Alþingi á að skipa rannsóknarnefnd ef það vill skýra aðkomu Hauck & Aufhäuser

Umboðs­maður Alþingis er með nýjar upp­lýs­ingar um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003. Hann segir að Alþingi eigi að skipa rann­sókn­ar­nefnd ef vilji sé til þess að kom­ast til botns í mál­inu.

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, segir að Alþingi eigi að skipa rann­sókn­ar­nefnd til að kalla fram nýjar upp­lýs­ingar um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins svo­kall­aða á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003, ef áhugi sé fyrir því að kom­ast til botns í mál­inu. Hann hefur undir höndum nýjar upp­lýs­ingar og ábend­ingar um raun­veru­lega þátt­töku Hauck & Auf­häuser, þýsks einka­banka, í kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum.

Þegar kaupin áttu sér stað var málið kynnt þannig að Hauck & Auf­häuser væri á meðal kaup­enda að bank­anum og var aðkoma erlends banka talin styrkja stöðu S-hóps­ins gagn­vart kaup­unum. Þetta kemur fram í bréfi sem Tryggvi sendi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd 19. maí síð­ast­lið­inn og hefur verið birt á heima­síðu emb­ættis hans.

Sú skýr­ing sem gefin var um aðkomu Hauck & Auf­häuser hefur lengi verið dregin í efa og því oft verið haldið fram í opin­berri umræðu að bank­inn hafi verið leppur.

Bárust nýjar upplýsingar

Í bréfi Tryggva segir að umboðs­manni Alþingis hafi nýverið borist nýjar upp­lýs­ingar og ábend­ingar um „hvernig leiða mætti í ljós hver hafi í raun verið þátt­taka þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KgaA í kaupum á eign­ar­hluta íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. á árinu 2003 með aðild hans að Eglu hf.“. Upp­lýs­ing­unum var komið til umboðs­manns með þeim for­merkjum að hann gætti trún­aðar um upp­runa þeirra. Hann telur að upp­lýs­ing­arnar geti haft þýð­ingu um „rétt­mæti þeirra upp­lýs­inga sem íslensk stjórn­völd byggðu á við sölu á umræddum eign­ar­hluta, þ. á m. við val á við­semj­enda um kaupin. Þá kann einnig að skipta máli hvort þau skil­yrði sem fram komu í kaup­samn­ingi um þessi við­skipti hafi að öllu leyti verið upp­fyllt sem og þegar tekin var afstaða til beiðna kaup­and­ans á síð­ari stigum um breyt­ingar á samn­ings­bundnum skyldum sínum“.

Tryggvi sat sem kunn­ugt er í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna þar sem meðal ann­ars var fjallað um einka­væð­ingu bank­anna og segir í bréf­inu að sér hafi lengi verið ljóst að uppi hafi verið óskir um að aðild hins þýska banka að kaup­unum yrði skýrð nánar. „Tilefnið eru efa­semdir um að þáttur bank­ans hafi í raun verið með þeim hætti sem kynnt var af hálfu kaup­enda eign­ar­hlut­ans“.

Hann taldi því fulla ástæðu til að kanna þær nýju upp­lýs­ingar sem honum bár­ust nánar og kanna hvort þær gætu leitt til þess að leiða fram nýjar stað­reyndir um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum. „Nið­ur­staða mín er sú að frek­ari úrvinnsla þess­ara upp­lýs­inga og til­teknar athug­anir og gagna­öflun sé lík­legt til þess“.

Tryggvi telur hins vegar að hvorki lög­bundnar starfs­heim­ildir emb­ættis síns né Rík­is­end­ur­skoð­unar dugi til að afla þeirra ganga sem sem hinar nýju upp­lýs­ingar vísa til né til þess að afla upp­lýs­inga og skýr­inga hjá þeim lög­að­ilum sem koma við sögu í mál­inu. Þess vegna vill hann koma því á fram­færi við stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd að ef vilji sé til þess að fá fram nýjar upp­lýs­ingar um aðkomu þýska bank­ans eigi að vinna að því á grund­velli laga um rann­sókn­ar­nefndir. Með öðrum orðum, þá eigi að Alþingi að skipa rann­sókn­ar­nefnd ef vilji er fyrir því að kom­ast til botns í mál­inu og skýra einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans í eitt skipti fyrir öll.

Tryggvi tekur sér­stak­lega fram að ekk­ert bendi til þess að þeir sem tóku ákvörðun fyrir hönd rík­is­ins um sölu á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins eða unnu að þeirri sölu hafi haft vit­neskju um þau atriði sem hann hefur nú fengið vit­neskju um.

Áttu ekki mikið af peningum

Tor­tryggni gagn­vart aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á kjöl­festu­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hefur verið við­var­andi allt frá því að kaupin áttu sér stað fyrir rúmum þrettán árum. Þegar íslenska ríkið ákvað að selja hlut sinn í Bún­að­ar­banka Íslands árið 2002 var eitt af helstu mark­miðum þess að fá erlenda fjár­mála­stofnun til að koma þar að. Það vann því mjög með þeim bjóð­endum í hlut rík­is­ins í bank­anum ef þeir höfðu slíka í sínum hópi.

Kjarn­inn hefur öll gögn einka­væð­ing­ar­ferl­is­ins undir hönd­um, þar með talið fund­ar­gerðir einka­væð­ing­ar­nefndar og þau gögn sem nefndin studd­ist við þegar hún tók ákvörðun sína um að selja einum bjóð­anda umfram ann­an. Sá bjóð­andi sem fékk á end­anum að kaupa Bún­að­ar­bank­ann var hinn svo­kall­aði S-hóp­ur, með rík tengsl inn í Fram­sókn­ar­flokk­inn og leiddur af Ólafi Ólafs­syni, sem nú afplánar fang­els­is­dóm vegna Al Than­i-­máls­ins, og Finni Ing­ólfs­syni, fyrrum vara­for­manns og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

S-hóp­ur­inn átti ekki sér­stak­lega mikla pen­inga (kaup­verðið var að stórum hluta fengið að láni) og hafði enga reynslu af því að reka banka. Það var því mjög mik­il­vægt fyrir hann að láta líta svo út að sterkur, erlendur aðili væri með í hópnum til að gera einka­væð­ing­ar­nefnd auð­veld­ara fyrir að selja honum bank­ann.

Soci­ete General verður Hauck & Auf­hauser

Framan af var látið líta svo út að erlendi bank­inn sem væri í slag­togi með S-hópnum væri franski bankaris­inn Soci­ete Gener­al, sem einka­væð­ing­ar­nefnd þótti fýsi­legt. Ljóst er á fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefndar að hún taldi nán­ast allan tím­ann að franski bank­inn væri sú fjár­mála­stofnun sem ætl­aði að taka þátt í kaup­un­um.

Þeirri tál­sýn var haldið á lofti í gegnum ferlið, þótt að aldrei feng­ist stað­fest­ing á því að Soci­ete General væri með í hópn­um. Þegar leið að því að salan á Bún­að­ar­banka yrði kláruð komu skila­boð frá S-hópnum um að ekki væri hægt að til­kynna um hver erlendi aðil­inn í hópnum væri fyrr en við und­ir­skrift.

Bún­að­ar­bank­inn var loks seldur til S-hóps­ins 16. jan­úar 2003. Einka­væð­ing­ar­nefnd fékk fyrst að vita nafn erlenda bank­ans sem tók þátt í kaup­unum sjö dögum áður. Sá banki var þýski sveita­bank­inn Hauck & Auf­hauser. Hann var aldrei nefndur á nafn í fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefnd­ar.

Hauck & Auf­hauser hafði aldrei nein afskipti af ætl­uðum eign­ar­hlut sínum í Bún­að­ar­bank­anum og skip­aði íslenskan starfs­mann eign­ar­halds­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar í stjórn Eglu, félags­ins sem bank­inn átti hlut sinn í gegn­um. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­ur­inn keypti Bún­að­ar­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­ur­inn sem stýrði honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld sög­unnar sem eitt stærsta gjald­þrot sem orðið hef­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár