Ólafur Ólafsson: Hvorki ríkissjóður né almenningur verr settir

ÓIafur Ólafsson hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um blekk­ingar við kaup á Bún­að­ar­bank­anum. Hann hafnar því að hagn­aður hans hafi verið vegna blekk­inga.

Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ólafsson.

Ólafur Ólafsson segir að hvorki ríkið né almenn­ingur hafi verið verr sett vegna bak­samn­inga sem hann og aðrir gerðu í tengslum við kaup Hauck & Auf­häuser á 45,8 pró­senta hlut í Bún­að­ar­banka Íslands í árs­byrjun 2003. Hann segir að til að koma í veg fyrir ágrein­ing „um eigna­sölu rík­is­ins í 15 ár eins og í þessu til­felli skulu stjórn­völd standa þannig að málum, bæði gagn­vart kaup­endum og almenn­ingi, að leik­reglur séu fyrir fram ákveðnar og atriði, sem ekki skipta máli, verði ekki gerð að aðal­at­riðum máls síðar.“ Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Ólafi.

Þar segir Ólafur enn fremur: „Það sem á fundi rann­sókn­ar­nefndar voru nefndir bak­samn­ingar voru samn­ingar milli einka­að­ila og höfðu engin áhrif á nið­ur­stöðu í sölu rík­is­ins á hlut sínum í Bún­að­ar­bank­anum. Hvorki rík­is­sjóður né almenn­ingur voru verr settir vegna þess­ara samn­inga, sem rann­sókn­ar­nefndin kýs að kalla blekk­ingu. Samn­ing­arnir, eins og þeim er lýst í skýrsl­unni, snúa að fjár­mögnun á hlut Hauck & Auf­häuser í þessum við­skiptum, áhættu og hvernig hagn­aði, ef af yrði en ekk­ert lá fyrir um, væri skipt. Hagn­að­ur­inn kom til vegna hækk­unar á hluta­bréfa­verði á tveggja ára tíma­bili en ekki vegna meintra blekk­inga.“

[links]Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom fram að ítar­leg skrif­leg gögn sýna með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Lux­em­bo­urg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Well­ing & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Well­ing & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

[adspot]

Í skýrsl­unni segir enn frem­ur: „Síð­ari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verk­um, að Well­ing & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Mar­ine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Mar­ine Choice Limited var Ólafur Ólafs­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­fé­lags­ins Dek­hill Advis­ors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dek­hill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.“

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið undanfarið ár