Mannréttindadómstóll Evrópu vísar kæru Ólafs Ólafssonar frá

MDE hafn­aði í morgun með afger­andi hætti að Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefði brotið gegn rétti Ólafs Ólafs­sonar til rétt­látar máls­með­ferðar.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson Mynd: Söluferli.is

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) vís­aði í morgun frá kæru Ólafs Ólafs­sonar á hendur íslenska rík­inu. Dómurinn hafn­aði með afger­andi hætti að Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefði brotið gegn rétti Ólafs til rétt­látar máls­með­ferðar.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Kjartans Björg­vins­sonar á Facebook í dag en hann var for­maður nefnd­ar­innar á sínum tíma.

„Ef nið­ur­staðan hefði orðið kær­anda í hag hefðu rann­sókn­ar­nefndir eins og við þekkjum þær lík­lega heyrt sög­unni til. Rann­sókn­ar­nefndir verða því áfram úrræði sem Alþingi getur nýtt til að varpa ljósi á stóru málin í sam­fé­lag­inu. Því má sann­ar­lega fagna á afmæli lýð­veld­is­ins. Gleði­lega þjóð­há­tíð,“ segir í færsl­unni.

Ólafur segir í yfir­lýs­ingu að hann meti nú hvort hann kjósi að höfða mál á hendur rík­inu fyrir íslenskum dóm­stólum vegna fram­göngu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

[adspot]

Sagði vinnu nefndarinnar vera „einhliða áras“ á sig

[links]Kjarninn greindi frá því í júní 2019 að Ólafur teldi að nið­ur­staða Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans 2003, þar sem hann og við­skipta­fé­lagar hans voru sagðir hafa blekkt íslenska ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing, hefði vegið „alvar­lega að orð­spori mínu og æru án þess að ég hefði nokk­urt tæki­færi til að koma við vörnum eða nýta þau rétt­indi sem við teljum sjálf­sagt að fólk, sem borið er þungum sökum af hálfu stjórn­valda, njóti.“ Hann kall­aði vinnu nefnd­ar­innar einnig „ein­hliða árás“ á sig.

Ólafur sendi kæru til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu nokkrum mán­uðum eftir að nið­ur­staðan var birt í skýrslu, eða í júlí 2017. Ólafur vildi meina að hann hefði ekki notið rétt­inda sem honum væru tryggð í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu þar sem „umgjörð og máls­með­ferð RNA hafi í raun falið í sér saka­mál á hendur honum og jafn­gilt refs­ingu án þess að hann hafi notið nokk­urra þeirra rétt­inda sem fólk sem borið er sökum á að njóta og er grund­völlur rétt­ar­rík­is­ins“.

Ríkið, fjölmiðlar og almenningur blekktir

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar, sem skil­aði skýrslu sinni í mars 2017, var að ítar­leg gögn sýndu með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

Auk þess sýndi skýrslan að síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga hefði gert það að verk­um, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son.

Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að eig­endur þess félags hafi verið bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, aðal­eig­endur Bakka­varar og stærstu eig­endur Kaup­þings fyrir hrun.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem nefndin sendi frá sér í aðdrag­anda þess að skýrslan var birt sýndu gögn máls­ins „hvernig íslensk stjórn­völd voru blekkt og hvernig rangri mynd af við­skipt­unum var haldið að fjöl­miðlum og almenn­ingi. Á hinn bóg­inn bendir ekk­ert til ann­ars en að öðrum aðilum innan fjár­festa­hóps­ins sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, S-hóps­ins svo­kall­aða, hafi verið ókunn­ugt um leyni­samn­ing­ana og að þeir hafi staðið í þeirri trú að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi þess hlutar sem hann var skráður fyr­ir.“

Niðurstaðan vonbrigði

Tyge Trier, danskur lög­maður sem sótti málið fyrir hönd Ólafs, segir nið­ur­stöð­una vera von­brigði, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu Ólafs vegna nið­ur­stöðu MDE.

„Ég dreg þá ályktun að líta megi á ákvörð­un­ina, sem ein­ungis var tekin af þremur dóm­urum, sem aðvörun til íslenskra stjórn­valda að til staðar hafi verið alvar­leg álita­mál hvað mann­rétt­inda­sátt­mál­ann varðar, en einnig að til staðar hafi verið laga­leg úrræði sem ekki var látið á reyna. Kvörtunin er því ekki tekin til með­ferðar. Í mínum huga er eng­inn vafi á að brotið hafi verið á rétti Ólafs til frið­helgi einka­lífs og ætl­aðs sak­leysis,“ segir lög­mað­ur­inn.

„Frá mínum sjón­ar­hóli og með minn bak­grunn sé ég alvar­leg álita­mál tengd ákvæðum 6.2 og 8 í mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og einnig að efast megi um hvort raun­hæfar leiðir hafi verið til staðar fyrir íslenskum dóm­stólum. Dóm­ar­arnir í Strass­borg hafa nú – byggt á merki­legum yfir­lýs­ingum lög­manna íslenska rík­is­ins – stað­fest að þær leiðir séu til staðar fyrir íslenskum dóm­stólum. Það er því nokkuð sem við þurfum að meta í fram­hald­inu. Mik­il­vægt er að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hefur í dag vakið athygli á þeim brota­lömum sem Ólafur sýndi fram á og byggt á nærri 30 ára reynslu minni á þessu sviði, er mitt mat að brotið hafi verið á rétti Ólafs til einka­lífs og til að vera tal­inn sak­laus,“ segir hann enn fremur.

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að Ólafur meti nú hvort hann kjósi að höfða mál á hendur rík­inu fyrir íslenskum dóm­stólum vegna fram­göngu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. „Ég mun meta þessa nið­ur­stöðu, en áhugi minn á að reka mál fyrir íslenskum dóm­stólum er lít­ill að feng­inni reynslu og tím­anum sjálf­sagt betur varið til upp­byggi­legri mála,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár