Ólafur Ólafsson sagði ósatt fyrir dómi

Höf­uð­paur­inn í Hauck & Auf­häuser-flétt­unni, sem hagn­að­ist um millj­arða á henni, hélt því fram fyrir dómi að allar upp­lýs­ingar um aðkomu þýska bank­ans sem veittar voru íslenska rík­inu og fjöl­miðlum hefðu verið réttar og nákvæmar.

Ólafur Ólafsson sagði í vitn­is­burði sínum fyrir dómi, þar sem hann svar­aði spurn­ingum rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á stórum hluta í Bún­að­ar­banka Íslands, að eftir því sem hann best vissi væru allar þær upp­lýs­ingar sem íslenska rík­inu voru veittar um kaupin, og kynntar voru í fjöl­miðlum sam­hliða kaupum, hafi verið réttar og nákvæmar, að því er hann best vissi.

Gögn sem nefndin hefur undir höndum sýna þó með óyggj­andi hætti fram á að svo er ekki. Ólafur var leið­andi í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaupin, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar. Í henni fólst að Hauck & Auf­häuser var aldrei raun­veru­legur eig­andi að hlutnum, Kaupþing fjár­magn­aði við­skiptin en ekki þýski bank­inn, Ólafur Ólafsson og lík­lega Kaupþing eða stjórn­endur þess högn­uð­ust um millj­arða króna á flétt­unni og Hauck & Auf­häuser var tryggt algjört skað­leysi.

Þá sagði Finnur Vil­hjálms­son, starfs­maður nefnd­ar­innar, á blaða­manna­fundi sem haldin var fyrr í dag: „Ólafur Ólafsson stýrði verk­efn­inu fra A til Ö.“

Ætlaði ekki að svara getgátum fjölmiðla

Ólafur neit­aði upp­haf­lega að mæta til skýrslu­töku vegna rann­sókn­ar­innar. Eftir að dóm­stólar höfðu hafnað mála­til­bún­aði hans sem beitt var fyrir þeirri neitun mætti hann loks sem vitni 30. jan­úar 2017. Í skýrsl­unni er farið yfir vitn­is­burð Ólafs og þar rakið að eftir því sem hann vest vissi væru „allar þær upp­lýs­ingar sem íslenska rík­inu voru veittar á þessum tíma, eða ann­ars sú aðkoma Hauck & Auf­häuser sem bæði kaup­samn­ing­ur­inn og fylgi­gögn hans kváðu á um, og kynnt voru í fjöl­miðlum sam­hliða kaup­unum, réttar og nákvæmar varð­andi aðkomu Hauck & Auf­häuser.“

[links]

Ólafur sagð­ist hins vegar ekki muna hvort ein­hverjar ráð­staf­anir hefðu verið gerðar, t.d. með samn­ingum, til að draga úr eða girða fyrir fjár­hags­lega áhættu Hauck & Auf­häuser af við­skipt­unum. Þá kvaðst Ólafur ekki muna hvort ein­hverjir aðrir aðilar en þeir sem stóðu að kaup­samn­ingnum við íslenska ríkið hefðu komið að kaupum S-hóps­ins, t.d. með samn­ingum. Í skýrsl­unni er orð­rétt haft eftir Ólafi: „„Hauck & Auf­häuser fjár­festi í Eglu hf. eða ehf., ég man ekki hvort það er. Öll gögn, allir papp­írar, allar inn­borg­anir hluta­fjár liggja fyrir. Allar fund­ar­gerðir sem þú hefur liggja fyrir. Fund­ar­seta hans eða full­trúa hans í stjórnum liggja fyrir, öll umboð hans til athafna innan við Eglu liggja fyrir og meira hef ég ekki nú ekk­ert um málið að segja. Ég, þú getur ekki ætl­ast til þess að ég sé hérna, 15 árum síðar, að svara get­gátum fjöl­miðla. Bara I‘m sorry.“

[adspot]

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að aflands­fé­lag í eigu Ólafs hafi hagn­ast um marga millj­arða króna vegna flétt­unnar og að þeim ávinn­ingi hafi verið ráð­stafað í kaup á erlendum verð­bréfum fyrir hönd hans eftir að hann var greiddur út snemma árs 2006.

Sagðist ekki hafa hugmynd um fjármögnun Kaupþings

Ólafur sagði enn fremur ekki hafa hug­mynd um hvort Kaupþing hafi komið að fjár­mögnun á hlutnum sem full­yrt var að Hauck & Auf­häuser var að kaupa. Í skýrsl­unni kemur hins vegar mjög skýrt fram að Ólafur og hans nán­ustu sam­starfs­menn, hópur innan Kaup­þings og tveir aðilar innan Hauck & Auf­häuser sem hafi skipu­lagt og útfært þá fléttum sem ráð­ist var í í kringum kaupin. Aðspurður um hvort rétt væri að Hauck & Auf­häuser hefði tekið „fullan þátt í kaup­unum á kjöl­festu­hlut í Bún­að­ar­banka Íslands hf. í gegnum kaup sín í Eglu hf.“ svar­aði Ólafur að þeir hefðu verið „að fullu hlut­hafar í Eglu hf.“ og hann hefði „ekki verið upp­lýstur um annað af þeim“.

Þá kvaðst Ólafur ekki geta varpað ljósi á hvort full­yrð­ingar Guð­mundar Hjalta­sonar, fram­kvæmda­stjóra Eglu hf., í fjöl­miðlum um að hann vissi ekki til þess að Hauck & Auf­häuser hefði verið „leppur fyrir aðra aðila“, væru réttar og nákvæmar. Gögn nefnd­ar­innar sýna hins vegar mjög skýrt að hann var upp­lýstur um alla fleti máls­ins.

Gögn sýna að Ólafur var upplýstur

Í svar­bréfi sem Ólafur sendi rann­sókn­ar­nefnd­inni 20. mars 2017 eftir að honum hafði verið gerð grein fyrir meg­in­nið­ur­stöðum hennar seg­ist hann ekki hafa tekið þátt í við­ræðum um gerð samn­ing­anna milli Hauck & Auf­häuser og Kaup­þings og að eng­inn full­trúi á hans vegum hefði verið aðili að þeim. Hann hefði enn fremur „ekk­ert inn­legg“ haft „í samn­inga­við­ræð­urnar“ og „ekki séð þá samn­inga sem samn­ings­að­ilar gengu frá sín á milli“. Af þeim sökum væri hann „ekki í aðstöðu til að svara spurn­ingum um samn­inga Kaup­þings og Hauck & Auf­häuser“.

Þessu hafnar nefndin með öllu. Í skýrslu hennar segir: „Telja verður að gögn rann­sókn­ar­nefndar sýni meðal ann­ars svo að ekki verður um villst að Ólafur Ólafsson hafi ekki aðeins verið upp­lýstur um gerð bak­samn­ing­anna heldur hafi hann einnig frá upp­hafi átt að njóta, og notið í reynd, fjár­hags­legs ávinn­ings af þeim. Þá telur nefndin rétt að minna á að í tölvu­pósti Ralf Darpe til Ólafs Ólafs­sonar, dags. 17. des­em­ber [2002], sem sendur var með afriti á Michael Sautter og rak­inn er í 5. kafla, var Ólafur spurður sér­stak­lega, í til­teknu sam­hengi sem nánar er rakið þar, hvort bóka ætti hót­el­her­bergi fyrir „the Puffin“ eða „lund­ann“. Af gögnum rann­sókn­ar­nefndar, m.a. skjala­drögum aðila og sam­skiptum sem tengj­ast bak­samn­ing­unum er ljóst að með við­ur­nefn­inu „Puffin“ var vísað til Kaup­þings hf. eða þess verk­efnis sem fólst í bak­samn­ing­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár