að bak­samn­ingar voru um að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni. Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar króna.

ÓIafur fjallar ekki efn­is­lega um neina af þessum samn­ingum. Í ávarp­inu segir hann: „Hauck & Auf­hauser gerðu samn­inga, í þessu til­felli við Kaupþing, um fjár­mögnun, tak­mörkun á áhættu, o.s.frv. Þeir samn­ingar sem voru rík­inu óvið­kom­andi og vörð­uðu ekki hags­muni þess, enda fékk það allt sitt greitt og staðið var við öll skil­yrði kaup­samn­ings. Það var gagn­kvæmur vilji hjá Hauck & Auf­hauser og Kaup­þingi að eiga við­skipti sín í milli. Öll sam­skipti á milli Kaup­þings og Hauck & Auf­häuser voru bein og milli­liða­laus. Þeir gengu sjálfir frá samn­ingum sín á milli.“ Hann telur því að bak­samn­ing­arnir séu ein­fald­lega samn­ingar milli einka­að­ila og komi sölu á Bún­að­ar­bank­anum ekk­ert við.

Ólafur segir að samn­ing­arnir sem gerðir voru milli þýska bank­ans og Kaup­þings hafi verið „alfarið á þeirra ábyrgð og ég hafði hvorki lesið þá né séð, fyrr en núna, í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Ég vissi hins vegar að þeir höfðu gert með sér samn­inga og hvert var megin inn­tak þeirra samn­inga. Hafi eitt­hvað verið í þessum samn­ingum, sem ég fæ reyndar ekki séð, sem þeir áttu að upp­lýsa um, þá var það alfarið á þeirra ábyrgð.“

Þessi full­yrð­ing Ólafs stang­ast á við fram­burð hans fyrir dómi 30. jan­úar 2017, þegar hann svar­aði spurn­ingum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Þar var Ólafur spurður um full­yrð­ingar Sig­ur­jóns Árna­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans og fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­sviðs Bún­að­ar­bank­ans, í skýrslu hjá Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis árið 2009, að Hauck & Auf­häuser hafi verið full­trúi fyrir aðra aðila og að það hafi verið gerður ein­hvers konar fram­virkur samn­ingur um við­skipti bank­ans, sagði Ólafur að honum vit­an­lega ætti það ekki við rök að styðj­ast og að hann myndi „ekki eftir neinu svona“.

Nú seg­ist hann hafa vitað af því að „þeir hefðu gert með sér samn­inga og hvert var megin inn­tak þeirra samn­inga“. Þegar hann var spurður um þetta fyrir dómi mundi hann ekki eftir neinum slíkum samn­ingum.

Ólafur segir einnig í ávarpi sínu að umræddir samn­ingar hafi verið háðir banka­leynd. Honum hafi því ekki verið heim­ilt að upp­lýsa um „til­vist þeirra og efni þeirra, hafi ég þekkt það.[...]Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að samn­ingar milli Hauck & Auf­häuser og Kaup­þings voru háðir banka­leynd.“

Þetta er ekki rétt. Samkvæmt lögum um rann­sókn­ar­nefndir geta þeir sem gefa skýrslu fyrir slíkum nefndum ekki borið fyrir sig banka­leynd gagn­vart fyr­ir­spurnum nefnd­ar­innar. Þar segir í 7. grein að skylt sé að verða „við kröfu rann­sókn­ar­nefndar um afhend­ingu gagna og að veita upp­lýs­ingar þótt þær séu háðar þagn­ar­skyldu. Sama gildir um upp­lýs­ingar sem óheim­ilt er að lögum að veita fyrir dómi nema með sam­þykki ráð­herra, for­stöðu­manns eða ann­ars yfir­manns við­kom­andi, jafnt hjá hinu opin­bera sem einka­fyr­ir­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár