Allir sem komu að fléttunni sögðu ósatt við skýrslutöku

Stjórn­endur Kaupþing, Ólafur Ólafsson og Guð­mundur Hjalta­son komu allir að þvi að hanna flétt­una í kringum Hauck & Auf­häuser. Enginn þeirra kann­að­ist við það þegar spurt var út í málið við skýrslu­töku.

Allir þeir sem komu með beinum hætti að þeirri blekk­ingu sem sett var á fót í kringum meinta þátt­töku þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2013 sögðu ósatt um vit­neskju sína við skýrslu­töku fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis. Gríð­ar­legt magn gagna – meðal ann­ars skjöl og tölvu­póstar – sýna með óyggj­andi hætti að Hauck & Auf­häuser var aldrei raun­veru­legur eig­andi í Bún­að­ar­bank­anum heldur leppur. Þetta kemur fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum.

[links]

Gögnin sýna enn fremur að Ólafur Ólafsson, sam­starfs­menn hans, stjórn­endur hjá Kaup­þingi og nokkrir erlendir sam­starfs­menn, meðal ann­ars innan Hauck & Auf­häuser, hönn­uðu þá fléttu sem sett var á svið í kringum kaupin. Í henni fólst að Kaupþing fjár­magn­aði meint kaup Hauck & Auf­häuser á hlut í Bún­að­ar­bank­anum, end­an­legur eig­andi þess hlutar var aflands­fé­lagið Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og bak­samn­ingar tryggðu Hauck & Auf­häuser algjört skað­leysi af aðkomu sinni. Slíkir samn­ingar tryggðu einnig að allur ávinn­ingur af flétt­unni, sem varð á end­anum yfir 100 millj­ónir dala, skipt­ist á milli aflands­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar og aðila sem tengd­ust Kaup­þingi. Á gengi árs­ins 2005 nam sú upp­hæð 6,8 millj­örðum króna. Í dag er hún um 11 millj­arðar króna.

Lykilmennirnir neituðu að mæta

Fjórir lyk­il­menn í mál­inu voru boð­aðir til skýrslu­töku, en neit­uðu að mæta. Ólafur Ólafsson, Guð­mundur Hjalta­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Sigurður Ein­ars­son. Þegar rann­sókn­ar­nefndin beindi því til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að boða þá kröfð­ust þrír þeirra þess að dóm­ari viki sæti í mál­inu. Þeirri beiðni var hafnað.

Þegar beiðni rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var tekin aftur fyrir í byrjun des­em­ber 2016 báru bæði Ólafur og Guð­mundur brigður á að þeim væri skylt að svara spurn­ingum nefnd­ar­innar. Þessu var hafnað af Hæsta­rétti 17. jan­úar 2017.

Skýrslur voru loks teknar af þeim í lok jan­úar og byrjun febr­úar. Allir fjórir ofan­greindir svör­uðu þar spurn­ingum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar með þeim hætti að fram­burður þeirra stang­ast með öllu á við gögn – bæði samn­inga og tölvu­pósta – sem nefndin hefur undir höndum og sýnir bæði beina aðkomu þeirra og fulla vit­neskju um þá bak­samn­inga sem gerðir voru þegar látið var líta út fyrir að Hauck & Auf­häuser hefði keypt stóran hlut í Bún­að­ar­banka Íslands í jan­úar 2003.

Ólafur og Guð­mundur sögðu að þær upp­lýs­ingar sem stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu fengið um kaupin hafi verið réttar og nákvæmar. Bæði Hreiðar Már og Sigurður könn­uð­ust ekk­ert við að Kaupþing, sem þeir stýrðu, hefði komið að eða fjár­magnað kaup Hauck & Auf­häuser í Bún­að­ar­bank­anum. Þá höfn­uðu þeir því báðir að hafa ein­hver annar en Hauck & Auf­häuser hefði verið raun­veru­legur eig­andi að hlutnum sem keyptur var í Bún­að­ar­bank­anum.

Gögn máls­ins sýna, líkt og áður sagði, að allir fjórir menn­irnir höfðu fulla vit­neskju um, og tóku fullan þátt í, þeirri fléttu sem opin­beruð er í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Þess utan liggur fyrir að Ólafur hagn­að­ist með beinum hætti um marga millj­arða króna af flétt­unni og að rann­sókn­ar­nefndin dregur þá ályktun að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi gert slíkt hið sama.

Tóku beinan þátt en könnuðust ekki við neitt

Rann­sókn­ar­nefndin tók líka skýrslur af Ármanni Þor­valds­syni, fyrr­ver­andi for­stöðu­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kaup­þings, Bjarka Diego, þá starfs­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjaf­ar­innar, Kristínu Pét­urs­dóttur, þá for­stöðu­manni fjár­stýr­ingar Kaup­þings, og Stein­grími Kárasyni, þá yfir­manni áhættu­stýr­ingar. Auk þess tók nefndin skýrslu af Magnúsi Guð­munds­syni, sem stýrði Kaup­þingi í Lúx­em­borg.

Enginn þess­ara aðila „kann­að­ist við eða rak minni til þess að Kaupþing eða dótt­ur­fé­lag þess í Lúx­em­borg hefðu komið að við­skiptum Hauck & Auf­häuser með hluti í Eglu hf. [félag­inu sem keypti hlut­inn í Bún­að­ar­bank­anum]“.

[adspot]

Gögn máls­ins, sem rakin eru í skýrsl­unni, sýna þó ótví­rætt að allir ofan­greindir, utan Ármanns, tóku beinan þátt í þeirri fléttu sem fram­kvæmd var í kringum kaupin á Bún­að­ar­bank­anum. Það sýna skjöl og tölvu­póstar ótví­rætt.

Þau sögðu því einnig ósatt við skýrslu­töku.

S-hópurinn plataður

Nefndin ræddi líka við aðra sem til­heyrðu S-hópnum svo­kall­aða. Sá hópur sam­an­stóð af Eglu ehf. (félags í eigu Kers (að mestu í eigu Ólafs Ólafs­sonar) sem átti 49,5 pró­sent, VÍS sem átti 0,5 pró­sent og opin­ber­lega Hauck & Auf­häuser sem sagt var eiga 50 pró­sent), Eign­ar­halds­fé­lag­inu Sam­vinnu­trygg­ingum, Sam­vinnu­líf­eyr­is­sjóðnum og VÍS.

Þeir sem rætt var við voru Finnur Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri VÍS og fyrr­ver­andi vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Margeir Dan­í­els­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­vinnu­líf­eyr­is­sjóðs­ins, og Kristján Loftsson, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kers. Svo virð­ist, af svörum þeirra, að þeir hafi ekki haft neina vit­neskju um þá fléttu sem Ólafur og Kaupþing, ásamt sam­verka­mönnum sínum m.a. hjá Hauck & Auf­häuser, höfðu ofið og tryggðu m.a. Ólafi og aðilum tengdum Kaup­þingi 6,8 millj­arða króna útgreiðslu nokkrum árum eftir að við­skiptin voru um garð gengin.

Samkvæmt því þá plöt­uðu Kaupþing og Ólafur ekki ein­ungis almenn­ing, stjórn­völd og fjöl­miðla, heldur líka við­skipta­fé­laga Ólafs.

Báru fyrir sig bankaleynd

Þá reyndi nefndin líka að fá upp­lýs­ingar hjá nokkrum erlendum aðilum og Íslend­ingum sem starfa erlendis. Þeirra á meðal var Peter Gatti, sem kom fram fyrir hönd Hauck & Auf­häuser í þeim blekk­ing­ar­leik sem settur var á svið hér­lendis. Gatti skrif­aði m.a. undir kaup­samn­ing­inn þegar S-hóp­ur­inn keypti 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum og sett­ist í stjórn bank­ans. Hann svar­aði ekki erindi nefnd­ar­innar.

Lyk­il­maður í flétt­unni Hauck & Auf­häuser-megin var Martin Zeil, þá for­stöðu­maður lög­fræðis­viðs Hauck & Auf­häuser en síðar þing­maður í Þýska­landi. Gögn máls­ins sýna að hann var mjög vel inni í öllu sem gerð­ist í mál­inu og hafði heild­ar­sýn yfir verkn­að­inn. Zeil bar fyrir sig banka­leynd og svar­aði ekki spurn­ingum nefnd­ar­innar. Það sama gerði Eggert Jónas Hilm­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs Kaup­þings í Lúx­em­borg.

Ralf Darpe, starfs­maður Þýska­lands­arms franska bank­ans Societe General, sem fékk 300 millj­óna króna þóknun fyrir að aðstoða S-hóp­inn við að eign­ast Bún­að­ar­bank­ann, svar­aði ekki erindum nefnd­ar­innar.

Auk þess var rætt við for­mann fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu og starfs­menn nefnd­ar­innar. Þeir sögðu allir að þeir hefðu ekki orðið varir við neitt annað en að aðkoma Hauck & Auf­häuser haefði verið með þeim hætti sem upp­lýst var um opin­ber­lega.

Var aldrei kynnt í stjórn

Einn áhuga­verð­asti við­mæl­andi nefnd­ar­innar var Helmut Landwehr. Sá var með­eig­andi í Hauck & Auf­häuser og sat í stjórn bank­ans þegar hann þótt­ist hafa keypt hlut í Bún­að­ar­bank­anum.

Landwehr gaf rann­sókn­ar­nefnd­inni þær upp­lýs­ingar að Peter Gatti hefði komið að einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans fyrir hönd Hauck & Auf­häuser. „Landwehr tjáði nefnd­inni að miðað við þær upp­lýs­ingar sem hefðu verið kynntar innan bank­ans á þeim tíma þá hefði þátt­taka Hauck & Auf­häuser ein­skorð­ast við hafa vörslur hlut­anna í Eglu hf. fyrir hönd íslenskra aðila. Landwehr sagði að ef bank­inn hefði fest kaup á hluta­bréfum í eigin nafni, sem hefði þá numið fjár­fest­ingu upp á um það bil 35 milljón Banda­ríkja­dali, þá hefði þurft að afla sam­þykkis stjórnar fyrir fjár­fest­ing­unni. Slík fjár­fest­ing hefði hins vegar ekki verið kynnt í stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár