Rannsóknarnefnd: Hauck & Aufhäuser var aldrei fjárfestir í bankanum

Stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar voru blekktir við sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Kaupþing og Ólafur Ólafsson stóðu að blekk­ing­unni.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndarinnar. Finnur Vilhjálmsson saksóknari var starfsmaður hennar.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari var for­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Finnur Vil­hjálms­son sak­sókn­ari var starfs­maður hennar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ítarleg skrif­leg gögn sýna með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaupþing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyjum. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­munum, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­anum.“

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu um nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem rann­sakað hefur aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003. Það er afdrátt­ar­laus nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að stjórn­völd hafi skipu­lega verið blekkt í aðdrag­anda og kjöl­far söl­unnar.

[links]

Skýrsla nefnd­ar­innar var afhent klukkan 10 og klukkan 10:30 hefst blaða­manna­fundur þar sem Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ar­inn sem sat í rann­sókn­ar­nefnd­inni, mun fara yfir nið­ur­stöður hennar.

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir enn fremur: „Síðari við­skipti á grund­velli ofan­greindra leyni­samn­inga gerðu það að verkum, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum, voru 57,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafsson. Um svipað leyti voru 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala greiddar af banka­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur Dekhill eða hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.“

[adspot]

Í skýrsl­unni, sem verður gerð opin­ber á vef rann­sókn­ar­nefnda Alþingis síðar í dag, er meðal ann­ars að finna tölvu­póst­sam­skipti milli þeirra aðila sem skipu­lögðu blekk­ing­unaa. Samkvæmt til­kynn­ing­unni sýna þau „hvernig íslensk stjórn­völd voru blekkt og hvernig rangri mynd af við­skipt­unum var haldið að fjöl­miðlum og almenn­ingi. Á hinn bóg­inn bendir ekk­ert til ann­ars en að öðrum aðilum innan fjár­festa­hóps­ins sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum, S-hóps­ins svo­kall­aða, hafi verið ókunn­ugt um leyni­samn­ing­ana og að þeir hafi staðið í þeirri trú að Hauck & Auf­häuser væri raun­veru­legur eig­andi þess hlutar sem hann var skráður fyrir.“

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um skýrsl­una þegar hún hefur verið birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár